Fréttablaðið - 27.07.2011, Blaðsíða 48
27. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR36
sport@frettabladid.is
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN spilar væntanlega sinn fyrsta leik með AEK í dag þegar liðið mætir tyrkneska
liðinu Karabükspor í æfingaleik í Slóveníu. Eiður Smári mun hafa tekið þátt í sex æfingum með AEK-liðinu fyrir
leikinn, þremur á mánudaginn, tveimur í gær og svo einni í morgun. Það er búist við því að Eiður byrji í fram-
línunni með Jose Carlos nýjum spænskum framherja liðsins.
FÓTBOLTI „Það er búið að vera
mikið leikjaprógramm. En við
mættum alveg tilbúnir í leikinn
og náðum að skora þrjú mörk í
fyrri hálfleik úr föstum leikatrið-
um. Það kláraði þetta. Ég held að
fyrsta markið hafi slegið þá út af
laginu,“ sagði Guðmundur Reynir
um sigurinn gegn Blikum.
Guðmundur Reynir, sem allir
í póstnúmeri 107 og víðar þekkja
sem Mumma, segir stemninguna
í leikmannahópi KR ástæðuna
fyrir frábærum árangri liðsins
í sumar.
„Mórallinn er frábær í lið-
inu og Rúni (Rúnar Kristinsson,
þjálfari KR) bæði heldur okkur á
tánum og sér til þess að mórall-
inn sé í lagi. Svo er hann líka frá-
bær í því að leggja upp leikina á
réttan hátt,“ segir Mummi.
Aðspurður hvort mórallinn sé
ekki svo góður vegna þess hve
vel gengur segir hann:
„Ég myndi segja að við værum
að vinna af því að mórallinn og
liðsheildin eru svo sterk. En auð-
vitað gerir það liðsheildina og
móralinn enn betri að vinna. En
svo er Rúnar auðvitað mjög stór
hluti af þessu.“
Mummi hefur komið við sögu í
öllum deildarleikjum KR í sumar
og spilað einstaklega vel. Líklega
aldrei betur.
„Ég held ég passi mjög vel inn
í liðið. Mér finnst mjög þægi-
legt að spila með Grétar hægra
megin við mig og Skara (Óskar
Örn) fyrir framan mig á kant-
inum. Svo eru miðjumennirnir
duglegir að detta í stöðu fyrir
mig þegar ég fer fram. Ég er í
mjög góðu formi og hef gaman af
þessu,“ segir Mummi sem virkar
þindarlaus í hlaupum sínum upp
og niður völlinn. Hann er sam-
mála því að hlaupin séu hans
styrkleiki.
„Mér finnst ég vera bestur í
því að hlaupa mikið. Ég hleyp
mikið í leikjunum og það nýt-
ist mér að þreytast minna en
andstæðingurinn. Svo myndi
ég segja að ég væri með ágætis
hraða og áræðni,“ segir Mummi
sem veit hvar hann þarf að bæta
sig á vellinum.
„Ég get alltaf bætt varnarleik-
inn. Ég er ekki orðinn 100 pró-
sent í honum en finnst ég samt
hafa bætt mig mikið.“
Mummi er örvfættur og blaða-
maður spyr Mumma hvort hann
geti ekki bætt hægri löppina eitt-
hvað og uppsker hlátur.
„Ég mætti líka bæta það. Ég er
mjög lélegur með hægri, vægast
sagt og nota hægri fótinn í mesta
lagi einu sinni til tvisvar í leik,“
segir Mummi og hlær.
Haustið 2008 hélt Mummi í
atvinnumennsku til GAIS í Sví-
þjóð. Með í för var Guðjón Bald-
vinsson en óhætt er að segja að
þeir félagar hafi ekki slegið í
gegn líkt og þeir hafa gert í KR-
búningnum í sumar.
„Við Gaui fórum þarna út.
Síðan kom nýr þjálfari í fyrsta
mánuðinum og við náðum ein-
hvern veginn ekki að slá í gegn
undir hans leiðsögn. Fljótlega fór
ég aftur að láni til KR. Þetta ein-
hvern veginn gekk bara ekki.“
Undirritaður hleraði vini
Mumma í Vesturbænum sem
sögðu honum að Mummi væri
afar heimakær. Hugsanlega
hefði hann engan áhuga á að fara
í atvinnumennsku yfir höfuð.
„Nei, mig langar nú aftur í
atvinnumennsku þó svo mér
finnist gott að vera á Íslandi.
Ég stefni á að komast aftur út á
næstunni. Hvort það verði í ár
eða á næsta ári, það verður að
koma í ljós,“ segir Mummi sem
undanfarið hefur verið orðaður
við norska liðið Brann.
Vi nst r i ba k va rð a rst að a
íslenska landsliðsins í knatt-
spyrnu er annáluð vandræða-
staða. Miðað við frammistöðu
Mumma í sumar gerir hann til-
kall til landsliðssætis.
