Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 30.06.2011, Blaðsíða 28
28 30. júní 2011 FIMMTUDAGUR Sú nauðvörn sem talsmenn sjáv-arútvegsstefnu ríkisstjórnar- innar eru komnir í birtist í skraut- legum og fjölbreyttum myndum. Þegar vönduð úttekt hagfræðing- anna sex birtist véfengdu menn ekki niðurstöðurnar, heldur sögðu að útgerð og fiskvinnsla ætti að snúast um fleira en krónur og aura. Aðalatriðið væri ekki að fá góðan afrakstur af starfseminni, aðrir þættir skiptu líka máli. Sú umræða fór fyrir lítið. Hún var eftirminnilega afgreidd af efnahags- og viðskiptaráðherra, eins og í fersku minni er. Þá var bara snúið sér að næsta versi. Nú var byrjað að hjóla í skýrsluhöfundana og stofnanirnar sem þeir vinna hjá. En skoðum nú málið. Hagfræð- ingarnir sex starfa m.a hjá þrem- ur stærstu háskólum landsins. Óvéfengjanlegt er að þar er sam- ankomin mesta samanlagða aka- demíska þekkingin á þessu sviði í landinu. Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykja- vík eru ekki hafnir yfir gagnrýni. En það er auðvitað ósvinna af verstu tegund að láta í veðri vaka að þar á bæ setji menn fræðilegar niðurstöður sínar fram á grundvelli annarlegra hvata og fjárhagslegra hagsmuna, eins og látið hefur verið í veðri vaka. Við hljótum að geta rætt fisk- veiðistjórnarmálin af meiri yfir- vegun en þetta. Úttekt hagfræðinganna sex er mjög vönduð og góð, enda standa að henni einstaklingar sem hafa víð- tæka reynslu og þekkingu á þessum málum. Í ljósi þess að höfundarnir fengu aðeins sex vikur til verksins verður að telja það þrekvirki. Er það galli að þekkja til mála? OECD, efnahags- og framfara- stofnunin, er örugglega ekki óskeikul og enginn hefur gert kröfur til þess að hún verði það nokkurn tímann. En orð hennar hafa vægi. Þessi fimmtuga stofn- un nýtur að minnsta kosti þess álits að menn hljóta að leyfa sér að fjalla málefnalega um efnisum- fjöllun hennar. Jafnvel þó að ekki líki öllum við niðurstöðurnar. OECD skrifaði kafla um fisk- veiðistjórnunarmálin í úttekt sína um Ísland sem út kom á dögunum. Niðurstaðan var sú að ekki ætti að raska grundvelli fiskveiðistjór- nunarinnar hér á landi og færð fyrir því gild rök. Meðal annars með skírskotunum til reynslu annarra þjóða og fræðilegra úttekta. En hver urðu viðbrögðin hér heima? Jú, mestan part efnisleg. En svo komu undantekningarnar. Í fyrsta lagi var að því fundið að einn meðhöfunda skýrslunnar væri maður sem hefði rannsak- að fiskveiðistjórnunarmál hér á Íslandi og hefði því fyrir fram mótaðar skoðanir. En gáum að. Er það nú orðinn löstur á verki manns að hafa varið árum í að kynna sér málin? Er það til þess að veikja niðurstöður hans að hafa unnið þessi verk við okkar helstu fræðastofnun, Háskóla Íslands? Er það orðið blettur á heiðri hans sem fræðimanns að hafa starf- að þar í samvinnu við menn sem njóta alþjóðlegs álits á sviði rann- sókna á auðlindanýtingu? Og síðan hitt. Því var haldið fram að niðurstaða OECD væri í raun eins konar endurómun á skoðunum prófessors Ragnars Árnasonar. Svo athyglisverður þótti þessi málflutningur að vef- ritið Eyjan kaus að vitna til hans með sýnilegri velþóknun. Mikil heimildavinna Samsæriskenningar af þessu tagi eru vel þekktar í áróðri og vel þekkt er að fjölmiðlar falli fyrir slíkum brögðum. En er eitthvað á bak við þessi áróðursbrögð í þessu tilviki? Umfjöllun OECD er allítarleg. Þar er mjög vitnað til reynslu annarra þjóða af auðlindanýtingu. Þess er vandlega gætt í úttekt stofnunarinnar um íslensku fisk- veiðistjórnarmálin að geta heim- ilda, í samræmi við fræðilegt verklag. Í lok umfjöllunarinnar er síðan birtur listi yfir heimild- ir. Þar getur að líta lista yfir 28 fræðirit, úttektir og annað af þeim toga, eftir ótal vísindamenn og efni frá stofnunum sem hafa látið sig þessi málasvið varða. Í þeim hópi er fjöldinn allur af íslensk- um fræðimönnum, enda eðlilegt þar sem viðfangsefnið er íslensk fiskveiðistjórnun. Er þar bæði um að ræða úttektir sem unnar hafa verið á vettvangi íslensku háskól- anna og fyrir íslensk stjórnvöld fyrr og síðar. Þá eru þar skrif fræðimanna sem gagnrýnt hafa sitthvað í íslenskri fiskveiðistjór- nun. Þar má líka sjá ritrýndar greinar eftir íslenska fræðimenn, sem hafa birst í virtum alþjóðleg- um fræðiritum. Í listanum er líka að finna framlag erlendra fræði- manna á þessu vaxandi fræða- sviði, sem hefur mikla þýðingu fyrir okkur Íslendinga sem höfum mikla hagsmuni af því að standa vel að auðlindanýtingu okkar. Með öðrum orðum er ljóst að víða hefur verið leitað fanga við undirbúning að úttekt OECD. Kjörum deilt í sameiginlegri eymd Kjarni málsins er þó þessi. Hvað sem líður örvæntingarfullum til- raunum til þess að afvegaleiða umræðuna standa eftir staðreynd- ir sem erfitt er að hlaupa frá. Hver úttektin á fætur annarri leiðir í ljós að mikilvægt er fyrir okkur að reyna að haga skipulagi fisk- veiða hér við land þannig að af því hljótist sem mestur afrakstur. Það er síðan pólitískt viðfangsefni, sem er á margan hátt erfitt að takast á við, hvernig arðinum sem verð- ur til í íslenskum sjávarútvegi er skipt. Þær spurningar sem við tök- umst á við þar eru bæði pólitískar og hagfræðilegar, svo dæmi séu tekin. En það er auðvitað hægt að losa sig undan því að glíma við það verkefni. Það geta menn gert með því að fara þær leiðir sem ríkis- stjórnin hefur boðað. Leið sem enginn véfengir lengur að leiði til minnkandi hagkvæmni og minni heildarafraksturs. Það er sú leið sem hefur í för með sér að fyrir- brigðið auðlindaarður, eða auð- lindarenta, minnkar og hverfur að lokum. Þá er í sjálfu sér engu að skipta því þá deilum við bara kjörum í sameiginlegri eymd. Sameiginleg eymd? Sjávarútvegsmál Einar K. Guðfinnsson alþingismaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.