Fréttablaðið - 06.07.2011, Síða 12
12 6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
HALLDÓR
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Sameinuðu þjóðirnar, SÞ, hafa valið árið 2012 alþjóðlegt ár tileinkað samvinnu-
hreyfingum um allan heim. Samvinnufélög
eru ýmist fyrirtæki í atvinnurekstri eða
samtök með rík samfélagsleg markmið.
Samvinnufyrirtæki eru starfrækt í
yfir 90 löndum og talið að félagsmenn séu
nálægt milljarði í gegnum International
Cooperative Alliance ICA sem eru alþjóða-
samtök samvinnufyrirtækja. Samkvæmt
ICA skapast um 100 milljónir starfa í
heiminum vegna starfsemi samvinnu-
fyrirtækja. Um 80-99% af mjólkurfram-
leiðslu í Noregi, Nýja Sjálandi og Banda-
ríkjunum á rætur í samvinnu fyrirtækjum.
Samvinnufyrirtæki eru ábyrg fyrir um
70% fiskiðnaðar í Kóreu, 40% af land-
búnaði í Brasilíu, 55% af verslun og
þjónustustarfsemi í Singapore og 35%
í Danmörku. Samvinnufyrirtæki í fjár-
málageiranum eru talin þjónusta um 850
milljón manns eða um 13% af mannfjölda
heimsins. Samvinnubankar eru 4.200
talsins í heiminum og starfa undir regn-
hlífarsamtökum European Association of
Cooperative Banks. Endurskoðunar- og
ráðgjafarfyrirtækið KPMG er alþjóðlegt
Samvinnufyrirtæki.
Ástæðan fyrir þessu vali Sameinuðu
þjóðanna er að viðurkenna framlag Sam-
vinnufélaga til félags- og efnahagslegrar
þróunar, sérstaklega með tilliti til þróunar
atvinnu og félagslegrar aðlögunar. Mark-
mið ársins er að auka vitund almennings
um hlutverk samvinnufélaga, stuðla að
vexti samvinnufélaga um allan heim og
koma á stefnu og löggjöf sem stuðlar að og
styrkir stöðugleika samvinnuhreyfinga.
Samvinnuhugsjónin á Íslandi á rætur
í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar á fyrri
hluta nítjándu aldar þegar verkafólk og
bændur sameinast um stofnun félaga með
það markmið að bæta kjör sín og rísa úr
fátækt. Á Íslandi eru í dag 37 samvinnu-
félög og 9 húsnæðissamvinnufélög. Kaup-
félag Suðurnesja var stofnað 13. ágúst
1945 og hefur síðan verið kjölfesta í
atvinnulífi okkar Suðurnesjamanna.
Samvinnufélög eru byggð á gildum
sjálfshjálpar, sjálsábyrgðar, lýðræðis,
jafnréttis og samstöðu til eflingar nær-
samfélaginu. Samfélagsleg ábyrgð er rík í
hugum samvinnumanna og er í raun hjarta
félaganna. Siðferðislega eiga þau að starfa
á grundvelli heiðarleika, með gegnsæjum
starfsháttum, félagslegri ábyrgð og
umhyggju fyrir öðrum. Samvinnustarf er
þjóðfélagsstefna.
Samvinnuhreyfingar árið 2012
Samvinnu
félög
Skúli Skúlason
formaður
Kaupfélags
Suðurnesja
F
réttablaðið greindi frá því í gær að ríkistjórnin væri tæp-
lega hálfnuð með áform sín um að fækka ríkisstofnunum
um 30 til 40 prósent. Þegar hefur þeim fækkað um 30,
sem samsvarar um 15 prósentum, en ríkisstofnanirnar
voru 200. Fyrir lok næsta árs á að vera búið að fækka
þeim um 30-50 í viðbót.
Þetta er mikilsverður árangur í því verkefni að vinda ofan af
þeirri gífurlegu útþenslu ríkisins sem átti sér stað á áratugnum
fyrir hrun. Í hinu þægilega starfsumhverfi stjórnmálamannanna,
þar sem skattpeningarnir ultu inn, var auðvelt að segja já við til-
lögum um nýjar stofnanir og
fleiri störf hjá ríkinu, án þess
að hugsa út í afleiðingarnar ef
tekjurnar brysti skyndilega.
Fjöldi stofnananna segir ekki
alla söguna um árangurinn í
þessu nauðsynlega verki. Sam-
eining verður að hafa í för með
sér hagræðingu og gerir það
vafalaust með fækkun stjórn-
enda, en það dugir ekki til. Ætli menn að vinda ofan af vitleysu
góðæristímans er óhjákvæmilegt að fækka störfum hjá ríkinu.
