Fréttablaðið - 29.07.2011, Page 2

Fréttablaðið - 29.07.2011, Page 2
29. júlí 2011 FÖSTUDAGUR2 SKIPULAGSMÁL Hestamannafélag- ið Gustur hyggst sækja rétt sinn gagnvart Kópavogsbæ ef ekki semst um nýja aðstöðu fyrir félagið að Kjóavöllum. Bæjaryfirvöld hafa ekki staðið við samning um upp- byggingu á svæðinu. Árin 2006 til 2007 var samið um flutning hesthúsasvæðisins frá Glaðheimum að Kjóavöllum. Samn- ingar voru tvíþættir: annars vegar keyptu bæjaryfirvöld hesthús af eigendum þeirra og hins vegar áttu eignir Gusts að ganga upp í nýja aðstöðu félagsins að Kjóavöllum. Bæjarfélagið keypti öll hesthúsin samkvæmt samningnum og hefur fjöldi þeirra þega r ver ið fluttur að nýja svæðinu eða rif- inn. Hesthúsa- eigendum var þó leyft að nýta húsin að Glað- heimum áfram. Nú hyggst bær- inn hins vegar rýma svæðið og þeir eigendur sem eftir eru þurfa að flytja sig um set. Hermann Vilmundarson, for- maður Hestamannafélagsins Gusts, segir töfina á uppbyggingunni þýða mikil óþægindi fyrir félagið. Menn sýni því skilning að bærinn sé staurblankur, en það verði að semja við félagið og hefja framkvæmdir. Hann segist bjartsýnn á að samn- ingar náist, en félagið komi til með að leita réttar síns ef ekki semst. „Hesthúsaeigendur eru að stærstum hluta á Kjóavöllum, en menn með hús þar eru með hesta í Glaðheimum því að engin aðstaða er á Kjóavöllum.“ Guðríður Arnardóttir, formað- ur bæjarráðs Kópavogs, segir að vissulega hafi ekki verið staðið við samninginn. Það standi hins vegar ekki steinn yfir steini í því sam- komulagi vegna efnahagshruns- ins. Framkvæmdir bæjarins verði að fjármagna af rekstrarfé, þar sem bærinn sé ekki í aðstöðu til að taka lán. Hún segir bæjarfélagið hafa boðið Gusti að reisa reiðhöll sem er minni en upphaflega var áætl- að. Þá sé í samningnum gert ráð fyrir sameiningu félaganna Gusts og Andvara, en hið síðarnefnda ráði yfir skeiðvöllum sem megi sam- nýta. Því þurfi ekki að reisa skeið- velli sérstaklega fyrir Gust. Náist samkomulag um þetta mætti hefja framkvæmdir við reið- höll strax í haust. Hún yrði örlítið minni en sú stærsta á landinu, sem er á Akureyri. Félagið vilji hins vegar stærri höll. „Er það endilega málið að Kópa- vogsbær byggi stærstu reiðhöll landsins árið 2011 miðað við efna- hagsaðstæður?“ spyr Guðríður. kolbeinn@frettabladid.is Hestamenn íhuga að stefna Kópavogsbæ Hestamannafélagið Gustur hyggst fara í mál ef ekki semst við Kópavogsbæ um uppbyggingu nýrrar aðstöðu. Hesthús hafa verið flutt úr Glaðheimum að Kjóa- völlum en aðstöðu félagsins vantar. Bærinn í viðræðum um sölu á svæðinu. GUÐRÍÐUR ARNARDÓTTIR GLAÐHEIMAR Kópavogsbær hefur ekki framlengt leigusamning við hestamenn á svæðinu. Bærinn er í viðræðum við aðila um sölu á svæðinu. Niðurrif stendur nú yfir á húsunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG Guðríður segir að þreifingar séu í gangi um mögulega sölu á Glað- heimalandinu. Vonast sé til að af þeirri sölu verði. Þá hafi bærinn skuldbindingar vegna uppbygg- ingar byggðar á svæðinu og í skipulagi sé ekki gert ráð fyrir reiðleiðum. Því sé einboðið að hestamenn færi sig á nýja svæðið. Selja Glaðheima Gísli, varst þú í Njú kids on ðe blokk? Hverjir eru það eiginlega? Gísli Helgason gaf út disk af því tilefni að 50 ár eru liðin frá fyrsta