Fréttablaðið - 30.06.2011, Side 52
30. júní 2011 FIMMTUDAGUR36
timamot@frettabladid.is
Teiknarinn og rithöfundurinn Brian Pilkington hóf feril
sinn á Íslandi fyrir þrjátíu árum og hefur síðan skrifað og
myndskreytt tugi bóka. Myndir hans bera sterk höfundar-
einkenni og oftar en ekki eru tröll í aðalhlutverki. Það á
jafnt við um fyrstu bókina, Ástarsögu úr fjöllunum, sem
kom út árið 1981 og þá síðustu, Trolls philosophy and wis-
dom, sem kom út fyrir skemmstu.
Brian, sem er fæddur á Englandi árið 1950, kom til lands-
ins 1976 og sló í gegn með myndskreytingum sínum við bók
Guðrúnar Helgadóttur, Ástarsögu úr fjöllunum. Síðan þá
hefur heill tröllaheimur
orðið til. „Ég hef afskap-
lega gaman af því að teikna
tröll og er búinn að gera
mér í hugarlund hvernig
þau hugsa og hegða sér,“
segir Brian. Tröllin, sem
samkvæmt þjóðsögunum
þykja ógnvænlegar skepn-
ur, hafa þróast og þroskast
í meðförum hans og hafa
friðsælli vitsmunaverur
orðið til. „Ég er sjálfur
alltaf að færast nær því að
verða tröllkarl og eru börn-
in mín til að mynda hálf-
gerð tröllabörn enda miklu
stærri en jafnaldrar þeirra. Þá líkar mér best að ganga um
berfættur, alveg eins og tröllin,” segir Brian og hlær.
Nýjasta bók hans sýnir tröll í íslenskri náttúru ásamt vís-
dómsorðum þeirra á ensku. Hún hefur verið í smíðum síð-
ustu átta ár. „Þetta eru teikningar sem ég hef gert fyrir
mig á milli annarra verkefna en mér datt í hug að það væri
gaman að búa til flettibók með lífsspeki og hugleiðingum
trölla. Hugmyndin kviknaði í kringum útgáfu bókarinnar
Icelandic Trolls sem kom út árið 1999 en hún lýsir híbýlum
trölla, siðum og venjum.“
Brian segir í formála nýju bókarinnar að tröllamyndirnar
komi til hans nánast áreynslulaust og að stundum muni hann
ekki eftir að hafa teiknað myndir sem hann finnur á víð og
dreif um vinnustofuna og hann spyr: „Hvaðan koma hug-
myndir? Svífa þær um og bíða þess að verða fangaðar eða
hafa þær sjálfstæðan vilja. Stundum velti ég því fyrir mér
hvort tröllin hafi valið mig til að segja sögu þeirra. Ég kýs
að lifa með opnum hug. Það að hafa ekki séð eitthvað þýðir
ekki að það sé ekki til.“ vera@frettabladid.is
BRIAN PILKINGTON: Á ÞRJÁTÍU ÁRA
ÚTGÁFUAFMÆLI Á ÍSLANDI
Er sjálfur að
breytast í tröll
HEFUR VERIÐ Í SMÍÐUM Í ÁTTA ÁR
Nýjasta bók Brians hefur að geyma
vísdómsorð trölla.
ÞRJÁTÍU ÁRA FARSÆLL FERILL Brian sló í gegn með teikningum sínum
við söguna Ástarsögu úr fjöllunum árið 1981. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
45BOXARINN MIKE TYSON ER 45 ára í dag.„Tíminn skelfir mig. Tíminn er eins og bók.
Hefur upphaf, miðju og – endi.“
Okkar kæri
Leópold Jón Jóhannesson
fyrrv. verkstjóri og veitingamaður
í Hreðavatnsskála,
lést 23. júní. Útförin mun fara fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 1. júlí kl. 15.
Aðstandendur.
MOSAIK
Innilegar þakkir færum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Önnu Rósamundu
Jóhannsdóttur
Hlíðarlundi 2, Akureyri.
Magnús Þorsteinsson Roxanna Björg Morales
Sigurlína Þorsteinsdóttir Gunnlaugur H. Jónsson
Jóhanna Sigrún Þorsteinsdóttir Björn Jósef Arnviðarson
Viðar Þorsteinsson Kolbrún Ólafsdóttir
Björgvin Þorsteinsson Jóna Dóra Kristinsdóttir
Gunnar Þorsteinsson
Björn Axelsson Birna Bessadóttir
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
Iðunnar Heiðberg
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Skjóls og Laugaskjóls fyrir góða umönnun.
Páll Árnason Gyða Hafdís Margeirsdóttir
Ingibjörg Árnadóttir Neil Young
Helga Árnadóttir Roland Assier
og barnabörn.
Einlægar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, hlýju og vinar-
hug við andlát og útför elskulegs eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
Ásgeirs Axelssonar
Litla-Felli, Skagaströnd.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sigrún Guðmundsdóttir.
Hjartans þakkir færum við öllum sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Guðjóns Jónssonar
bifreiðastjóra,
Víðivöllum 26, Selfossi.
Guðmunda Ólafsdóttir
Jón Viðar Guðjónsson Carola Ida Köhler
Steinþór Guðjónsson Sigríður Garðarsdóttir
Reynir Guðjónsson Soffía Stefánsdóttir
Guðbjörg Guðjónsdóttir Sigurður Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabarn
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi, sonur, tengdasonur,
bróðir og mágur,
Reynir Ómar Guðjónsson
Stekkjarhvammi 70, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju mánudaginn
4. júlí kl. 15.00.
Vilborg Jóhanna Stefánsdóttir
Stefán Reynisson Sóley Eiríksdóttir
Helga Reynisdóttir Björn Ingi Vilhjálmsson
Anna Reynisdóttir Björn Bragi Arnarsson
afastelpur
Guðjón Frímannsson
Stefán Vilhelmsson
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg konan mín, móðir okkar,
tengdamóðir, systir, amma og lang-
amma,
Sigrún Sigurjónsdóttir
Dalhúsum 51, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 24. júní, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 1. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á „Á rás fyrir Grensás“,
reikningsnúmer 311-26-3110.
Björgvin Magnússon
Hafdís Guðrún Sveinsdóttir
Eiríkur Ómar Sveinsson Ingibjörg Sandholt
Sigrún Elínborg Sveinsdóttir
Sverrir Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Hafliði Þórður
Magnússon
rithöfundur frá Bíldudal,
lést á heimili sínu á Selfossi laugardaginn 25. júní.
Útförin fer fram frá Bíldudalskirkju laugardaginn
2. júlí kl. 16.00.
Eva Þórarinsdóttir
Björk Hafliðadóttir Magnús B. Óskarsson
Sóldögg Hafliðadóttir Jónatan Hertel
Jóna Vigdís Evudóttir Sigþór Þórarinsson
Una Rós Evudóttir
og barnabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur hlýju og vinarþel
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Elínóru Hólm
Samúelsdóttur
Ástarþakkir sendum við starfsfólki Víðihlíðar á
Dvalarheimilinu Hlíð fyrir frábæra umönnun og
umhyggju fyrir móður okkar.
Hörður Gíslason Sigurbjörg Edda Óskarsdóttir
Hallgrímur Gíslason Halla Svavarsdóttir
Jón Gíslason Aðalheiður Kristjánsdóttir
Bjarnhéðinn Gíslason Heiðdís Haraldsdóttir
Aðalheiður Gísladóttir Haukur Þorsteinsson
og ömmubörn.