Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 06.07.2011, Qupperneq 32
20 6. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR Tónlist ★★★ Leiðin til Kópaskers Hnotubrjótarnir Notalega hrjúfur Áður en Heimir Már Pétursson gerðist fréttamaður var hann söngvari í hljómsveitinni Reflex sem margir muna vel eftir frá tón- listarhátíðinni Melarokki sumarið 1982. Heimir hefur undanfarin ár lítið komið nálægt tónlist að því undanskildu að hann hefur samið texta fyrir bróður sinn Rúnar Þór. Leiðin til Kópaskers markar því endurkomu hans í tónlistina. Heimir Már syngur lögin á plöt- unni og semur þar að auki flesta textana og nokkur lög. Þór Eldon er með honum í Hnotubrjótunum. Hann spilar á gítar og hljómborð, útsetur, tekur upp og hljóðblandar, en að auki koma fjölmargir hljóðfæraleikarar við sögu, þar á meðal Ari Eldon bassaleik- ari, Egill Örn Rafnsson trommuleikari og Óskar Guðjónsson saxófónleikari. Leiðin til Kópaskers er mjög persónuleg plata og greinilegt að hún er ekki síst gerð aðstandendum til ánægju. Lagavalið er fjölbreytilegt. Þarna eru m.a. gömul Reflex-lög eins og Að takmörkuðu leyti og Myrkir dagar, tökulög með íslenskum textum (Ne me quitte pas, You Belong to Me, Love Is Real og You Got to Hide Your Love Away) og nýrri lög. Heimir Már er ágætis textahöfundur og textarnir gefa plötunni gildi. Útsetningarnar eru fínar. Þetta eru frekar hráar rokkútsetningar sem hæfa lögunum og söng Heimis Más vel, en hann hefur notalega hrjúfa rödd sem minnir á bróður hans. Hljóðfæraleikararnir skila sínu vel og sýna oft fín tilþrif, t.d. Þórir Baldursson á Hammondinn í Vor í Vaglaskógi og Vilberg Viggósson á píanó í Ne me quitte pas. Á heildina litið er þetta ágætis plata. Tilgerðarlaus og skemmtileg. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Gamli Reflex-söngvarinn snýr aftur á skemmtilegri plötu. Nokkrar af litríkari tónleikasveit- um landsins koma fram á Faktorý við Smiðjustíg í kvöld þegar árlegt skattheimtukvöld Reglu hins öfuga pýramída verður haldið. Hljómsveitirnar sem troða upp eru dub/reggae sveitin Ojba Rasta, harðhausarnir í Swords of Chaos, rokktríóið Me, The Slumbering Napoleon, Just Another Snake Cult og tvíeykið háværa The Fist Fokkers. Í fréttatilkynningu segir að síðastnefnda sveitin hafi æft sérstaka dagskrá sem aðeins verði flutt í kvöld en á henni er að finna lög með þekktum sveitum á borð við Tears for Fears og The Human League. Á milli tónleika spilar plötusnúðurinn Benson is Fantastic. Miðaverð er þúsund krónur og herlegheitin hefjast um klukkan 20.30. Feitt gigg á Faktorý REGGAE Á FAKTORÝ Hljómsveitin Ojba Rasta treður upp á Faktorý við Smiðju- stíg í kvöld. Hið ótrúlega hefur gerst; Ashley og Cheryl Cole eru byrjuð aftur saman. Breskir fjölmiðlar vita varla í hvorn fótinn þeir eiga að stíga því endur- nýjaðar örvar Amors koma eins og þruma úr heiðskíru lofti. Knattspyrnukappinn Ashley Cole og söng fuglinn Cheryl Cole eru byrjuð aftur saman. Breska pressan fékk það staðfest um helgina og ætlar Ashley að biðja Cheryl um að giftast sér. Parið lét vel að hvort öðru í afmælis- veislu Cheryl um helgina og þau skiptust á kossum fyrir framan vini og vandamenn, þar á meðal móður Cheryl, sem er víst ekki par hrifin af ráðahagnum. Hún er sannfærð um að Ashley sé einskis verður kvennabósi. Samkvæmt breska dagblaðinu Daily Mail kviknaði ástar- eldurinn milli Ashley og Cheryl nokkru áður en söngkonan hóf störf í hinum bandaríska X-Fac- tor. Sambandið náði síðan nýjum hæðum þegar Cheryl