Fréttablaðið - 06.07.2011, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 6. júlí 2011 13
Alvarlegasta ásökunin á hendur Exista í skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis er fullyrðingin
um að félagið hafi reynt að hagnast
á falli krónunnar. Höfundar skýrsl-
unnar, sem franska stjórnmála-
konan Eva Joly fullyrðir að sé sú
eina sinnar tegundar í heiminum,
vaða reyk í umfjöllun sinni. Þessi
staðleysa eins og svo margt annað
úr skýrslunni um Exista er svo
étið upp í fjölmiðlum, meðal ann-
ars í leiðara DV um síðustu helgi.
Þar fékkst enn ein staðfesting þess
að þeir sem tala mest um réttlæti
og sanngirni eru oft síst til þess
fallnir. Augljóst er að sífelld skrif
DV manna um hina „réttlátu reiði
í samfélaginu“ eru einungis hjúpur
sem ætlað er að fela illgirni þeirra
og mannfyrirlitningu.
Fall krónunnar átti sér margar
skýringar. Gjaldeyrisvarnir Exista
á árunum 2007 og 2008 er ekki
ein þeirra. Þegar eign er keypt
er almennt skynsamlegt að lán sé
tekið í sömu mynt og tekju streymið
sem eignin skapar. Sé keypt íbúð
á Íslandi sem greiða á fyrir með
íslenskum launatekjum þá er vita-
skuld áhættuminnst að lánið fyrir
íbúðinni sé í krónum. Þetta hefur
reynslan kennt okkur nú, en auð-
vitað hlustuðu margir á sínum tíma
á spakvitra aðjúnkta og gilda þátta-
stjórnendur sem ráðlögðu almenn-
ingi eindregið að taka fasteignalán
í erlendum gjaldmiðli.
Eðlilegar varnir
Exista fékk lán í erlendri mynt
hjá um 40 erlendum og innlend-
um bönkum. Stundum gleymist
að meirihluti lána Exista var tek-
inn hjá erlendum bönkum. Exista
átti miklar eignir á Íslandi. Má
þar helst nefna Kaupþing, VÍS,
Símann og Lýsingu. Þegar af þess-
ari ástæðu ætti flestum að vera
ljóst að það var beinlínis andstætt
hagsmunum Exista að gengi krón-
unnar félli þar eð slíkt leiddi óhjá-
kvæmilega til versnandi afkomu
félaganna. Og þar sem lán Exista í
erlendri mynt voru umfram eignir
í erlendri mynt voru gerðir gjald-
miðlasamningar. Slíkir samningar
eru nú orðnir að skammaryrði hér
á landi. Slíkt er þó álíka gáfulegt
og telja það sérstakan ljóð á ráði
manns að hann tryggi sig fyrir
áföllum.
Gjaldmiðlasamningunum var
ætlað að tryggja að Exista gæti
keypt gjaldeyri á fyrirfram
ákveðnum dagsetningum á fyrir-
fram ákveðnu gengi svo að félagið
gæti greitt af skuldum sínum í
erlendri mynt með þeim hagnaði
sem til varð í íslenskum krónum af
rekstri fyrirtækjanna. Fyrir þessa
þjónustu bankanna greiddi Exista
háar þóknanir fyrirfram. Í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis er því
ranglega haldið fram að Exista hafi
þann 21. október 2008 selt stærstan
hluta þess gjaldeyris sem félagið
hafði aflað á grundvelli gjaldeyris-
samninganna. Staðreyndin er sú að
þegar til kastanna kom og krónan
gaf eftir þá gátu bankarnir ekki
afhent Exista þann gjaldeyri sem
þeir höfðu lofað. Þetta mátti hverj-
um manni vera ljóst enda á allra
vitorði að engan gjaldeyri var að
hafa í bönkunum þann 21. októ-
ber 2008. Hvernig þessi endaleysa
gat ratað inn í skýrsluna er mér
óskiljan legt.
Ein skýringin er þó eflaust sú
að enginn frá nefndinni talaði
við mig né nokkurn annan mann
innan Existasamstæðunnar við
gerð skýrslunnar. Fróðlegt væri að
heyra hvað umboðsmanni Al þingis
fyndist ef stjórnvald tæki upp á
því að viðhafa slík vinnubrögð við
rannsókn mála.
Spákaupmenn reyna að hagnast
á sveiflum í gjaldeyri, en ábyrgir
stjórnendur reyna að verja félög
sín fyrir slíkum sveiflum. Aldrei
var sú staða uppi að Exista gæti
hagnast á lækkun krónunnar,
spurningin var einungis hve mikið
væri hægt að draga úr tjóni vegna
mögulegrar lækkunar hennar. Þá
er rétt að geta þess að Fjármála-
eftirlitið skoðaði á árinu 2008
gjaldeyris varnir Exista, að ósk
Seðla bankans, og komst að því að
þær væru eðlilegar.
