Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 06.07.2011, Blaðsíða 26
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð 228 24% 739 punktar er skuldatryggingaálag ríkisins. raungengi íslensku krónunnar er nú 24% undir meðaltali áranna 1980 til 2010. fjöldi skemmtiferðaskipa sem hafa heimsótt Reykjavík frá árinu 2000. DV greindi frá því í vikunni að þeir Friðrik Sophusson, stjórnarformaður Íslandsbanka, og pistla- og bókahöfundurinn Ólafur Arnarson hefðu tekið netta rimmu um bankamál við grænmetisborðið í Nóatúni á laugardag. Deiluefnið var nokkurra vikna gamall pistill Ólafs þar sem hann hélt því fram að nýju bankarnir væru innheimtustofnanir fyrir þá vogunarsjóði sem fyrirferðarmiklir eru í hópi kröfuhafa föllnu bankanna. Kröfuhafar eiga 95 prósent hlut í Íslandsbanka og eru bandarískir vogunarsjóðir stór hluti þeirra. Rifist yfir tómötum Ekki liggur fyrir í hvaða verslun Nóatúns rimma þeirra Friðriks og Ólafs átti sér stað. Raunar er engu líkara en að Nóatún í Austurveri við Háaleitisbraut sé orðið að vin í eyðimörkinni fyrir forkólfa í viðskiptalífinu. Á góðu laugardagseftirmiðdegi má þar sjá hjónin Kristin Björnsson, fyrr verandi for- stjóra Skeljungs, og Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi dóms- og kirkjumála ráðherra og forseta Alþingis, og Rakel Sveinsdóttur, fyrrverandi framkvæmda stjóra Creditinfo á Íslandi. Þá hefur þar brugðið fyrir þeim Páli Harðarsyni, for stjóra Kauphallarinnar, Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, og Steinunni Guðbjartsdóttur, formanni skilanefndar hins fallna banka. Ekki hefur sést til þeirra Lárusar og Steinunnar karpa yfir kálinu í grænmetisborðinu en slitastjórnin stefndi Lárusi og fleirum í maí í fyrra fyrir meint fjársvik og krafðist 258 milljarða króna í bætur. Ferskur staður AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR Rizzoli & Isles How I Met Your Mother Seven Pounds Body of Lies When in Rome The Last Song Jumper Damages The Closer True Blood Cougar Town Sons of Anarchy Hot in Cleveland The Good Guys Off the Map frá þeim sem færðu okkur Grey’s Anatomy So You Think You Can Dance Vinsælasti þátturinn vestanhafs Grillskóli Jóa Fel Þú færð Stöð 2, Stöð 2 bíó og Stöð 2 extra frá aðeins 229 kr á dag allt um grillið í sumar ...OG HVAR SEM ER! HORFÐU HVENÆR SEM ER... færðu áskriftina upp í bústað þér að kostnaðarlausu Nýttu þér Stöð 2 frelsi Allt sem þú þarft Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing Fjölmiðlamaðurinn Kristinn Jón Arnarson tók við starfi sem ritstjóri vefs Vodafone um síðustu mánaðamót. Hann var áður hjá AP almannatengslum. Kveða mun við nýjan tón hjá Vodafone, en í bígerð er að hanna vefinn upp á nýtt og gera hann aðgengilegri fyrir notendur. Kristinn Jón er ekki ókunnur nýju efni. Hann er bassaleikari hljómsveitarinnar Stolið, sem gaf út plötu fyrir ellefu árum. Hljómsveitin hefur legið í dvala en tók upp þráðinn fyrir ári og hefur verið að æfa nýtt efni. Nýr tónn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.