Fréttablaðið - 06.07.2011, Síða 11

Fréttablaðið - 06.07.2011, Síða 11
6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR11 marathon.is Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður að morgni Menningarnætur, 20. ágúst. Vegalengdir við allra hæfi, allt frá Latabæjarhlaupi fyrir börnin og upp í heilt maraþon. Boðhlaup – hlauptu maraþon með félögum þínum Gerðu Reykjavíkurmaraþonið þitt enn skemmtilegra. Í boðhlaupi taka 2-4 sig saman og skipta heilu maraþoni á milli sín. Nánar á marathon.is. Hlaupastyrkur – hlaupum til góðs Þú getur látið gott af þér leiða með hlaupinu. Á hlaupastyrkur.is getur þú safnað áheitum til stuðnings góðgerðarfélagi að eigin vali með því að fá vini og vandamenn til að heita á þig. - Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997 ... og söfnum fyrir Barnaspítala Hringsins á meðan TRÚLOFUNARHRINGAR falleg minning á fingur www.jonogoskar.is LAUGAVEGUR / SMÁRALIND / KRINGLAN Allt sem þú þarft Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing REYKJAVÍK Fulltrúar frá sjálfboða- liðasamtökunum SEEDS, eða SEE beyonD borderS, vinna þessa dagana að því að fegra ásýnd miðborgarinnar. Borgin hvet- ur húseigendur til að taka þátt í átakinu. Meðal þess sem sjálfboðalið- arnir munu gera, undir stjórn framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar, er að mála ljósa- staura, vegstólpa og stöðumæla við Laugaveg og Austurstræti. Borgin hvetur húseigendur til að mála framhliðar eða gafla í sjón- línu frá götu, sé þess þörf. - sh Íbúar hvattir til að mála húsgafla sem eru í sjónlínu frá götu: Sjálfboðaliðar fegra borgina FEGRAÐIR STAURAR Sjálfboðaliðarnir voru önnum kafnir við að mála ljósastaura á Laugaveginum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN SAMFÉLAGSMÁL Borgaryfirvöld hafa ákveðið að þeir veiðidagar í Elliðaánum sem borgin hefur til ráð- stöfunar verði nýttir af borgarbúum en ekki borgar- fulltrúum og starfsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur eins og löngum hefur verið. Reykjavíkurborg hefur haft fimm daga til ráð- stöfunar í Elliðaánum. Í fyrra afsöluðu borgar- fulltrúar sér tveimur dögum og voru Reykvíkingar beðnir um að koma með ábendingar að hvunndags- hetjum sem ættu skilið að fá að veiða í ánum. Það fyrirkomulag verður haft áfram. Enn fremur hefur Reykjavíkurborg ákveðið að gefa dugmiklum starfs- mönnum borgarinnar kost á því að veiða í ánum í einn dag á góðum tíma. Verða starfsmenn Reykja- víkurborgar hvattir til að benda á samstarfsmenn sem eru vel að veiðinni komnir. Þá afhendir Reykjavíkurborg Stangaveiðifélagi Reykjavíkur tvo daga í ánum til ráðstöfunar og munu félagsmenn SVFR njóta þeirra auk þess sem félagið mun nýta þá til barna- og unglingastarfs. Stangaveiðifélagið var stofnað árið 1939 til að leigja veiðirétt í ánni og hafa félagsmenn þess stað- ið að hreinsun og viðhaldi ánna æ síðan. - shá Hvunndagshetjur og dugmiklir starfsmenn borgarinnar veiða í stað stjórnenda: Afsala sér veiðirétti í Elliðaánum MARÍULAX Gunnlaugur Sigurðsson, Reykvíkingur ársins, með maríulax sinn við opnun ánna í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.