Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 6
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR6
Fáir æðarungar
Ekki hafa verið færri æðarungar á
kollu frá því að talningar hófust árið
2007. Það er Rannsóknasetur HÍ á
Snæfellsnesi sem telur. Meðaltal
unga á hverja kollu er nú um 0,21.
Meðaltal síðustu ára var 1,67 ungar
á kollu.
NÁTTÚRA
Allar hellur Steypustöðvarinnar
eru framleiddar samkvæmt
viðurkenndum stöðlum.
4 400 400
KJÖRKASSINN
KJARAMÁL Bandalag háskóla-
manna (BHM) lýsir yfir and-
stöðu við þá túlkun vinnuveit-
anda að fólk í fæðingarorlofi fái
ekki 50 þúsund króna eingreiðslu
sem samið var um í nýgerðum
kjarasamningum. Bandalagið
telur þessa ráðstöfun sérlega
ómálefnalega, ekki síst í tilfelli
hins opinbera, í ljósi þess að ein-
greiðslan er greidd atvinnuleit-
endum og lífeyrisþegum.
Þá telur BHM það ekki sæm-
andi að nýbakaðir foreldrar séu
teknir út fyrir sviga. - mþl
Bandalag háskólamanna:
Eingreiðsla í
fæðingarorlofi
DÓMSMÁL „Auðvitað er það þannig
að íslenskir dómstólar og EFTA-
dómstóllinn fara með ólík hlut-
verk,“ segir Skúli Magnússon,
dómritari EFTA-dómstólsins.
„Íslenskir dómstólar dæma um
íslensk lög en EFTA-dómstóllinn
fer ásamt Evrópu dómstólnum með
endanlegt úrskurðarvald um túlk-
un EES-samningsins. Svo lengi
sem Íslendingar vilja vera aðilar
að EES-samningnum verða þeir að
sætta sig við að íslenskir dómstólar
fara ekki með endanlegt úrskurðar-
vald um efni þessara reglna. Það
liggur einfaldlega í eðli alþjóðlegra
samninga.“
Skúli segir enga þversögn eða
mótsögn fólgna í því að EFTA-dóm-
stóllinn fari með þetta hlutverk og
íslenskir dómstólar taki svo við
boltanum og framfylgi EES-reglum
á Íslandi.
„En einmitt þess vegna er svo
mikilvægt að samstarf EFTA-
dómstólsins og íslenskra dómstóla
sé bæði gott og heilbrigt. Ummæli
á borð við þau sem innanríkisráð-
herra hefur látið frá sér fara virð-
ast benda til að hann átti sig ekki
alveg á þessari verkaskiptingu
íslenskra dómstóla og EFTA-dóm-
stólsins og átti sig ekki heldur á
mikilvægi þess að samstarf milli
þessara dómstóla sé gott og heil-
brigt.“
Skúli er þar að vísa til þeirra
orða Ögmundar Jónassonar inn-
anríkisráðherra að hann líti ekki
á EFTA-dómstólinn sem heilaga
ritningu í öllum efnum. Ögmund-
ur ítrekar þau orð sín í viðtali við
Frétta blaðið.
„Ég minni til dæmis á að þegar
þjónustutilskipun Evrópusam-
bandsins var samþykkt fyrir fáein-
um árum eftir áralangt tog á milli
félagshyggjufólks og frjálshyggju-
manna þá fögnuðu báðar fylkingar
sigri. Báðar höfðu þær nefnilega
fundið syllu til að standa á í mála-
ferlum framtíðarinnar um túlkun
tilskipunarinnar,“ segir Ögmundur.
„Að sjálfsögðu er það samt svo
að Íslendingar vilja fara að þeim
reglum og lögum sem þeir gangast
undir hvort sem það er hér á landi
eða innan hins evrópska efnahags-
svæðis og ef mönnum finnst eitt-
hvað skorta á að mál gangi nógu
greiðlega til álitsgjafar hjá dóm-
stólnum, þá er ég að sjálfsögðu
reiðubúinn til að taka þá umræðu,“
segir Ögmundur.
„Hitt er svo annað mál, að ég
furða mig á hve stóryrtur forseti
EFTA-dómstólsins hefur verið í
yfirlýsingum sínum þegar hann
gagnrýnir íslenskt réttarkerfi.“
Bæði Carl Baudenbacher, forseti
dómstólsins, og Skúli Magnússon
dómritari hafa gagnrýnt tregðu
íslenskra stjórnvalda til að senda
mál til ráðgefandi álits til EFTA-
dómstólsins. Skúli segist hins
vegar engan veginn átta sig á þess-
um ásökunum um stóryrði af hálfu
EFTA-dómstólsins.
„Í gagnrýni sinni var Bauden-
bacher fyrst og fremst að vísa til
þeirrar stefnu íslenskra stjórn-
valda og þá ríkislögmanns sérstak-
lega að leggjast gegn því að spurn-
ingum um túlkun EES-reglna sé
vísað af íslenskum dómstólum til
EFTA-dómstólsins,“ segir Skúli.
Að auki hafi forseti réttarins
vísað til gagnrýni sem hefur komið
fram á einstaka dóma Hæstarétt-
ar, þar sem því var hafnað að vísa
málum til EFTA-dómstólsins þótt
héraðsdómari hafi óskað eftir því.
„Þar er hann einfaldlega að vísa
til gagnrýni lögfræðinga eins og
Davíðs Þórs Björgvinssonar, Elv-
iru Méndez og Páls Hreinssonar.“
Þeir Skúli og Baudenbacher
hafa einnig bent á að Ísland sé eina
EFTA-landið sem gerir ráð fyrir
því að hægt sé að kæra úrskurði
héraðsdómara til æðra dómsvalds.