„Mikilvægasta rannsókn
allra tíma“
Ekki má skilja orð mín á þann veg
að allt hafi verið með besta móti
hjá Exista. Vitaskuld gerði ég mörg
mistök. Og augljóslega svo slæm,
að ég tapaði lunganum af eignum
mínum. Við rannsókn embættis
sérstaks saksóknara (ESS) verð-
ur þó að gera greinarmun á refsi-
verðu athæfi og ákvörðunum sem
reyndust slæmar. Mér sýnist marg-
ir beita vitneskju dagsins í dag við
mat á réttmæti ákvarðana sem
teknar voru í aðdraganda hrunsins.
Halda því svo fram að ákvarðanir
sem reyndust slæmar séu þar með
refsiverðar.
Á sama hátt og fjölmiðlar lof-
uðu bankana og viðskiptalífið
fyrir hrun dásama þeir nú ESS.
Handteknir menn eru gagnrýnis-
laust settir á forsíðurnar, allt eftir
pöntun frá ESS, og húsleitir fram-
kvæmdar nánast í beinni útsend-
ingu (dæmi eru um að fjölmiðlar
hafi verið mættir fyrir utan heim-
ili sakborninga á undan húsleitar-
teymi ESS!). Græninginn Eva Joly
gaf línuna. Hún sagði rannsóknina
á bankahruninu hér vera hvorki
meira né minna en „mikilvægustu
rannsókn allra tíma í Evrópu.“ Þá
sagði hún bankamenn vera glæpa-
menn og að jafnmikilvægt væri að
heyja baráttuna gegn þeim í fjöl-
miðlum og fyrir dómstólum. Egill
Helgason, Þorvaldur Gylfason og
fleiri fögnuðu vaskri framgöngu
Evu og minntu látalæti þeirra í
kringum hana óþyrmilega mikið
á hegðun bandarískra ungmeyja
þegar þær komast í námunda við
poppstirnið Justin Bieber.
Ákæruþrjótar fagna handtökum
„Fjármálaeftirlitið (FME) hefur
undir styrkri stjórn Gunnars Þ.
Andersen sent 67 mál til sérstaks
saksóknara“, skrifaði Þorvaldur
Gylfason nýverið í Fréttablað-
ið og bætti við „FME sendir ekki
frá sér önnur mál en þau, sem
það telur líkleg til að leiða til sak-
fellingar.“ Seinheppni Þorvaldar
ríður ekki við einteyming eins og
aðdáun hans á Taílandi forðum, því
að á sama tíma og grein Þorvald-
ar birtist, sátu héraðs dómarar við
skrif sýknudóms í hinu svokallaða
Exetermáli sem hófst einmitt með
kæru frá FME og tilheyrandi látum
í fjölmiðlum. Jafnframt er mér
kunnugt um að fjöldi kærumála frá
FME hafi verið látinn niður falla
hjá ESS og því eru fullyrðingar pró-
fessorsins kolrangar.
Ég hef ekki kynnt mér Exeter-
málið sérstaklega, en niðurstað-
an í héraðsdómi nú í vikunni ætti
að vera fjölmiðlamönnum sem
og haturs fullum ákæruþrjótum
áminning um að enginn er sekur
fyrr en sekt hans er sönnuð.
Handteknir menn eru gagnrýnislaust
settir á forsíðurnar, allt eftir pöntun frá
ESS, og húsleitir framkvæmdar nánast í
beinni útsendingu.
„Mikilvægasta rann-
sókn allra tíma“
Fjármál
Lýður
Guðmundsson
stjórnarformaður
Bakkavör Group
AF NETINU
Samúð umfram refsigleði
En í einu tilfelli sjá fjölmiðlar
ástæðu til að geta refsiramma,
væntanlega til að sýna alvöru
málsins. Þetta er sá hörmulegi
atburður sem gerðist á hóteli s.l.
laugardag. Fréttir segja að nú sé
stúlkan sem fæddi barnið komin í
einangrun á Litla Hrauni.
Spurning mín er þessi: Af hverju
þar? Er Hraunið eini staðurinn sem
hægt er að vista þessa ólánskonu?
Er þetta hluti af því að sýna refsi-
gleðina?
Þarf ekki þessi kona umfram allt
samúð?
Merkilegt að hlusta á þögn vel-
ferðarsamfélagsins.
http://blog.eyjan.is/gislibal/
Gísli Baldvinsson
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
RAFSTÖÐVAR
Arges einfasa Rafstöð HD6500
Bensín m/rafstarti 5,2KW
98.900,-
Arges einfasa Rafstöð HD3800
Bensín m/rafstarti 3,2KW
87.900,-
meniga
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
1
-1
5
1
8
Ég eiginlega bara elska Meniga. Án gríns. Í
hvert sinn sem ég kaupi í matinn sé ég fyrir
mér súluritið í Meniga þar sem sést hvað ég
er búin að eyða miklu af áætlun mánaðarins.
við að bera mína eyðslu saman við aðra.
Ég elska Meniga
“
„
Skráðu þig í Meniga í Netbanka Íslandsbanka
Matur Kr.