blokkflaututím- anum hans og 45 ár frá fyrstu tónleika- ferð hans og Arnþórs bróður hans. MENNTUN Talsverð aukning hefur verið á nýskrán- ingum í skipstjórnarnám síðustu misseri. Eftir sam- drátt í nýskráningum á árunum fyrir hrun stefnir nú í að um 100 manns muni nema við dagskóla Skip- stjórnarskóla Tækniskólans næsta vetur og þar að auki 60 til 80 manns í fjarnámi. Vilbergur Magni Óskarsson, skólastjóri Skip- stjórnarskólans, segir í samtali við Fréttablaðið að tíðin sé breytt frá því að verst lét. „Aðsóknin í námið hefur alltaf verið sveiflukennd og fylgir jafnan fiskverði og veiðum, og atvinnu- leysi í landi hvetur fólk líka til að fara á sjóinn. Aðsóknin hefur aukist mikið frá því fyrir hrun þegar fjöldi nýnema fór allt niður í tuttugu haustið 2008, en síðustu ár hefur aðsóknin verið með svip- uðu móti og hún er nú, þar sem 60 til 70 umsóknir hafa borist.“ Vilbergur segir misjafnt hvað nemar fari langt með nám sitt, en undanfarið hafi flestir sem hefja nám ákveðið að klára öll réttinda stigin. Þá hafi orðið ákveðin vitundarvakning í stétt sjómanna varðandi nám. „Fólk er að átta sig á þeim möguleikum sem felast í að ljúka farmannaprófinu, þar sem það eru alþjóð- leg réttindi. Fjölmargir sem útskrifast frá okkur reyna fyrir sér erlendis, þar sem víða er hægt að fá mjög vel launuð störf.“ - þj Aukin aðsókn í Skipstjórnarskólann síðustu misseri eftir samdráttarskeið: Sjómennskan heillar á ný eftir hrun SJÓMENNSKAN HEILLAR Mikil ásókn hefur verið í skipstjórnar- nám undanfarin misseri. Vel á annað hundrað nemar verða við Skipstjórnarskólann næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ATVINNULÍF Árni Sigfússon, bæjar- stjóri Reykjanesbæjar, segir stjórn- völd sýna atvinnuuppbyggingu grátlega lítinn áhuga. Fréttablaðið sagði frá því í gær að tvö fyrirtæki væru með áform um hátæknifisk- eldi á Reykjanesi. „Fjárfestar eru bara menn eins og ég og þú og því er svo mikilvægt að sýna þeim áhuga,“ segir hann. „Við í Reykjanesbæ höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til þess að greiða götu fiskeldisfyrirtækjanna sem vilja koma til okkar en það er eins og að Helguvíkurkaleikurinn hafi haft þau áhrif að stjórnvöld vilji ekki sýna atvinnuuppbyggingu á Reykjanesi áhuga, skiptir þá engu hvort um er að ræða fiskeldi, gagna- ver, gróðurhús eða hvað sem er.“ Fiskeldisfyrirtækin eru Íslensk matorka og Stolt Sea Farm en þau hyggjast nýta heita vatnið frá HS Orku. Einnig hefur fyrirtæki á vegum Ármanns Kr. Ólafssonar, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Kópa- vogi, sótt um land- og heitavatns- nýtingu á svæðinu fyrir fiskeldi. Íslensk matorka hyggst rækta bleikju og norræna tilapíu, Stolt Sea Farm senegalflúru og fyrirtæki Ármanns og félaga sandhverfu. - jse Bæjarstjóri segir stjórnvöld sýna atvinnuuppbyggingu lítinn áhuga á Reykjanesi: Helguvíkurkaleikurinn kostar ÁRNI SIGFÚSSON Ýmis tækifæri liggja fyrir á Reykjanesi en Árni segir stjórnvöld ekki sýna þeim áhuga eftir að hafa handleikið Helguvíkurkaleikinn. LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem var stunginn í hálsinn á veitinga- staðnum Monte Carlo fyrir hálf- um mánuði, lést af sárum sínum í vikunni. Í gærmorgun var karlmaður sem grunaður er um árásina, úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 