Fréttablaðið - 27.07.2011, Side 49
MIÐVIKUDAGUR 27. júlí 2011 37
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
HJÓLUM
HJÓLADEILDIN ER Í HOLTAGÖRÐUM.
TILBOÐIÐ GILDIR TIL VERSLUNARMANNAHELGAR.
25%
NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS
Pepsi-deild kvenna
Afturelding-ÍBV 2-1
1-0 Vaila Barsley, 1-1 Vesna Smiljkovic, 2-1 Íris
Dóra Snorradóttir.
Valur-Fylkir 4-0
1-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir (19.), 2-0 Kristín Ýr
Bjarnadóttir (28.), 3-0 Kristín Ýr Bjarnadóttir
(36.), 4-0 Hólmfríður Magnúsdóttir (86.).
Breiðablik-KR 3-2
1-0 Fanndís Friðriksdóttir (32.), 2-0 Greta
Mjöll Samúelsdóttir (58.), 2-1 Sonja Björk
Jóhannsdóttir (65.), 3-1 Greta Mjöll (75.), 3-2
Berglind Bjarnadóttir (77.).
STAÐA EFSTU LIÐA Í DEILDINNI
Stjarnan 11 10 0 1 33-9 30
Valur 11 9 1 1 33-8 28
Þór/KA 11 7 1 3 23-21 22
ÍBV 11 6 2 3 19-7 26
1. deild karla
ÍA-Selfoss 2-1
1-0 Gary Martin (20.), 1-1 Viðar Örn Kjartansson
(36.), 2-1 Mark Doninger (89.).
KA-HK 2-1
0-1 Eyþór Helgi Birgisson (4.), 1-1 Davíð Rúnar
Bjarnason (51.), 2-1 Daniel Howell (89.).
Grótta-Víkingur Ó. 1-2
Jónmundur Grétarsson - Guðmundur
Magnússon, Þorsteinn Ragnarsson, víti.
STAÐA EFSTU LIÐA Í DEILDINNI
ÍA 14 13 1 0 41-6 40
Selfoss 14 9 1 4 30-14 28
Haukar 13 6 3 4 17-13 21
BÍ/Bolungarvík 13 6 2 5 17-22 20
Þróttur R. 13 6 2 5 16-21 20
Upplýsingar um markaskorara af vefsíðunni
fótbolti.net
ÚRSLIT Í GÆR
FÓTBOLTI Fylkismaðurinn Ingi-
mundur Níels Óskarsson er meðal
markahæstu leikmanna Pepsi-
deildar karla í sumar en hann
hefur skorað sex mörk í tólf leikj-
um. Þegar markatölfræði Ingi-
mundar er skoðuð nánar kemur
í ljós að hann hefur bara skorað í
leikjunum á móti Víkingum deild-
arinnar það er liðum Víkings,
Grindavíkur og Keflavíkur.
Ingimundur hefur skorað
6 mörk í 4 leikjum á móti
fyrrnefndum liðum en á enn
eftir að opna markareikning
sinn á móti hinum átta liðum
deildarinnar þrátt fyrir að hafa
leikið í 639 mínútur á móti þeim.
Ingimundur hefur líka átt 3 af
4 stoðsendingum sínum á móti
Víkingum deildarinnar. - óój
Ingimundur Níels Óskarsson:
Skorar bara á
móti Víkingum
INGIMUNDUR NÍELS Á bara tvo leiki eftir
á móti Víkingum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI „Ég var alltaf viss um
að skora úr þessu færi og Gary
(Martin) var alveg brjálaður að
fá ekki að taka aukaspyrnuna. Ég
hlustaði ekkert á hann og skoraði
eins og ég ætlaði að gera. Þetta
var frábær endir á skrýtnum leik
en ég hef aldrei spilað fótbolta í
verra veðri,“ sagði Englendingur-
inn Mark Doninger í gær eftir að
hann tryggði Skagamönnum 2-1
sigur gegn liði Selfoss í toppslag
1. deildar karla í fótbolta.
Skagamenn eru enn taplausir
eftir 14 leiki og liðið er með 40
stig, 12 stigum fyrir ofan Selfoss
sem er í öðru sæti. Þeir hafa nú
unnið tíu leiki í röð síðan þeir
gerðu jafntefli við Víking úr
Ólafsvík snemma í sumar.
Skagamenn hafa ennfremur 19
stiga forskot á Hauka sem eru í 3.
sætinu en eiga leik inn á móti ÍR-
ingum á Ásvöllum í kvöld.
Skagamenn léku einum færri í
um 80 mínútur þar sem Heimir
Einarsson fyrirliði var rekinn af
velli eftir um 13 mínútur. Gary
Martin kom ÍA yfir á 20. mínútu
en Viðar Örn Kjartansson jafn-
aði metin fyrir Selfoss á 36. mín-
útu. „Þetta er bara karakterinn
í þessu liði. Veðrið var slæmt,
við vorum einum færri megnið
af leiknum, en ég var alltaf viss
um að þetta myndi takast,“ sagði
Þórður Þórðarson þjálfari ÍA
eftir leikinn.
Logi Ólafsson þjálfari Selfoss
sagði að sínir menn hefðu ekki
leikið nógu vel. „Skagamenn
vildu þetta meira en við. Svo ein-
falt er það. En Skagamenn eru
svo gott sem komnir upp,“ sagði
Logi. - seth
Mark Doninger tryggði Skagamönnum sigur með marki beint úr aukaspyrnu:
Skagamenn á hraðferð upp
TÍU Í RÖÐ Skagamenn fagna marki Gary Martin. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐMUNDUR BJARKI HALLDÓRSSON
Ingimundur Níels í sumar:
Á móti Víkingum deildarinnar
Leikir 4 Mínútur 349
Mörk 6 Stoðsendingar 3
Þáttur í mörkum 9
Á móti öðrum liðum
Leikir 8 Mínútur 639
Mörk 0 Stoðsendingar 1
Þáttur í mörkum 1