Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 8
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR8
HOLLAND, AP Hollendingar bera
ábyrgð á dauða þriggja Bosníu-
múslima í fjöldamorðunum í
Srebrenica árið 1995. Þetta er
niður staða hollensks áfrýjunar-
dómstóls, sem kvað upp þann
úrskurð að hollenska ríkið eigi
að greiða ættingjum mannanna
þriggja skaðabætur.
Hollenskir friðargæsluliðar
voru í Srebrenica þegar fjölda-
morðin voru framin. Þeir áttu að
bera ábyrgð á öryggi fólksins í
Srebrenica, sem átti að vera griða-
staður á vegum Sameinuðu þjóð-
anna í Bosníustríðinu.
Málið getur haft víðtæk áhrif
því ættingjar fleiri fórnarlamba
gætu nú höfðað mál. Þá getur
málið orðið fordæmisgefandi á
víðari grunni, þannig að ríki sem
senda fólk til friðargæslustarfa á
vegum Sameinuðu þjóðanna geta
nú átt á hættu að verða dregin
fyrir dóm.
„Þetta er mjög gott, loksins,“
sagði Damir Mustafic, einn ætt-
ingjanna. Það hittist svo á að
dómur inn féll aðeins fáum dögum
áður en jarðneskar leifar föður
hans verða jarðsettar í kirkjugarði
í Srebrenica.
Lík hans er eitt af sex hundruð
sem grafin hafa verið upp og
kennsl borin á með aðstoð DNA-
greiningar nú á þessu ári. Þessi
lík verða öll jarðsett í minningar-
athöfn í kirkjugarðinum þegar
þess er minnst að 16 ár verða
liðin frá fjöldamorðunum, sem
eru alvarlegasti stríðsglæpur
sem framinn hefur verið í Evr-
ópu frá lokum seinni heims-
styrjaldarinnar.
Það var Hasan Nuhanovic, túlk-
ur sem missti bæði föður sinn og
bróður í fjöldamorðunum, sem
höfðaði málið ásamt ættingjum
rafvirkjans Rizo Mustafic, sem
einnig var myrtur af Bosníu-
Serbum í Srebrenica.
Rafvirkinn Mustafic var í starfi
hjá hollensku friðargæsluliðunum
og Nuhanovic starfaði einnig hjá
þeim, en ekki faðir hans og bróðir.
Hinir myrtu voru meðal þúsunda
Bosníu-Serba sem leituðu skjóls í
Srebrenica, þar sem Sameinuðu
þjóðirnar höfðu heitið þeim öryggi.
Hinn 11. júlí árið 1995 réðust
serb neskir hermenn undir stjórn
Ratkos Mladic herforingja á
Srebrenica. Tveimur dögum síðar
létu hollensku friðargæsluliðarnir,
sem voru mun færri en hersveitir
Serba, undan þrýstingi innrásar-
liðsins og ráku þúsundir Bosníu-
múslima út úr griðastaðnum. Serb-
nesku hermennirnir tóku karla
og drengi út úr hópnum og fluttu
þá burt. Um það bil átta þúsund
þeirra voru síðan myrtir og grafn-
ir í fjöldagröfum.
gudsteinn@frettabladid.is
þúsund Bosníu-mús-
limar voru myrtir af
serbneskum her-
sveitum í júlí 1995. Hersveit-
irnar voru undir stjórn Ratkos
Mladic herforingja sem var
handtekinn í maí eftir 16 ár
á flótta.
8
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Sel-
fossi handtók nýverið þrjá gas-
kútaþjófa. Til þeirra spurðist er
þeir voru að reyna að selja gas-
kúta hjá Olís á Selfossi. Þeim
var neitað um viðskiptin.
Að því búnu lögðu þremenn-
ingarnir leið sína í N1 í Hvera-
gerði. Þar voru þeir handteknir.