„Ég er ekki mikið að velta því
fyrir mér en það hlýtur að vera
stefnan hjá öllum knattspyrnu-
mönnum að komast í landsliðið.
Ég ætla að sjá hvað gerist í því.“
Mummi er hæfileikaríkur
píanóleikari og gaf út sinn fyrsta
geisladisk á síðasta ári.
„Það er fullrólegt í tónlistinni
í augnablikinu. Ég er bara aðeins
að trúbadorast. Aðeins að leika
mér. Það er ekki von á næstu
plötu bráðlega en hún hlýtur að
koma einhvern tímann.“
Hann segist lítið hafa gert af
því að skemmta í gleðskap með
félögum sínum í KR-liðinu.
„Nei, við höfum gert lítið af því
að detta í gítarstemningu í KR-
liðinu. En kannski mæti ég ein-
hvern tímann með gítarinn inn í
klefa.“
Mummi er annáluð svefnpurka
og mætti halda miðað við sumar
sögur að hann hafi varið meiri
tíma ævi sinnar sofandi en vak-
andi.
„Mér finnst ágætt að sofa, ég
neita því ekki. Sérstaklega í svona
æfingaferðum þegar maður hang-
ir uppi á hótelherbergi og hefur
ekkert að gera. Þá finnst mér fínt
að sofa, “ segir Mummi sem úti-
lokar ekki að svefninn sé ávísun
á árangur hans. Það sé hollt fyrir
mann að sofa segir hann meir í
gríni en alvöru.
Líklegt er að Mummi hafi lagt
aftur augun í gær en fram undan
var síðdegisæfing með óhefð-
bundnu sniði.
„Við förum í spa í World Class.
Það er bara lúxus,“ sagði vinstri
bakvörðurinn en mikið álag hefur
verið á KR-liðinu undanfarið og
ekkert lát á því á næstu vikum.
kolbeinntd@365.is
Vægast sagt lélegur með hægri
Guðmundur Reynir Gunnarsson, bakvörður KR-inga, hefur farið á kostum með liðinu í sumar. Hann segir
sig langa í atvinnumennsku hvenær sem af því verður. Guðmundur Reynir átti frábæran leik í 4-0 sigrinum
á Breiðablik í 12. umferð Pepsi-deildar og er besti leikmaður umferðarinnar að mati Fréttablaðsins.
ÆFÐI DANS ÞEGAR HANN VAR LÍTILL Guðmundur Reynir neitar því að hann hugsi
mikið um dansinn þegar hann leikur listir sínar með knöttinn. Hann útilokar ekki að
danssporin séu í undirmeðvitundinni hjá honum. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
FÓTBOLTI Valsmenn fóru illa með
góða stöðu þegar þeir urðu manni
fleiri á móti FH-ingum í Pepsi-
deildinni í fyrrakvöld og töpuðu
þar með dýrmætum stigum í
toppbaráttunni. Þetta er ekki í
fyrsta skiptið í sumar sem Vals-
liðið tapar leik þar sem liðið spil-
ar ellefu á móti tíu í langan tíma.
Valur tapaði 0-1 á móti ÍBV í 3.
umferð þrátt fyrir að vera 11 á
móti 10 allan seinni hálfleikinn.
Þegar betur er að gáð kemur í
ljós að Valsliðið er nú eina liðið
í Pepsi-deildinni sem hefur ekki
skorað mark ellefu á móti tíu.
Valsmenn hafa verið manni yfir
í 78 mínútur og tapað þeim kafla
0-3. Aðeins eitt annað lið er í
mínus, Víkingar voru í 62 mín-
útur manni yfir á móti Val en töp-
uðu leiknum 1-2. Hér fyrir neðan
má sjá hvernig Pepsi-deildarliðin
hafa nýtt þá stöðu að vera manni
yfir. - óój
Karlalið Vals í Pepsi-deildinni:
Skora einir ekki
manni fleiri
GUÐJÓN PÉTUR LÝÐSSON Valsmenn eru
ekki öflugir 11 á móti 10. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Lið 12. umferðarinnar
Fréttablaðið hefur valið þá leikmenn
sem stóðu sig best í sínum stöðum í
12. umferð Pepsi-deildar karla:
Úrvalsliðið:
Hannes Þór Halldórsson, KR
Skúli Jón Friðgeirsson, KR
Haraldur Guðmundsson, Keflavík
Guðm. Reynir Gunnarsson, KR
Finnur Ólafsson, ÍBV
Bjarni Guðjónsson, KR
Tómas Þorsteinsson, Fylki
Gunnar Már Guðmundsson, Þór
Matthías Vilhjálmsson, FH
Dávid Disztl, Þór
Hilmar Geir Eiðsson, Keflavík
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar
Breiðabliks sitja aðeins í 8. sæti
eftir fyrstu 12 umferðir Pepsi-
deildar karla og þar spilar stórt
hlutverk slök frammistaða
liðsins á útivelli enda hafa 87
prósent stiga Blika komið í hús í
Kópavogi.
