Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 27.07.2011, Qupperneq 4
27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR4 LÖGREGLUMÁL Grunur leikur á að rúmlega fertugur karlmaður hafi notað hnúajárn þegar hann réðst á mann um sextugt í Grindavík og slasaði hann aðfaranótt síðastlið- ins laugardags. Það var um fjögurleytið ofan- greinda nótt sem árásarmaðurinn mætti að heimili eldri mannsins. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins voru útidyrnar ólæstar. Húsráðandi sá hreyfingu fyrir utan húsið, hugðist hlaupa fram í forstofu og læsa því. Hann varð of seinn og því komst gesturinn óboðni inn. Hann réðst þegar á húsráðandann og veitti honum áverka. Lögreglan á Suðurnesj- um var kvödd á vettvang skömmu síðar. Þar var húsráðandinn fyrir og blæddi úr höfði hans. Einnig var hann töluvert marinn. Árásarmaðurinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að. Hann býr skammt frá fórnar- lambinu og hélt lögregla til heim- ilis hans þar sem hann var hand- tekinn og hald lagt á hnúajárn. Eldri maðurinn leitaði sér aðhlynningar á sunnudaginn. Árásarmaðurinn var yfirheyrður og síðan sleppt. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins var undanfari líkams- árásarinnar samskipti mannanna á Facebook, þar sem yngri mað- urinn hafði lofað ódæði norska hryðjuverkamannsins Anders Breivik, en eldri maðurinn beðið hann að láta af slíku. Samskiptin leiddu til þess að yngri maðurinn hótaði þeim eldri og fjölskyldu hans lífláti. Að sögn lögreglunnar á Suður- nesjum er málið rannsakað sem stórfelld líkamsárás þar sem grun- ur leikur á að barefli hafi verið beitt. Fórnarlambið vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. - jss Skiptar skoðanir á Facebook á norska hryðjuverkamanninum Anders Breivik undanfari líkamsárásar: Talinn hafa barið manninn með hnúajárni LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM Rann- sakar árásarmálið. GENGIÐ 26.07.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 221,7504 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,41 114,95 187,59 188,51 165,47 166,39 22,198 22,328 21,324 21,450 18,223 18,329 1,4647 1,4733 183,98 185,08 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is Fallegar gjafaumbúðir Hentar öllum Gildir hvar sem er Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is Gjafakortið sem gildir alls staðar Þú velur upphæðina en viðtakandinn velur gjöfina. SKÓLAR Fjárhagsstaða Ísaksskóla kann að vænkast eftir að Lands- bankinn féllst á að gefa eftir um 76 milljónir króna af um 260 milljóna skuld skólans. Skilyrði er þó að Ísaksskóli nái að selja húsnæði sitt fyrir 184 milljónir króna sem fari í að greiða upp bankaskuldina. Ísaksskóli óskar nú eftir því að Reykjavíkurborg kaupi skólahús- næðið fyrri þessa upphæð og leigi síðan skólanum. Eins vill skólinn fá 15 milljóna króna lán frá borginni og fella afborganirnar inn í húsaleiguna. Skólinn eigi síðan forkaupsrétt að húsinu innan fimmtán ára á sama verði að viðbættum verðbótum. - gar Staða Ísaksskóla að vænkast: Landsbankinn afskrifar skuld VIÐ ÍSAKSSKÓLA Vill selja borginni skólahúsið fyrir 184 milljónir. NEYTENDUR Kvartanir bárust til Neytendastofu vegna svonefndra Tax-Free daga Hagkaupa. Kvartanirnar sneru að því að neytendur voru óánægðir með að fá aðeins 20,32 prósenta afslátt af vörum á Tax Free-dögum, en þeir töldu sig eiga rétt á 25,5 prósenta afslætti, sem er prósentuhlutfall virðisaukaskatts. Frá þessu er sagt á vef Neytendasamtakanna. Neytendastofa segir í úrskurði að nauðsynlegt sé að tilgreina prósentuhlutfall afsláttar skýr- lega, bæði á sölustað og í auglýs- ingum, þannig að fram komi að afslátturinn nemur í raun 20,32 prósentum. Engar athugasemdir voru gerðar við notkun Hagkaupa á hugtakinu Tax Free. - sv Kvartað vegna Hagkaupa: Tax-Free er ekki 25,5 prósent HAGKAUP Tax-Free afsláttur Hagkaupa nemur ekki 25,5 prósentum heldur 20,32 prósentum. BANDARÍKIN Reykingar á hvíta tjaldinu hafa minnkað um 70 pró- sent á undanförnum sex árum. Þetta