Fréttablaðið - 06.07.2011, Side 20

Fréttablaðið - 06.07.2011, Side 20
Menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir kvöldgöngu á fimmtudag þar sem menningarlífið í miðborginni verður kynnt á spænsku, ensku, pólsku, taílensku og litháísku. Lagt verður af stað frá Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, klukkan 20 og endað í Listasafni Reykjavíkur. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI MENNING „Við fórum frá Skógum um nýstikaða gönguleið meðfram vestari kvísl Skógár. Þar varð hver glæsifossinn eftir annan á vegi okkar og mikil náttúru- fegurð. Ég tel þetta vera leið sem allir með áhuga á göngu- ferðum ættu að setja í forgang,“ segir Halldóra Ingibergsdóttir um nýlega Jónsmessugöngu um Fimmvörðuháls sem hún fór með Útivist. Halldóra er mikil göngukona og er einmitt að leggja á Lauga veginn þegar þessar línur birtast. Hún kveðst hafa gengið á Fimmvörðu- háls bæði frá Skógum og Þórsmörk til að skoða gosið í fyrravor en nú í fyrsta sinn farið yfir Heljarkamb. „Það var auðvitað stórbrotið að vera þarna í kulda og roki með gosið í fullum gangi en upplifunin var enn meiri núna. Nú sá ég allt í nýju ljósi og eldfjöllin Magna og Móða í fyrsta sinn. Það var magn- að að standa á Magna við sólarupp- rás í heiðríkju og yndislegu veðri og horfa yfir á Móða.“ Enn rýkur úr eldgígum og opin sprunga er á svæðinu niður á gló- andi hraun að sögn Halldóru. Eins er mikil aska á göngu leiðinni, sérstaklega á sjálfum hálsinum. „En við vorum nánast í logni og nýlega hafði rignt, þannig að aðstæður voru eins góðar og þær geta orðið,“ lýsir hún. Halldóra segir hópinn hafa komið niður í Bása á níunda tím- anum að morgni eftir hálfs sólar- hrings göngu. „Við vorum ekk- ert að flýta okkur,“ segir hún. „Stoppuðum oft til að taka myndir og svo var Útivist alltaf að bjóða upp á hressingu öðru hverju og í skálanum á Fimmvörðuhálsi var ilmandi kjötsúpa á boðstólum. Þetta var mikil stemningsferð og vel að henni staðið á allan hátt.“ gun@frettabladid.is Á Magna við sólarupprás Eftir að hafa horft á magnað gos á Fimmvörðuhálsi í kulda og roki fyrir rúmu ári var það ljúf upplifun fyrir Halldóru Ingibergsdóttur gjaldkera að ganga á eldfjöllin nú á lognværri og bjartri Jónsmessunótt. Nafnlaus slæðufoss í fossaröðinni með- fram nýstikuðu leiðinni. Við Innri Fellsfoss í Skógá. Halldóra með Eyjafjallajökul í baksýn þar sem enn sjást gufubólstrar stíga upp frá eldgígnum. MYNDIR/SIGURPÁLL INGIBERGSSON Göngufólk við nýja fjallið Magna. ER VAGNINN RAFMAGNSLAUS ? Bíldshöfða 12 · 110 RVK · 577 1515 · skorri.is · Opið frá kl. 8:15 - 17:30 ÍSLENSKT KISUNAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli Harðfisktöflur sem kisur elska VINSÆLVARA DREKINN WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR (KUNG-FU)

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.