Fréttablaðið - 29.07.2011, Side 28

Fréttablaðið - 29.07.2011, Side 28
29. júlí 2011 FÖSTUDAGUR16 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman AAHH! JÁH! AAHH! AAHH! AH, JÁ! MARÍA! MARÍA? ÉG HEITIR MAGGA! MARÍA! MAGGA! ÞETTA ER SVO LÍKT, NÁNAST EINS BARA! EKKI ÞAÐ, NEI! Klukkan er tíu og ég er hálfnaður með heimalær- dóminn. Ef ég held svona áfram klára ég í kringum hálf tvö, sofna í fimm tíma, vakna og byrja aftur á öllu veseninu. Framhaldsskóli snýst ekki um menntun heldur þol. Hvað er að þér? Ohh... Ég er með freknur. Og það versta er að mamma segir að stelpum finnist það sætt! Vertu bara þú sjálfur. LÁRÉTT 2. framkvæmt, 6. drykkur, 8. andmæli, 9. bók, 11. gangflötur, 12. þrælkun, 14. gripur, 16. í röð, 17. ái, 18. skammstöfun, 20. persónufor- nafn, 21. málmur. LÓÐRÉTT 1. sálda, 3. samanburðarteng., 4. peningar, 5. að, 7. nákvæmlega, 10. þvottur, 13. kvk nafn, 15. reigings- legur gangur, 16. húðpoki, 19. voði. LAUSN LÁRÉTT: 2. gert, 6. te, 8. nei, 9. rit, 11. il, 12. ánauð, 14. munur, 16. hi, 17. afi, 18. etv, 20. ég, 21. stál. LÓÐRÉTT: 1. strá, 3. en, 4. reiðufé, 5. til, 7. einmitt, 10. tau, 13. una, 15. rigs, 16. hes, 19. vá. Reiðistjórn- unarnám- skeið Hvernig á ég að fara að því að láta stelpum líka illa við mig? Það er leiðinlegt að festast í vef þjón-ustufyrirtækja og flækjast með fyrir- spurnir sínar manna á milli án þess að fá lausnir. Ég hef þurft að ganga í gegnum það undanfarna daga. Fyrir rétt rúmri viku rak ég upp stór augu þegar ég las bankayfirlitið mitt. Á fyrirframgreiddu kreditkorti mínu höfðu verið færðar út sjö milljónir. Þrátt fyrir það hafði ég ekki keypt neitt svo dýru verði. Þessi umrædda færsla átti sér þó aðdraganda. NOKKRUM dögum áður hafði ég farið til Kaupmannahafnar og notaði tækifærið meðan ég var erlendis og setti bílinn minn í viðgerð. Bíllinn hafði nefnilega tekið upp á því að fara ekki í gang, í tíma og ótíma. Kom þessi sérviska bílsins sér mjög illa eitt hádegi þegar hann stoppaði við stöðumæli í Reykja- vík og vildi ómögulega ferja mig aftur í vinnuna. Þetta reyndist dýr hádegismatur. ÞEGAR ég kom og náði í bílinn á verkstæði Toyota í Kópavogi eftir utanlandsferðina tók ekki betra við. Afgreiðslumaðurinn neitaði að gefa út reikning fyrir viðgerðinni þannig að ég afhenti honum fyrirframgreidda kortið mitt sem hann renndi. Var hann beðinn um að færa heimildina handvirkt og rekur þá augun í að hann er að rukka mig um sjö milljónir fyrir viðgerð sem var mun ódýrari. Hringdi afgreiðslumað- urinn í Borgun til að fá heimildina og ræddi við starfsmann þar nokkra stund. HEIMILDIN var veitt og færði afgreiðslumaðurinn hana sæll og glaður inn í tölvuna. Segir hann svo hálfpart- inn í gríni við mig að hann voni að hann hafi nú ekki fært sjö milljónir á kortið. Tveimur dögum seinna komst ég svo að því að það hafði í raun gerst. Sjö millj- ónir út af fyrirframgreiddu kreditkorti. Ég varð undrandi og hafði samband við afgreiðslumann hjá Toyota auk fleiri starfsmanna sem sögðu mér að mistök- in væru ekki þeirra. Ég ætti að tala við Borgun. Borgun benti mér á að tala við bankann eða Toyota. Ég innti bankann líka eftir skýringum sem enn þá hafa ekki fengist. FYRIR rest voru sjö milljónirnar bak- færðar, reyndar fimm dögum seinna. Ég er þó enn steinhissa á þessari færslu og viðbrögðum þjónustustofnananna. Engin þeirra hefur gefið mér upplýsingar um hvernig hægt er að komast sjö milljónum yfir heimild á fyrirframgreiddu kredit- korti sem ég hafði þó hingað til haldið að væri öruggara en venjuleg kreditkort. Sjö milljónir í mínus BAKÞANKAR Mörtu Maríu Friðríks- dóttur Meðal annars efnis: Einstök viðbrögð Norðmanna Samantekt um hryðjuverkin í Noregi. Síðari hálfleikur að hefjast Knattspyrnuhetjan Arnór Guðjohnsen fagnar fimmtugs afmæli sínu. Á toppnum með Bubba Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen hyggur á landvinninga.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.