Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 28
4 föstudagur 19. ágúst
Helga Lind Björg-
vinsdóttir er fjögurra
barna móðir, pilates-
kennari og fyrrverandi
landsliðskona í fótbolta.
Hún hefur flakkað um
heiminn undanfarin ár
en er nú komin heim og
unir sátt við sitt.
Viðtal: Sara McMahon
Ljósmyndari: Stefán Karlsson
Förðun: Harpa Káradóttir hjá MAC
Fatnaður: Júniform
H
elga Lind er fædd og
uppalin á Akranesi og
þótt hún hafi flakkað
um heiminn síðustu
ár segist hún bera
sterkar taugar til heima bæjarins og
þá sérstaklega til íþróttaliðsins ÍA.
„Ég er Skagastúlka út í gegn. Ég er
mikill ÍA-ingur en það versta er að
maðurinn minn spilar fótbolta með
Fylki og faðir eldri barna minna leik-
ur með Fram og þetta skapar svo-
litla togstreitu inni á heimilinu,“
segir hún og hlær.
Helga Lind þótti sjálf nokkuð
efnileg í fótbolta á sínum yngri
árum og lék meðal annars með ung-
lingalandsliði kvenna í þrjú ár. Hún
lagði þó takkaskóna á hilluna eftir
að hún flutti út til Englands ásamt
þáverandi kærasta sínum. „Ég var á
kafi í fótbolta alveg þar til ég flutti
út átján ára gömul. Það var alls
ekki erfitt að hætta því ég hafði á
tímabili spilað með þremur flokk-
um á sama tíma og því orðin svo-
lítið þreytt á boltanum. Ég hef ekki
byrjað aftur en spila stundum með
krökkunum og þegar ég bjó í Noregi
var ég með „Old girls“ liði, sem mér
þótti mjög skemmtilegt.“
FULL AF ÆVINTÝRAÞRÁ
Helga Lind kynntist knattspyrnu-
manninum Arnari Gunnlaugssyni
þegar hún var átján ára gömul og
flutti með honum út til Englands ári
síðar. Hún segir það ekki hafa verið
mjög erfitt að kveðja heimaslóð-
irnar og halda út í hinn stóra heim
því hún hafi verið ung full af æv-
intýraþrá. „Ég hef alltaf verið frek-
ar sjálfstæð og fannst þess vegna
ekkert mál að flytja út með Arnari.
Maður var líka svo ástfanginn og
fannst þetta allt voða spennandi,“
út skýrir hún.
„Ég hafði verið að þreifa fyrir mér
sem fyrirsæta heima á Íslandi á
vegum Eskimo og ætlaði að halda
því áfram úti og sinna fjarnámi en
ég varð fljótlega ólétt og þau plön
urðu því að bíða betri tíma.“ Helga
eignaðist soninn Alex árið 1999 og
þremur árum síðar fæddist þeim
hjónum dóttirin Ísabella.
Fjölskyldan flutti heim árið 2003
og ákváðu Helga og Arnar að fara
út í verslunarrekstur ásamt Bjarka,
tvíburabróður Arnars, unnustu hans
og Sölva Magnússyni. Helga Lind
vann þá um hríð sem sölu maður í
verslun inni, sem fékk nafnið Retro.
Árið 2004 ákváðu Helga Lind og
Arnar að skilja að skiptum en að
hennar sögn eru þau enn miklir
vinir og ala börnin upp í samein-
ingu.
TÍÐIR FLUTNINGAR ERFIÐIR
Helga er nú gift fótboltamanninum
Gylfa Einarssyni og eiga þau saman
tvíburana Köru Lind og Einar Orra.
Þegar hún er spurð hvort hún heill-
ist sérstaklega af fótboltaköppum
skellir hún upp úr og segir: „Ég var
nú búin að tilkynna það að ég ætl-
aði ekki að vera með öðrum fót-
boltamanni en ég var varla búin
að sleppa orðinu og snúa mér við
þegar ég gekk í fangið á Gylfa. Ég
held ég heillist ekkert sérstaklega
af fótboltamönnum heldur sterk-
um karakterum með mikla útgeisl-
un, kannski hafa fótboltamenn þá
kosti að geyma,“ segir hún brosandi.