Bæði í Noregi og í Liechtenstein sé
dómurum treyst fyrir því að taka
sjálfir ákvörðun um hvort þeir telji
þörf á túlkun EFTA-dómstólsins í
málum, sem þeir þurfa að dæma í.
„Þetta er einmitt einn af þeim
þáttum, sem við þyrftum að skoða í
þessari umræðu,“ segir Ögmundur,
sem fyrir sitt leyti er reiðubúinn að
skapa umræðuvettvang um þessi
mál. gudsteinn@frettabladid.is
Ögmundur segir sjálfsagt
að ræða EFTA-dómstólinn
Gagnrýni dómara EFTA-dómstólsins á tregðu íslenska ríkisins til að senda mál hefur vakið nokkur við-
brögð. Innanríkisráðherra segir það vekja furðu hve EFTA-dómstóllinn hafi verið stóryrtur í garð íslensks
réttarkerfis. Skúli Magnússon segir mikilvægt að samstarf íslenskra dómstóla og EFTA-dómsins sé gott.
Gagnrýni EFTA-dómstólsins hefur sérstaklega beinst að ríkislögmanni, sem
hafi um árabil haft þá stefnu að kæra til Hæstaréttar helst alla úrskurði
íslenskra héraðsdómara um að leita eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins.
Einar Karl Hallvarðsson ríkislögmaður hefur fullyrt að það sé engin stefna
embættisins að kæra öll mál til Hæstaréttar. Hvert mál sé skoðað fyrir
sig. Hann segist reyndar ekki sjá að það standist skoðun að flest mál sem
beinast gegn ríkinu hafi í reynd verið kærð til Hæstaréttar.
„Þegar maður fer yfir málin kemur í ljós að þau hafa ekkert verið kærð
flest til Hæstaréttar. Þannig að ég hef mínar efasemdir um að þessi kenning
sé rétt,“ segir hann.
Ríkislögmaður vísar gagnrýni á bug
EFTA-DÓMSTÓLLINN Í LÚXEMBORG Dómararnir Þorgeir Örlygsson, Carl Bauden-
bacher og Henrik Bull ásamt Skúla Magnússyni dómritara. MYND/EFTA-DÓMSTÓLLINN
MEXÍKÓ, AP Starfsmenn fangelsis í
Quintana Roo í Mexíkó tóku eftir
að Maria del Mar Arjona, nítján
ára eiginkona fanga eins, virtist
nokkuð taugaóstyrk þegar hún
var á leiðinni út úr fangelsinu
eftir að hafa heimsótt eiginmann
sinn, hinn tvítuga Juan Ramirez
Tijerina. Hún var að auki með í
eftirdragi nokkuð stóra ferðatösku
sem virtist mjög úttroðin.
Þegar að var gætt reyndist
eigin maður hennar vera í ferða-
töskunni, þar sem hann hafði
hniprað sig saman í fóstur-
stellingu.
Ramirez er að afplána tuttugu
ára fangelsisdóm fyrir ólöglega
vopnaeign. Hann á nú yfir höfði
sér nýtt dómsmál vegna flótta-
tilraunar. - gb
Misheppnuð flóttatilraun:
Ætlaði að flýja
fangelsi í tösku
EIGINMAÐURINN Í TÖSKUNNI Juan
Ramirez Tijerina staðinn að verki.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEIÐAR Settar hafa verið nýjar regl-
ur um veiðar á göngusilungi í sjó,
samkvæmt tilkynningu frá Fiski-
stofu. Er þeim ætlað að vernda sjó-
bleikju- og laxastofna á nokkrum
svæðum við landið.
Nýjar reglur kveða á um að
netaveiði er bönnuð á svæðinu frá
Akranesi að Hítará á Mýrum. Nær
bannið til þessa og næsta árs frá og
með 10. júní til 10. ágúst.
Megintilgangur þessara reglna
er að vernda bleikjustofna á
Hvítár svæðinu, sem hafa átt mjög
undir högg að sækja hin síðari
ár en einnig að koma í veg fyrir
veiðar á laxi í silunganet þegar
mest gengur af laxi.
Á sama tímabili er sjóbleikju-
veiði bönnuð með allri strand-
lengju Þistilfjarðar. Þar eiga sjó-
bleikjustofnar undir högg að sækja,
en einnig á að koma í veg fyrir
veiðar á laxi í silunganet. Eins er
sett bann við sjóbleikjuveiði með
strandlengju Skjálfandaflóa frá
ósum Laxár að Tjörnestá af sömu
ástæðum. Stórlax hefur mjög átt
undir högg að sækja í Laxá í Aðal-
dal og hefur veiðifélagið brugðist
við með því að setja reglur um að
eingöngu megi veiða á flugu og
sleppa skuli öllum laxi sem veiðist.
Fyrir eru í gildi miklar takmark-
anir á netaveiðum göngusilungs í
sjó, samkvæmt lögum nr. 61/2006
um lax- og silungsveiði. - shá
Nýjar reglur settar um netaveiði til að vernda sjóbleikju- og laxastofna:
Hertar reglur um netaveiði í sjó
BLEIKJA Ótta um viðgang laxa- og
sjóbleikjustofna er mætt með hertum
reglum. MYND/GARÐAR
Sækir þú skipulagða bæjar-
hátíð á þessu sumri?
Já 28,7%
Nei 71,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hefur þú trú á grasalækn-
ingum?
Segðu skoðun þína á visir.is