Blikar eru aðeins búnir að ná
í 2 stig af 18 mögulegum í sex
fyrstu útileikjum sínum og að
auki hafa Blikar tapað báðum
útileikjum sínum í Evrópukeppni
og bikarkeppni með markatölunni
1-9. Blikar hafa tapað 6 af 8
útileikjum sumarsins í öllum
keppnum og markatalan er 7-25
þeim í óhag.
Breiðablik er líka það lið í
Pepsi-deildinni sem er með verst-
an árangur á útivelli. Víkingur
hefur einnig aðeins fengið tvö
stig en er með einu marki betri
markatölu. - óój
Íslandsmeistarar Breiðabliks:
Verstir allra
liða á útivelli
Markatala liða 11 á móti 10:
+3 Breiðablik (í 95 mínútur manni yfir) 3-0
+2 FH (68) 4-2
+2 Grindavík (58) 2-0
+2 KR (99) 3-1
+1 Keflavík (3) 1-0
+1 Fram (11) 1-0
-1 Víkingur (62) 1-2
-3 Valur (78) 0-3
ÍBV, Stjarnan, Þór Ak.og Fylkir hafa ekki
spilað manni yfir í sumar.
FÓTBOLTI Valur vann Fylki örugg-
lega 4-0 á heimavelli sínum í
Pepsí-deild kvenna í gærkvöldi þar
sem liðið lék við hvern sinn fingur,
sérstaklega í fyrri hálfleik þegar
Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði
þrennu.
Augu flestra voru á Hólm-
fríði Magnúsdóttur sem er komin
heim á ný eftir atvinnumennsku í
Bandaríkjunum en Hólmfríður sat
á varamannabekknum á meðan
Valur yfirspilaði Fylki í fyrri hálf-
leik og gerði út um leikinn, 3-0.
„Liðið spilaði frábærlega.
Aðstæður voru erfiðar, mikill
vindur þannig að við ákváðum að
halda boltanum á jörðinni, spila
einfalt og vel. Mörkin voru gull-
falleg og liðið spilaði bæði vörn og
sókn frábærlega,“ sagði Gunnar
Rafn Borgþórsson þjálfari Vals að
leiknum loknum.
Hólmfríður kom inn á þegar
tæpur hálftími var eftir og var
ljóst að hún ætlaði að skora í fyrsta
leik sínum í rauðir treyju Vals þar
sem hún sótti að marki í hvert
skipti sem hún fékk boltann.
„Ég ætlaði mér að skora í fyrsta
leiknum fyrir Val, það var alveg
klárt og það tókst. Það var gaman
að opna markareikninginn með
nýju liði. Ég er komin hingað til
að hjálpa Val að vinna alla titlana,“
sagði Hólmfríður.
Það var mikill vindur og kalt á
vellinum í gær en Hólmfríður vill
það frekar en hitann og rakann í
Philadelphiu . „Það er búið að vera
of heitt úti og því var gott að koma
heim í ferska íslenska loftið og
íslenska veðrið,“ sagði Hólmfríð-
ur að lokum.
„Sóknarleikur Vals í fyrri hálf-
leik var stórkostlegur og þær gjör-
samlega slátruðu okkur. Ég hefði
viljað verjast vel en ég tek það
ekki af Val að sóknarleikurinn
var til fyrirmyndar. Við vissum
að þær myndu sækja svona og við
ætluðum að loka á þær en það eru
mikil gæði í Valsliðinu og það sást
mjög vel,“ sagð Jón Páll Pálmason
þjálfari Fylkis eftir leik en lið hans
virkaði andlaust gegn beittu liði
Vals í fyrri hálfleik þrátt fyrir að
Valur léki gegn sterkum vindinum.
Fylkir þétti varnarleikinn
hjá sér í seinni hálfleik og gerði
Valur lítið sóknarlega þar til
Gunnar gerði tvöfalda skiptingu
og Hólmfríður og Caitlin Miskel
komu inn á. „Einn munur á Val
og Fylki í dag var að Valur skipti
inn á tveimur atvinnumönnum en
við skiptum inn á þremur kjúk-
lingum,“ sagði Jón Páll en Valur
er tveimur stigum á eftir toppliði
Stjörnunnar í efsta sæti deildar-
innar en Fylkir er sem fyrr um
miðja deild. -gmi
Valskonur yfirspiluðu Fylki með frábærum sóknarleik og minnkuðu forskot Stjörnunnar á toppnum í tvö stig:
Hólmfríður skoraði í fyrsta leiknum með Val
TÍU MÖRK Í SUMAR Kristín Ýr Bjarnadóttir skorar hér eitt af þremur mörkum sínum á
móti Fylki í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG