Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.08.2011, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 08.08.2011, Qupperneq 46
8. ágúst 2011 MÁNUDAGUR26 FÉSBÓKIN „Við erum búnir að panta flug og miða og hótel. Þetta verður algjör snilld,“ segir Svavar Helgi Jakobsson. Hann og vinur hans, Ólafur Sverrir Jakobsson, eru á leiðinni í mikla pílagrímsför. Þeir verða viðstaddir stóra hátíð í New York um miðjan ágúst þar sem allt leikaralið gamanmyndarinnar vinsælu The Big Lebowski verð- ur samankomið. Sjálfir hafa þeir félagar skipulagt Big Lebowski- hátíðir hérlendis undanfarin ár en myndin hefur öðlast költstöðu víða um heim. Yfir eitt hundrað manns sóttu fimmtu hátíðina sem var haldin í Keiluhöllinni í mars síðastliðnum. Leikararnir Jeff Bridges, John Goodman, Steve Buscemi og Julianne Moore verða öll stödd í Hammerstein-salnum í New York 16. ágúst þar sem þau munu svara spurningum úr saln- um. Daginn áður verður haldið keilupartí og búningakeppni og munu þeir Ólafur og Helgi að sjálfsögðu taka þátt í báðum við- burðunum. „Við ætlum að reyna að grafa upp einhverja góða spurningu til að spyrja þau fyrst þau sitja fyrir svörum,“ segir Svavar spenntur. Lebowski-hátíðir hafa verið haldnar árlega síðustu tíu ár í Bandaríkjunum en þetta verður í fyrsta sinn sem Svavar og Ólafur mæta. Einnig er afar sjaldgæft að leikarar úr myndinni mæti á slíkar hátíðir. Ástæðan fyrir komu þeirra nú er ný útgáfa myndarinnar á Blu-ray-mynd- diski, auk þess sem Jeff Bridges, sem lék hinn húðlata friðarsinna The Dude, er að gefa út sólóplötu. „Maður er að vona að hann taki upp gítarinn og jafnvel slopp- inn líka. Það væri draumurinn,“ segir Svavar. - fb Sjá Big Lebowski-leikara í New York Á LEIÐ TIL NEW YORK Svavar Helgi Jakobsson og Ólafur Sverrir Jakobsson eru á leiðinni í pílagrímsför til New York. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Þessi ferð fór fram úr öllum mínum björtustu vonum og var frábær í alla staði,“ segir Lára Rúnarsdóttir söngkona, sem er nýlent á Íslandi eftir tveggja vikna tónleikaferðalag um Evr- ópu. Tónleikaferðalagið var í raun einnig fjölskyldusumarfríið hjá Láru. Trommari hljómsveitarinn- ar, Arnar Gíslason, er eiginmaður Láru og því ekki hægt að skilja eftir þriggja ára dóttur þeirra hjóna, Emblu. Systir Láru, Mar- grét, var síðan tekin með til að passa. Mikil keyrsla var á sveit- inni, sem spilaði á tíu tónleikum á tveimur vikum. „Það heyrðist minnst í Emblu af öllum í ferðinni. Hún er greini- lega fædd fyrir flakkið og fannst þetta æðislegt,“ segir Lára, en sveitin leigði rútu og keyrði svo á milli Þýskalands og Sviss, lands sem heillaði Láru upp úr skónum. „Í Sviss leið mér eins og ég væri stödd inni í póstkorti. Ég var heilluð af landslaginu og svo var alltaf hreint þarna. Íbúar lands- ins hljóta að slá grasið einu sinni á dag, þar var svo fullkomið,“ segir Lára, sem stefnir á að fara aftur til Sviss. „Við kynntumst yndislegu fólki sem var mjög hrifið og forvitið um Ísland. Ég gæti vel hugsað mér að fara þang- að til að taka upp nýju plötuna mína,“ segir Lára, sem stefnir á að koma með nýja plötu í byrjun næsta árs. „Mig klæjar í puttana að fara að vinna í nýju efni eftir ferðina. Draumurinn væri að fara út fyrir landsteinana með hljómsveitina, loka okkur af á afskekktu sveita- setri og búa til nýju plötuna þar. Ég þarf bara að finna leið til að fjármagna ferðalagið en ég stefni á að byrja að vinna í plötunni í lok ágúst,“ segir Lára og viðurkenn- ir að það geti verið erfitt að vera í skapandi starfi á Íslandi. „Eins frábært og það er að búa hérna er hraðinn sömuleiðis mikill og maður alltaf með fullt af verk- efnum í gangi á sama tíma. Þess vegna væri fínt að komast út og loka sig af.