Fréttablaðið - 08.08.2011, Qupperneq 16
8. ágúst 2011 MÁNUDAGUR2
Dagblöð sem búið er að lesa og eru á leið í tunnuna, má nota til að þurrka af speglum.
Það gefst miklu betur en að nota eldhúspappír sem skilur eftir sig rákir. Spreyið örlitlum
glerúða, vöðlið saman dagblaði, rennið yfir spegilinn og hann glansar.
ÚTSALAN
hafin
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
„Markaðurinn er vitanlega mun
stærri í Ástralíu en hér heima,“
segir Hjördís Ýr Ólafsdóttir, iðn-
hönnuður og grafískur hönnuð-
ur. Hún flytur senn til Ástralíu
með manni sínum, sem er á leið
í doktorsnám. „Þetta er búið að
ganga mjög vel og ég hef fengið
góðar móttökur í Ástralíu. Ég hef
haft samband við nokkrar hönn-
unarverslanir sem hafa áhuga á
að selja vörurnar,“ segir Hjördís
en hún hefur sent mikið magn af
hönnun sinni út.
Vörurnar sem Hjördís hyggst
koma á markað í Ástralíu eru
barnasnagar í líki hunds og kattar
og hirsla í líki húss. Þessar vörur
lét hún nýverið framleiða í tiltölu-
lega stóru upplagi. Sú framleiðsla
seldist upp á skömmum tíma
eftir að hún auglýsti á heimasíðu
sinni. „Salan gekk vonum fram-
ar og núna er verið að framleiða
stærra upplag,“ segir Hjördís en
vörur hennar fara í sölu í verslun-
unum Epal, Mýrinni í Kringlunni
og Hrím á Akureyri undir lok
mánaðarins.
Hugmyndin að baki barna-
snögunum kemur frá dóttur henn-
ar. „Hún hefur mikið dálæti á kött-
um og hundum. Mig vantaði snaga
fyrir hana. Þar sem ég er iðn-
hönnuður bjó ég þá bara til,“ segir
Hjördís en henni fannst vanta fal-
lega barnasnaga á markaðinn. Hún
framleiðir snagana í sex mismun-
andi litum. Þeir fást í bæði dökk-
um og ljósum tónum af bláum og
bleikum og í rauðu og gulu.
Húsin eiga sér aðra sögu: „Ég
var alltaf að týna lyklunum og
vantaði stað til að setja smáhluti
á þegar ég kom inn úr dyrunum.“
Húsin eru tilvalin á vegg í forstof-
ur til að geyma hluti á borð við
síma, umslög og lykla. Þau eru til
í tveimur útfærslum, annaðhvort
með grasi eða girðingu. Þau fást
líkt og snagarnir í sex mismunandi
litum, það er í svörtu, hvítu, gulu,
rauðu, sæbláu og grábrúnu,
Hjördís framleiðir vörurnar á
Íslandi en það er tiltölulega ódýrt
miðað við Ástralíu, að hennar
sögn. „Ég stefni á að framleiða
hérlendis, senda vörurnar út og
stuðla þannig að íslenskri fram-
leiðslu,“ segir hún. Áhugasamir
geta nálgast vörurnar á heima-
síðu hennar www.byhjordis.com.
Einnig heldur hún út bloggsíðunni
www.byhjordis.tumblr.com.
hallfridur@frettabladid.is
Stefnir á ástralskan markað
Hjördís Ýr Ólafsdóttir hannar barnasnaga og hirslur. Fyrsta upplag framleiðslunnar seldist strax upp. Nú
hyggst hún selja vörur sínar í Ástralíu en þarlendar verslanir hafa sýnt hönnun hennar mikinn áhuga.
Dóttir Hjördísar
er ánægð með
snagana, sem
voru upphaflega
hannaðir fyrir
hana.
Hjördís útskrifaðist sem iðnhönnuður frá
Istituto Europe di Design árið 2007.
Hægt er að geyma umslög í húsunum
og hengja lykla á grasið eða girðinguna.
FORSÍÐA VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
ÞÚ ERT
MEÐ
FRÆGA
FÓLKIÐ
Í VASANUM
MEÐ VÍSI
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!