26. ágúst að kröfu lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu. Í tilkynningu segir að maðurinn uni þeirri niðurstöðu. Árásarmaðurinn, sem er um fertugt og af erlendum uppruna, veitti manninum alvarlega áverka á hálsi með hnífi í júní síðastliðnum. - sv Alvarleg árás á Monte Carlo: Maðurinn lést af sárum sínum VIÐSKIPTI Félagið SF1 gekk í gær endanlega frá kaupum á 52,4 pró- senta hlut Eignasafns Seðlabank- ans í Sjóvá. SF1 er í eigu ýmissa aðila, meðal annars lífeyrissjóða, en Erna Gísladóttir verður nýr for- maður stjórnar Sjóvár. Fram kemur í fréttatilkynn- ingu að kaupin séu alfarið fjár- mögnuð með eiginfé kaupenda en ekki lánum. Að því er segir á Vísi var kaupverðið um fimm millj- arðar króna. Seðlabankinn á enn rúm 20 prósent í Sjóvá, SAT eignarhalds- félag á 1,7 prósent og Íslands- banki rúm níu prósent. - þj Seðlabanki selur í Sjóvá: Kaup fjármögn- uð án allra lána LÖGREGLUMÁL Hópur barna og for- eldra þeirra urðu vitni að fólsku- legri líkamsárás og ránstilraun á göngustíg við Suðurhóla í Reykja- vík, skammt frá Hólabrekku- skóla, í fyrrakvöld. Lögregla leitar árásarmanns- ins, sem var með hanakamb og eyrnalokka, klæddur í svarta hettupeysu með rauðu mynstri. Árásarmaðurinn sló mann um sextugt í jörðina og barði hann ítrekað og sparkaði í hann. Hann vissi að þolandinn hafði unnið í spilakassa á bar í grenndinni og virðist hafa ætlað sér að ræna af honum vinningnum. Fórnarlambið hafði beðið starfsfólkið að geyma vinninginn, og var því ekki með féð á sér. - bj Börn vitni að alvarlegri árás: Lögregla leitar árásarmanns SÓMALÍA, AP Friðargæsluliðar Afríkusambandsins börðust í gær við skæruliðahópa í Mogadisjú, höfuðborg Sómalíu, til að tryggja að hjálpargögn skili sér. Hungursneyð ógnar lífi millj- óna í Austur-Afríku, en ástandið er alvarlegast í Sómalíu. Söfnun á Íslandi fyrir nauð- stadda á svæðinu hefur gengið mjög vel og höfðu meðal annars safnast yfir 21 milljón króna hjá UNICEF á Íslandi. Í tilkynningu frá UNICEF var áréttað að starf þeirra tengist ekki öðrum stofnunum Samein- uðu þjóðanna og dreifing hjálpar- gagna hafi gengið vel. - þj Átök í skugga neyðarástands: Barist til að tryggja aðstoð BARIST VIÐ SKÆRULIÐA Friðargæslu- liðar Afríkusambandsins börðust við skæruliða í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Bótaþegar fá greitt eftir helgi Mánaðargreiðsla Tryggingastofnunar til lífeyrisþega og annarra bótaþega vegna ágústmánaðar verður greidd út mánudaginn 1. ágúst, sem er frídagur verslunarmanna. TRYGGINGAMÁL NÁTTÚRA Væntanlegt hlaup úr Skaftá gæti náð niður í byggð í dag. Samkvæmt vatnamælingum Veðurstofunnar í gær benti allt til þess að hlaup myndi hefjast, en ekki var gert ráð fyrir miklu vatnsmagni í þessu hlaupi þar sem hlaup varð úr báðum Skaftár- kötlum í fyrrasumar. Almannavarnir vara við ferðum á Skaftárjökul og í lægðum með- fram Skaftá þar sem hætta er á mengun af völdum brennisteins- vetnis, sem getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. - þj Mælingar Veðurstofu: Ekki útlit fyrir stórt hlaup SPURNING DAGSINS Smurostar við öll tækifæri ms.is ...tvær nýjar bragðtegundir Ný bragðtegund með papriku Ný bragðtegund Texmex H VÍ TA H Ú SI Ð / S ÍA - 11 -0 50 9

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.