“ alfrun@frettabladid.is LÁRA RÚNARSDÓTTIR: LEIÐ EINS OG ÉG VÆRI STÖDD Í PÓSTKORTI Tónleikaferðalagið sam- einaðist fjölskyldufríinu HEILLAÐIST AF SVISS Lára Rúnarsdóttir söngkona er nýkomin heim eftir tveggja vikna tónleikaferðalag þar sem Sviss heillaði hana upp úr skónum. „Einn staður er ekki nóg fyrir stærsta stuðningsmannaklúbbinn á Íslandi,“ segir Steinn Ólason, for- maður Manchester United-klúbbs- ins. Klúbburinn hefur ákveðið að bæta Glaumbar við sem sam- starfsaðila en hingað til hefur Spot í Kópavogi verið eini heimavöllur liðsins á höfuðborgarsvæðinu. Aðdáendur United á Íslandi hafa því úr tveimur stöðum að velja á komandi tímabili. „Við erum stækkandi klúbbur og einn staður er ekki nóg. Glaumb- ar er að koma upp með nýjar og breyttar áherslur og nýja rekstr- araðila. Það er ágætt fyrir okkur að hafa stað sem nær til fólksins vestur í bæ og í miðbænum. Við höfum ekki séð allar breyting- arnar á Glaumbar en okkur líst vel á það sem talað er um. Okkur finnst sjálfsagt að United-menn mæti þangað líka,“ segir Steinn en yfir 2.600 manns greiddu árgjald klúbbsins í fyrra. Glaumbar verður opnaður 13. ágúst og sama dag verður mikil veisla þegar enski boltinn hefst eftir sumarfrí. Frír bjór og snakk verður í boði fyrir áhangendur enska boltans. Daginn eftir verð- ur síðan fyrsti leikur United á úti- velli gegn WBA. Aðspurður segist Steinn mjög bjartsýnn fyrir tímabilið. „Ég held að þetta verði tímabilið sem verð- ur kallað númer tuttugu,“ segir hann og á við að tuttugasti Eng- landsmeistaratitill United gæti orðið að veruleika á næsta ári. „Ég held að Sir Alex hafi þetta. Ég hef trú á honum.“ - fb United-menn þurfa tvo staði BJARTSÝNN Steinn Ólason, formaður United-klúbbsins, er bjartsýnn fyrir komandi tímabil. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Starfsmöguleikar: Innkaupastjóri Útlitsráðgjafi Stílisti Verslunarstjóri 1. Önn 2. Önn Fatastíll Fatasamsetning Textill UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 533-5101 Erna, stílisti Ég hef unnið við förðun á Stöð 2 í 6 ár, þar á meðal við förðun keppenda í Idol og annarra sjónvarpsþátta hjá 365. Einnig vinn ég við auglýsingar, mynbönd og myndatökur. Það er óhætt að segja að námið hefur hjálpað mér mikið í starfi mínu í förðun og stíliseringu. Skjöldur Mio, tískuráðgjafi Ég taldi mig vita flest allt um tísku og útlit áður en ég fór í skólann. En annað kom á daginn. Ég hef lært heilmikið um fatasamsetningu, textil, litafræði, líkamsbyggingu og flest allt um útlit. Námið nýtist mér frábærlega í því sem ég er að gera. Ú T L I S T - O G F Ö R Ð U N A R S K Ó L I w w w . u t l i t . i s VILTU VERÐA STÍLISTI? The Academy of Colour and Style er skóli sem kennir útlitsráðgjöf. Námið byggir á helstu atriðum útlitshönnunar og er meðal annars tekið fyrir litgreining, fatastíll og textill. Eftir nám fá nemendur diplóma í útlitsráðgjöf (fashion consultant). Starfsmöguleikar eftir nám eru margir og spennandi og geta nýst á ýmsum sviðum og atvinnugreinum. Hver önn tekur þrjá mánuði og fylgja öll kennslugögn með náminu. Kennsla fer fram í Tækniskólanum einu sinni í viku frá 18-22. Litgreining Förðun út frá litgreiningu Litasamsetning „Er í lessinu sínu.“ Fjölmiðlakonan Margrét Erla Maack með góða uppfærslu í tilefni hinsegin daga. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Má bjóða ykkur meiri Vísi? ÞAÐ ERU ENGIN HÖFT Í VIÐSKIPTUNUM Á VÍSI Meiri Vísir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.