eru niðurstöður könnunar bandarísku samtakanna Breathe California. Í ár hefur tóbak sést 595 sinnum í bandarískum stór- myndum og er það 70 prósenta minnkun frá árinu 2005. Í helm- ingi stórmyndanna sjást engar sígarettur í ár en árið 2005 sáust þær ekki í þriðjungi myndanna. Ástæðan kann að vera sú að kvikmyndaframleiðendur eins og Time Warner og Disney hafa sett bann við sígarettum í myndum fyrir börn og unglinga. - ibs Bandarísk könnun: Færri reykja á hvíta tjaldinu MAROKKÓ, AP Talið er að 78 manns hafi látið lífið þegar herflutn- ingavél fórst í Marokkó í gær. Leit að líkum stóð yfir í gær- kvöldi og voru þeir þrír sem lifðu slysið af alvarlega slasaðir. Ríkisfréttastofan sagði í gær að 60 hermenn, tólf óbreyttir borgarar og níu manna áhöfn hefðu verið um borð. Aðeins höfðu 42 lík fundist og ekki ljóst hvernig herinn gat gefið út til- kynningu um að 78 hefðu látist. - þeb Flutningavél fórst í Marokkó: 78 taldir látnir eftir flugslys NÁTTÚRA Magn frjókorna í and- rúmsloftinu í Reykjavík hefur sveiflast mikið það sem af er sumri. Um tíma leit út fyrir að frjókornamagnið myndi jafnast á við metsumarið í fyrra en síðustu daga hefur það heldur minnkað. „Síðustu daga hafa frjótölur verið nokkuð lágar ef frá er skilinn laug- ardagurinn þegar hvessti nokkuð. Í dag [í gær] fór svo að rigna þann- ig að ef veðr- ið helst svona næstu daga geta ofnæmissjúk- lingar andað léttar í bili. En svo er reyndar ástandið verra úti á landi, á Akureyri og Egilsstöð- um þar sem er gott veður núna,“ segir Margrét Hallsdóttir sem sér um frjómælingar hjá Nátt- úrufræðistofnun. Það eru aðallega grasfrjó sem valda fólki óþægindum á þessum tíma ársins. Birkifrjó og súrfrjó valda einnig ofnæmisviðbrögð- um en þau eru mest áberandi í lok maí og júní. Kuldatíðin í upp- hafi sumars gerði það hins vegar að verkum að lítið var af frjóum í upphafi sumars. „Sé sumarið í ár borið saman við sumarið í fyrra byrjuðu háar frjótölur hér töluvert seinna en í fyrra. Það hefur vafalaust verið vegna þess að það var kaldara í byrjun sumars,“ segir Margrét. Spurð um ástæður mikils magns grasfrjós um miðjan mánuðinn segir Margrét að þurrkatíð hafi haft mest um það segja. Þá hafi einnig sennilega haft áhrif að sláttur á túnum borgarinnar hefur verið stopulli en áður. Þrátt fyrir að frjótölur hafi nú dottið niður segir Margrét þá sem glíma við frjókornaofnæmi þó ekki alveg sloppna. „Það er mjög oft toppur á þessum tíma í lok júlí ef það er þurrt. En svo kemur stundum toppur aftur í fyrstu eða annarri vikunni í ágúst,“ segir Margrét og bætir við: „Það fer í raun eftir því hvort það verð- ur þurrt eða ekki. Verði þurrt og vindasamt má búast við miklu af frjókornum aftur.“ Til að frjókorn valdi ofnæmis- viðbrögðum þurfa þau að vera til staðar í miklu magni en einnig að innihalda ofnæmisvaka sem er eggjahvítuefni sem líkami fólks með ofnæmi skynjar sem hættu- legt efni, segir á vef Náttúru- fræðistofnunar. magnusl@frettabldid.is Sveiflukennt sumar hjá frjókornunum Magn frjókorna í Reykjavík hefur mælst lítið síðustu daga en um miðjan júlí var útlit fyrir að heildarmagn yrði svipað og í fyrra sem var metsumar. Kuldatíð í byrjun sumars og minni sláttur á túnum en áður hafa haft áhrif á frjómagn. MARGRÉT HALLSDÓTTIR FRÁ MIKLATÚNI Þurrt og vindasamt veður er kjörveður fyrir frjókorn. Til að þau valdi ofnæmisviðbrögðum þarf mikið magn en auk þess þurfa þau að innihald ofnæmis- vaka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 28° 21° 24° 23° 26° 24° 21° 21° 26° 22° 27° 30° 33° 24° 23° 23° 24°Á MORGUN víða 5-10 m/s, hvassara SA-til. FÖSTUDAGUR víða 3-10 m/s 15 16 13 14 12 11 11 14 13 13 6 6 7 11 5 4 5 5 87 9 10 13 11 14 16 12 13 14 12 15 19 BEST NA-TIL Gróðurinn á V- og SV- landi ætti að vera kátur eftir þessa viku því það lítur út fyrir ein- hverja vætu áfram næstu daga. Dreg- ur heldur úr vindi í dag. Nokkuð bjart A-til og hlýjast þar sérstaklega þegar sólin nær að ylja. Snjólaug Ólafsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.