flutti út til Bandaríkjanna. „Hún var ekki með sjálfri sér í upp tökunum, allir sáu það, líka Simon Cowell,“ segir heimildarmaður Daily Mail. Bresku blöðin hafa gert því skóna að aðal ástæðan fyrir því að Cheryl og Ashley hafi ákveðið að gefa sambandinu annað tæki- færi sé sú að þau þrái bæði að eignast börn. Ashley og Cheryl hættu saman fyrir níu mánuðum. Ashley hafði þá verið að gamna sér með öðrum stúlkum og sent þeim myndir af sjálfum sér fá- klæddum sem rötuðu síðan á for- síður blaðanna. Leikmaður enska landsliðsins og vinstri bakvörð- ur Chelsea átti í kjöl farið ákaf- lega erfitt bæði innan og utan vallar en aðdáendur annarra liða bauluðu óspart á hann. Ferill Cheryl blómstraði hins vegar og hún virtist vera að ná toppnum þegar henni var boðið dómara- starf í ameríska X-Factornum. Það reyndist hins vegar skamm- vinnur vermir og þá kom Ashley henni til bjargar, fæddi hana og klæddi þegar heimurinn virtist hafa snúið við henni baki. freyrgigja@frettabladid.is Ashley nær í Cheryl aftur SAMAN Á NÝ Ashley Cole og Cheryl eru byrjuð aftur saman. Ashley hyggst biðja Cheryl um að kvænast sér. ZOOKEEPER 4, 6 og 8 TRANSFORMERS: DARK OF THE MOON 4, 7 og 10 BRIDESMAIDS 4, 6.30, 9 og 10.10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar ÁLFABAKKA EGILSHÖLL 12 12 12 12 12 12 12 12 12 12 10 10 10 10 10 L L L L L V I P AKUREYRI 12 12 KRINGLUNNI SELFOSS TRANSFORMERS 3 í 3D kl. 5 - 8 - 10 TRANSFORMERS 3 í 2D kl. 5 - 8 BEASTLY kl. 8 SUPER 8 kl. 5:40 - 8 - 10:20 THE HANGOVER 2 kl. 8 - 10:20 KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 3D kl. 6 KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 2D kl. 6 PIRATES OF THE CARRIBEAN 4 í 2D kl. 5 - 8 - 10:40 TRANSFORMERS 3 kl. 6 - 9 SUPER 8 kl. 6 - 8 - 10:20 TRANSFORMERS 3 3D kl. 4.45 - 6.45 - 8 - 10 SUPER 8 kl. 8 - 10.30 MR. POPPER’S PENGUINS kl. 5.30 - 8 HANGOVER PART II kl. 10.20 KUNG FU PANDA 2 3D ísl tal kl. 4.45 PIRATES OF THE CARIBBEAN 3D kl. 5  E.T WEEKLY HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS Jaw“ dro- ppingly Amazing 3D!!!” Harry Knowles, A ntItCool.comi T“ he b st 3D s ‘ A ar’e ince vat ” Sc ott Ma tz, A ywl d n ccess Hol oo isoibMSA . t þér miða á gðu gyr TRANSFORMERS 3 í 3D kl. 6 - 8 - 9 (Power kl.11:10) BEASTLY kl. 6 - 10:20 SUPER 8 kl. 8 KUNG FU PANDA 2 M/ ísl. Tali Sýnd í 3D kl. 6 TRANSFORMERS 3 kl. 8 - 10:30 (Power kl.11:10) BRIDESMAIDS kl. 8 EKKI TALA VIÐ DÝRIN...NEMA ÞAU TALI VIÐ ÞIG FYRST! SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR -.T.V., SÉÐ & HEYRT „FRÁBÆR!“ B.G. - MBL. NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á T.V. - KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ & HEYRT FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS ZOOKEEPER KL. 6 - 8 L BAD TEACHER KL. 6 - 8 - 10 14 BRIDESMAIDS KL. 10 12 ZOOKEEPER KL. 5.45 - 8 - 10.15 L BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 MR. POPPER´S PENGUINS KL. 5.50 - 8 - 10.10 L X-MEN: FIRST CLASS KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 ZOOKEEPER KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15 L ZOOKEEPER Í LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 L TRANSFORMERS 3 3D KL. 5 - 8 - 11 12 TRANSFORMERS 3 3D Í LÚXUS KL. 8 - 11 12 BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 MR. POPPER´S PENGUINS KL. 3.40 - 5.50 L BRIDESMAIDS KL. 8 - 10.40 12 KUNG FU PANDA 2 ÍSL TAL 3D KL. 3.40 L 5% „...MIKIL ÁGÆTIS SKEMMTUN FYRIR FJÖLSKYLDUNA“ B.B. - MBL.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.