Það er að sjálfsögðu aldrei auðvelt verkefni að fækka starfsfólki,
sérstaklega ef grípa þarf til uppsagna. En tölurnar setja málið
í samhengi. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu
fjölgaði stöðugildum hjá ríkinu, þar með talið hjá opinberum hluta-
félögum, um 38% á árunum 1999 til 2008. Hvar eru menn staddir
í að vinda ofan af þeirri fjölgun? Samkvæmt svari Steingríms J.
Sigfússonar fjármálaráðherra á þingi í desember síðastliðnum
hefur stöðugildum hjá ríkinu fækkað um tæp 5% frá 2008.
Sums staðar hefur raunar verið óhjákvæmilegt að fjölga ríkis-
starfsmönnum eftir hrun, t.d. hjá nýjum embættum sérstaks
saksóknara og umboðsmanns skuldara, og hjá stofnun á borð við
Íbúðalánasjóð, sem þarf mannskap til að takast á við endurskipu-
lagningu lána. Fjölgun hjá þessum stofnunum er væntanlega tíma-
bundin og hægt að draga saman seglin á nýjan leik þegar frá líður.
Þótt allir sæmilega ábyrgir stjórnmálamenn ættu að geta
verið sammála um að fækkun ríkisstarfsmanna sé óhjákvæmi-
leg, stökkva stjórnmálamenn í vörn þegar sparnaðurinn snertir
atvinnugrein, hóp eða landsvæði sem þeir bera fyrir brjósti.
Landsbyggðarþingmönnum fannst til dæmis ákaflega óréttlátt
hvernig hagræðing í heilbrigðiskerfinu og víðar í ríkis rekstrinum
kom niður á kjördæmunum þeirra. Þegar Steingrímur fjármála-
ráðherra upplýsti á þingi að af 545 stöðugildum sem hurfu hjá
ríkinu væru 300 á landsbyggðinni sagði Ásbjörn Óttarsson, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokksins, það „mjög sláandi“.
Hann kemur reyndar úr Norðvesturkjördæmi, þar sem ríkis-
starfsmönnum fjölgaði um 162% á árunum 1999-2008, jafnmikið
og í Norðausturkjördæmi og svolítið meira en í Suðurkjördæmi.
Á sama tíma fjölgaði ríkisstarfsmönnum í Reykjavík um tæpan
fjórðung og í Suðvesturkjördæmi um 12%.
Hluti af hinu þægilega starfsumhverfi stjórnmálamannanna
var nefnilega að reka „byggðastefnu“ með því að fjölga störfum
á landsbyggðinni á kostnað skattgreiðenda með fullkomlega
óforsvaranlegum hætti. Engum fannst það víst þá „mjög sláandi“.
Markmið um sparnað í ríkisrekstrinum nást
ekki nema ríkisstarfsmönnum fækki.
„Mjög sláandi“
Lofsöngur Landeyjahafnar
Mikið var um dýrðir í Landeyjahöfn
21. júlí 2110 þegar Kristján L. Möller,
þáverandi samgönguráðherra, klippti
á borða og lýsti höfnina opna.
Ráðherra var enda stoltur af fram-
kvæmdinni, þakkaði stjórnmála-
mönnum baráttu fyrir henni og sagði
meðal annars: „Við erum hreykin af
þessu mannvirki og öllum þeim sem
lögðu hönd á plóginn; sérfræðing-
unum sem sýndu fram á með
rannsóknum sínum og vísindum
að þetta væri gerlegt …“ Óvíst er að
Vestmannaeyingar og gestir þeirra,
sem horfa fram á að höfnin verði
mögulega lokuð í vetur, séu
jafn hreyknir og ráðherrann
fyrrverandi.
Best að halda lögin
Nefnd um Byggðastofnun skilaði af
sér skýrslu til iðnaðarráðherra í gær.
Þar var margar tillögur að finna og
flestar allrar athygli verðar. Ein aðal-
tillagan vakti þó sérstaka athygli, en
hún hljóðaði svo: „Stjórn Byggða-
stofnunar og eigendur tryggi að starf-
semi Byggðastofnunar stangist ekki
á við samkeppnis lög.“
Ætli nefndin hafi
þurft marga
fundi til að
leggja til að
stofnunin
héldi lands-
lög?
Útrás Sivjar
Siv Friðleifsdóttir er mikil áhuga-
manneskja um að takmarka eina
söluvöru ríkisins, tóbak. Í því skyni
hefur hún, ásamt nokkrum öðrum
þingmönnum, lagt fram tillögu þess
efnis að innan tíu ára verði tóbaks-
vörur lyfseðilsskyldar og fáist aðeins
í apótekum. Siv hefur hins vegar
farið mikinn í kynningum á efni
tillögunnar og er stórhuga. Á
heimasíðu hennar mátti sjá að
á tveimur dögum, mánudegi
og þriðjudegi, var hún í sjö
viðtölum við erlenda fjölmiðla
um málið. Ekki slæmt það
um mál hvers afdrif eru
enn fullkomlega óljós.
kolbeinn@frettabladid.is