Parið flutti til Leeds árið 2006 þar
sem Gylfi lék sem atvinnumaður
hjá fótboltaliðinu Leeds United og
tveimur árum síðar flutti fjölskyld-
an til Bergen. Helga viðurkennir
að hinir tíðu flutningar sem fylgi
atvinnumennskunni geti verið erf-
iðir en að þeim fylgi þó einnig kostir.
„Þetta er erfitt þegar maður er
kominn með börn á skólaaldri því
það er erfitt að rífa þau upp en þess
utan er þetta mikið ævintýri og
börnin kynnast nýrri menningu og
tungumáli og það hefur gert þeim
gott. Við höfum líka verið mjög
heppin hvað þau eru fljót að að-
lagast breyttum aðstæðum.“
UNG MÓÐIR
Þrátt fyrir ungan aldur á Helga Lind
fjögur börn en það fyrsta átti hún
aðeins nítján ára gömul. Hún segist
þó alltaf hafa verið viss um að hún
yrði móðir ung að árum. „Ég á þrjú
systkini og var tíu ára gömul þegar
það yngsta fæddist. Ég var mjög
dugleg að passa þau og leið allt-
af svolítið eins og mömmu númer
tvö og var alveg viss um að ég vildi
verða mamma nokkuð ung.“
Helga Lind viðurkennir að það
hafi verið ys og þys á heimilinu
fyrst eftir fæðingu tvíburanna og því
hafi þau hjónin notið aðstoðar au
pair fyrsta árið. „Við Gylfi ætluðum
alltaf að eignast tvö börn en fengum
þau óvænt á einu bretti. Ég var pínu
smeyk fyrst að verða móðir tvíbura
en ég held að það sé ekki meira á
mann lagt en maður þolir. Ég fæddi
tvíburana á þrítugustu viku og þeir
voru því á spítala fyrstu fimm vik-
urnar eftir fæðingu og það var mjög
strembinn tími. En svo hefur þetta
gengið mjög vel og tvíburarnir eru
góðir vinir og duglegir að hafa ofan
af fyrir hvort öðru.“
FYRIRSÆTUSTARFIÐ
HENTAÐI EKKI
Eins og áður hefur komið fram
dvaldi Helga Lind í mánuð á Ind-
landi árið 2005 og vann sem fyrir-
sæta á vegum umboðsskrifstofunn-
ar Eskimo. Hún segir dvölina hafa
verið mikla upplifun en að fyrir-
sætustarfið hafi ekki hentað henni.
„Mér finnst gaman að taka fyrir-
sætuverkefni að mér annað slagið
og ég hef kynnst fullt af skemmti-
legu fólki í hinum ýmsu verkefnum
en ég gæti ekki lagt þetta starf fyrir
mig. Þessi bransi er svolítið grunn-
hygginn og ég þreifst ekki innan
hans. Þótt starfið virki glæsilegt er
það ekki alltaf raunin.“
Tilboðið bar nokkuð skyndilega
að og fékk Helga aðeins tvær vikur
til að ákveða hvort hún vildi halda
utan til Indlands. Þetta var stuttu
eftir skilnað hennar og Arnars og
ákvað hún í sameiningu við hann
að taka tilboðinu á meðan börn-
in dveldu hjá honum. „Mér fannst
ég þurfa að skipta aðeins um um-
hverfi og fá frið til að vinna úr til-
finningum mínum. Mér fannst samt
tilhugsunin um að vera í heilan
mánuð frá börnunum mjög erfið og
kveið því mest af öllu. Mig grunaði
samt aldrei að það yrði jafn erfitt
og raun bar vitni en ég ákvað samt
að þrauka út mánuðinn og klára
það sem ég hafði byrjað á. Þetta var
samt mikill skóli og það er svaka-
legt að upplifa þessa miklu fátækt
sem þarna ríkir og eftir heimsókn-
ina lærir maður að vera þakklátur
fyrir allt það sem maður hefur.“
Mér fannst ég þurfa að skipta um
umhverfi og fá frið til að vinna úr til-
finningum mínum.
ÞOLIR EKKI
ORÐIÐ WAG
KRAFTMIKIL Helga Lind Björgvins-
dóttir hefur búið víða með fjölskyldu
sinni. Nú er hún flutt heim og kennir
pilates og hefur gaman af.