Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 10
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR10 MEÐGÖNGUSUND s. 412 3253 www.medgongusund.is medgongusund@medgongusund.is Sundleikfimi hjá sjúkaþjálfurum Dagtímar á Hrafnistu í Reykjavík Síðdegistímar á Boðaþingi í Kópavogi Kvöldtímar á Reykjalundi í Mosfellsbæ KJARAMÁL Nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins hafa nú fundað um hvernig bregðast skuli við ef til verkfalls leikskóla- kennara kemur á mánudag. Ljóst er að verkfallið mun hafa mikil áhrif í samfélaginu, eða á um fjór- tán þúsund fjölskyldur og sextán þúsund börn. Forsvarsmenn tölvuleikjafram- leiðandans CCP hafa ákveðið að koma upp barnagæslu í höfuð- stöðvum fyrirtækisins, en þar er herbergi með afþreyingarefni fyrir börnin. Þá munu starfsmenn sjálfir sjá um að passa börnin. Um 300 manns starfa hjá CCP. Stoðtækjaframleiðandinn Össur mun ekki hafa barnagæslu á sínum snærum. Starfsmannastjóri fyrir- tækisins, Jón Kr. Einarsson, telur slíkt vera á gráu svæði er varð- ar verkfallsreglur, en fólki verði vissulega sýndur aukinn sveigjan- leiki og boðið upp á möguleikann að vinna heima þar sem það á við. Um 320 starfsmenn vinna hjá Öss- uri á Íslandi. Kristján Kristjánsson, upp- lýsingafulltrúi Landsbankans, segir að ef til verkfalls komi muni það hafa gífurleg áhrif á starfs- menn bankans. „Það er gríðar- legur fjöldi fólks hér með börn á leikskólaaldri. Við munum reyna eftir fremsta megni að sýna fólki sveigjanleika og einhverjir geta kannski unnið heima hjá sér,“ segir Kristján. „Einhverjir geta kannski tekið börnin með, en það er auðvitað ekki á þau leggjandi að vera föst á vinnustað allan dag- inn.“ Kristján segir meginvandann vera hjá þeim sem þjónusta við- skiptavini í útibúum, sem eru 45 talsins um land allt. „En það kemur ekki til greina af okkar hálfu að setja upp einhvers konar pössun eða eitthvað slíkt. Enda er það sennilega verkfallsbrot,“ segir Starfsfólki sýndur aukinn sveigjanleiki Vinnustaðir búa sig nú undir mögulegt verkfall leikskólakennara á mánudag. Sumir ætla að halda úti barnapössun, aðrir bjóða upp á aukinn sveigjanleika. Ekkert hefur þokast í kjaraviðræðum og fundir skila ekki árangri. BÖRN AÐ LEIK Allt stefnir í að verkfall leikskólakennara hefjist á mánudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EVRÓPUMÁL „Ég þekki það ekki að nokkur maður hafi rætt um að Jón Bjarnason fari út úr ríkis- stjórn,“ segir Össur Skarphéðins- son utanríkisráðherra. Í Morgunblaðinu í gær var því haldið fram að Jóni Bjarnasyni, landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðherra, hefði verið hótað embættis missi vegna ágreinings við Össur út af aðildarviðræðum Íslands og ESB, en ef Jóni yrði bolað úr ríkisstjórn með valdi gæti það þýtt að ríkisstjórnin missti meirihluta sinn á Alþingi. Össur var því spurður hvort nokkuð væri til í þessum vanga- veltum. Hann kannast ekkert við það en segir samskipti sín við Jón Bjarnason hafa verið „full- komlega fagleg og vinsamleg“ þótt augljós skoðanaágreiningur sé uppi um ýmis mál. „Við Jón erum með allt á hreinu og ég hef hvergi komið að slíkum umræðum,“ segir Össur. Spurður um framgöngu Jóns í málinu, það er að landbúnaðar- ráðherra virðist meðvitað vera að tefja ríkisstjórnarmál, segir Össur: „Mér kemur ekki til hugar að Jón Bjarnason sé viljandi að reyna að koma í veg fyrir að það sé reynt að framkvæma sam- þykkt Alþingis.“ - kóþ Utanríkisráðherra trúir ekki að landbúnaðarráðherra fari gegn vilja Alþingis: Ekki minnst á embættismissi ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON JÓN BJARNASON Enn ósammála um verkfallsaðgerðir Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga taldi mikilvægt að ná samkomulagi við Félag leikskólakennara um framkvæmd mögulegs verkfalls til að koma í veg fyrir átök við leikskóla ef til verkfalls kemur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. „Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur mótmælt [...] því að stéttarfélag gefi stjórnendum sveitarfélaga bein fyrirmæli,“ segir í yfirlýsingunni og er að lokum ítrekað að samninganefndin hyggist vísa málinu til félagsdóms ef til verkfalls komi. Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, sagði í samtali við Vísi að nefndirnar hefðu ákveðið að vera „sammála um að vera ósam- mála“. Tveir fundir um verkfallsaðgerðir hafa verið haldnir og hefur þeim báðum lokið án niðurstöðu. hann. Um 1.250 manns vinna hjá Landsbankanum. Ómar Örn Jónsson, markaðs- stjóri Öryggismiðstöðvarinnar, segir fólk vera að kanna þann fjölda starfsmanna sem eigi börn á leikskólaaldri. Nauðsynlegt sé að bregðast við á einhvern hátt ef til verkfalls komi. „Við erum með barnaherbergi á staðnum og erum að viðra þá hugmynd að foreldrar geti skipt með sér barnapössun. Þetta mun hafa gífurleg áhrif á fyrirtækið ef helmingur starfsmanna þarf að vera heima með börnin.“ Ekkert hefur þokast í kjara- viðræðum leikskólakennara og sveitar félaganna. Þó verður áfram reynt að ná sátt og hefur verið boðað til fundar klukkan tíu í dag. sunna@frettabladid.is MEDVEDEV RÚSSLANDSFORSETI Dmitrí Medvedev mundar myndavélina þar sem hann skemmtir sér við að kafa í ánni Volgu í sumarfríinu sínu. NORDICPHOTOS/AFP FÆREYJAR Lögþingið í Færeyjum samþykkti á þriðjudag að fækka sóknardögum um 10 til 20 pró- sent, þrátt fyrir andstöðu annars stjórnarflokks minnihlutastjórn- ar landsins við málið. Það voru þingmenn Þjóðveldis- flokksins og Jafnaðarflokksins sem greiddu frumvarpinu atkvæði sitt ásamt þremur öðrum þingmönnum. Sambandsflokkur- inn, sem myndar minnihluta- stjórn í Færeyjum ásamt Jafn- aðarflokknum, var andvígur því að skerða sóknardagana. - gb Samkomulag í Færeyjum: Sóknardögum verður fækkað HAFNARFJÖRÐUR Gjaldskrá leik- skóla Hafnarfjarðar mun hækka um tíu prósent frá og með 1. októ- ber næstkomandi. Þetta var sam- þykkt í fræðsluráði bæjarins í vikunni og er í samræmi við fjár- hagsáætlun bæjarins fyrir yfir- standandi ár. Áður hafði verið samþykkt að hækka verð á hádegismat grunn- skólabarna úr 300 krónum upp í 350. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sem eru í minnihluta, sátu hjá við afgreiðslu málsins og bókuðu að umræddar hækkanir séu „liður í framkvæmd þeirrar fjárhags- áætlunar sem meirihlutinn í bæjar stjórn stendur að“. - þj Hækkanir í Hafnarfirði: Leikskólagjöld hækka í október SVÍÞJÓÐ Starfsmönnum á hjúkr- unarheimili fyrir hreyfihamlaða og minnisskerta í Jönköpingsléni í Svíþjóð fannst einn vistmann- anna sjúga fötin sín of mikið. Starfsmennirnir reyndu að koma í veg fyrir þessa hegðun með því að strá pipar á fatnað vistmannsins. Nú hafa félags- málayfirvöld áminnt starfs- mennina, meðal annars vegna siðferðis mats þeirra. Í annað skipti gleymdu starfs- mennirnir vistmanni á salerni. Sá datt og beinbrotnaði en brotið uppgötvaðist ekki fyrr en rúmri viku seinna. - ibs Starfsmenn áminntir: Stráðu pipar á föt vistmanns DANMÖRK Bæjaryfirvöld í Óðins- véum íhuga nú að banna starfs- fólki sínu að reykja á vinnutíma. Héraðsblaðið á Fjóni vísar í umfjöllun sinni til rannsókna sem benda til þess að þar sem reyk- ingafólk taki fleiri pásur og sé oftar veikt, geti Óðinsvé sparað sér sem jafngildir um 500 millj- ónir króna árlega. Meðalfjöldi veikindadaga er nú átján á ári en gæti fækkað niður í þrettán með reykingabanninu. Hlutfall reykingafólks í Dan- mörku hefur lækkað verulega síð- asta áratug. Nú segjast um 24% fullorðinna Dana reykja. - þj Tóbaksvarnir í Danmörku: Enginn smókur í Óðinsvéum? VILJA BANNA REYKINGAPÁSUR Bæjar- yfirvöld í Óðinsvéum vilja banna reykingar starfsfólks á vinnutíma. NORDICPHOTOS/AFP EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Íslands hélt í vikunni sitt annað útboð á krónum fyrir eigendur gjald- eyris. Alls bárust tilboð að fjár- hæð 3,4 milljónir evra og var öllum tilboðum tekið að fullu og greiddar 210 krónur fyrir hverja evru. Sem greiðslu fyrir gjald- eyrinn fá kaupendur afhent verð- tryggð ríkisverðbréf. Útboðið er liður í losun gjaldeyrishafta samkvæmt áætlun stjórnvalda og Seðlabankans. Í fyrra krónuútboði Seðlabank- ans sem fór fram í lok júní bárust tilboð að fjárhæð 71,8 milljónir evra. Eftirspurn var því mun minni í þetta skiptið en þá voru greiddar 210 krónur fyrir evruna eins og nú. - mþl Gjaldeyrisútboð Seðlabanka: Þátttaka í gjald- eyrisútboði lítil SEÐLABANKI ÍSLANDS Seðlabankinn hefur í sumar stigið fyrstu skrefin í átt að losun gjaldeyrishafta. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.