Við yfirheyrslur játuðu þeir að
hafa stolið gaskútum. Rannsókn
leiddi í ljós að einn þeirra hafði
stolið sex kútum af starfssvæði
Samskipa á Selfossi, fjórum
kútum frá Byko á Selfossi og
fjórum kútum frá N1 á Hvols-
velli í lok maí síðastliðins. Tveir
mannanna hafa margoft komið
við sögu lögreglu.
- jss
Gaskútaþjófar handteknir:
Reyndu að selja
stolna gaskúta
1. Hvaða bannaða eiturefni er
talið að sé að finna í flugeldum sem
hingað hafa verið fluttir?
2. Hvað heitir útgerðarfélagið á
Flateyri sem úrskurðað var gjald-
þrota í byrjun árs?
3. Hvað heitir þyrla Landhelgis-
gæslunnar sem átti brátt að fara í
reglubundna skoðun?
SVÖR
1. Hexaklórbensen, eða HBC. 2.
Eyraroddi. 3. TF-GNÁ.
SAMGÖNGUR „Við erum í þeirri stöðu
að vera með bakið upp við vegg. Það
eru ofboðslega þung skref fyrir Vest-
mannaeyjar að taka aftur upp siglingar
í Þorláks höfn eingöngu,“ segir Elliði
Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Yfirvöld í bænum hafa nú leitað til einka-
aðila, innanlands og utan, til að kanna
áhuga á því að sigla í Landeyjahöfn.
„Málið er á allra fyrstu metrunum og er
gert af stakri neyð,“ segir hann.
Er þetta gert í ljósi þess að ferðum
Herjólfs um höfnina var ítrekað aflýst í
vetur og verið er að meta hvort beri að
loka Landeyjahöfn allan næsta vetur.
„Ef ölduviðmiðin eru tveir metrar fyrir
Herjólf, þá verður þetta ekki einu sinni
sumarhöfn lengur,“ segir Elliði. „Þegar
hún var hönnuð var það gert með grunn-
ristara skip í huga.“
Elliði segir áætlanir hafa legið fyrir um
að smíða nýja ferju til að sigla um höfnina,
en ríkið hafi fallið frá þeim áformum.
Kostnaðaráætlun fyrir skipið hafi verið á
milli tveir og þrír milljarðar króna. „Nú
stöndum við frammi fyrir því, eins og
varað var við, að Herjólfur ræður ekki
við siglingar í Landeyjahöfn. Við getum
ekki farið inn í annan vetur eins og þann
síðasta,“ segir hann og bætir við að þeir
rekstraraðilar sem leitað hafi verið til
sýni verkefninu áhuga. - sv
Yfirvöld í Vestmannaeyjum leita nú til einkaaðila til að sigla um Landeyjahöfn:
Hafa leitað til innlendra og erlendra aðila
Hollendingar
bera ábyrgð
á Srebrenica
Áfrýjunardómstóll í Hollandi komst að þeirri niður-
stöðu að hollenska ríkið eigi að greiða skaðabætur
til ættingja þriggja Bosníu-múslima, sem Bosníu-
Serbar myrtu í Srebrenica árið 1995.
MERKIR LÍKKISTURNAR Starfsmaður lagfærir merkingar á 613 líkkistum í líkhúsi
í Visoko. Borin hafa verið kennsl á líkin og verða þau grafin í minningarathöfn á
sunnudag. NORDICPHOTOS/AFP
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
1
-1
5
1
8
Ótrúlega þægilegt
Skráðu þig í Meniga í Netbanka Íslandsbanka
“
„
Matur Kr. Matur Kr.
Ótrúlega þægilegt, spennandi að fylgjast
- Kona á sextugsaldri
LANDEYJAHÖFN Bæjarstjórinn í Eyjum segir bæjaryfirvöld hafa
leitað til einkaaðila til þess að kanna áhuga á siglingum milli
Eyja og Landeyjahafnar.
VEISTU SVARIÐ?