Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 18
18 19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN HALLDÓR Samkvæmt dómi Hæstaréttar er kaup-leiga eins og hver önnur lántaka. Í stað þess að skilgreina lánið sem lán er búinn til lagatæknilegur orðhengill um kaup- leigu til að falsa bókhaldið.“ Þetta skrifaði Jónas Kristjánsson nýlega á blogginu sínu. Hvers vegna eru þá ökutækin sem lánað var til enn skráð á fjármögnunarfyrir- tækin hjá Ökutækjaskrá? Í kjölfar gengis- dóma Hæstaréttar og lagasetningar í kjöl- farið hafa tugþúsundir lántakenda fengið endurútreikning á lánum sínum, sem er viðurkenning fjármögnunarfyrirtækja á að samningarnir voru í raun lán en ekki leiga. Þrátt fyrir þetta neita fyrirtækin og Ökutækjaskrá að breyta eigendaskrán- ingu ökutækjanna í samræmi við dómana. Forsendan fyrir ólögmæti gengistrygg- ingarinnar var að samningarnir væru lán. Ástæðan var að gengistrygging leigu er lögleg, en ekki lána samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir: „Þegar þetta allt er virt verður að líta svo á að stefndi hafi í raun veitt áfrýjanda lán til kaupa á bif- reið, sem stefndi kaus í orði kveðnu að klæða í búning leigusamnings í stað þess að kaupa af áfrýjanda skuldabréf, sem tryggt væri með veði í bifreiðinni.“ Fjármögnunarfyrirtækin keyptu aldrei viðkomandi ökutæki og voru ekki aðilar að kaupunum. Því geta þau ekki átt við- komandi ökutæki. Eignarréttur færist frá seljanda til kaupanda, ekki fyrirtækjanna sem lána til kaupanna. Þetta staðfestir skattaleg og bókhalds- leg meðferð viðkomandi ökutækja. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur nr. X-532/2010 var bent á að í bókhaldi fjármögnunar- fyrirtækisins var tækið aldrei fært sem eign, heldur hafi aðeins krafan verið færð til eignar samkvæmt samningi. Tekjur vegna samningsins voru færðar sem vaxtatekjur, en ekki leigutekjur. Sama virðist gilda um önnur fjármögnunar- fyrirtæki við skoðun á ársreikningum. Samningsákvæði um að eignarréttur haldist hjá einhverjum sem keypti aldrei ökutækið, eignaðist það aldrei, færði það aldrei til bókar né taldi fram til skatts er því merkingarlaust þegar það er lesið í tengslum við lög, önnur ákvæði samnings- ins, framkvæmd hans og túlkun dómstóla á innihaldi hans. Fjármögnunarfyrirtækin geta ekki bæði sleppt og haldið. Annað hvort eiga þau ökutækin eða ekki. Hæstiréttur segir að þau eigi þau ekki og það hlýtur að gilda. Hver á bílinn minn? Kaupleiga Eygló Þ. Harðardóttir þingmaður Framsóknar- flokksins VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR ENSKI BOLTINN STÆRRI EN ALLT R íkisstjórnin stefnir enn að því að loka fjárlagagatinu að hluta til með nýjum sköttum. Fjármálaráðherrann er ekki sammála því að skattlagning sé komin að þol- mörkum og að skattar séu háir á Íslandi. Í grein á Smugunni á dögunum skrifaði Steingrímur J. Sigfússon: „Staðreynd mála er hins vegar að öll helstu skatt- hlutföll á Íslandi, með einni undantekningu þar sem er efra þrep í virðisaukaskatti, eru lægri en í flestum samanburðarlöndum. Þau eru lægri en á hinum Norður- löndunum og yfirleitt undir meðaltali OECD ríkja.“ Ráðherrann bætti því við að skattahækkanir til þessa hefðu ekki gengið lengra en svo að þær rétt rúmlega dygðu til að halda skatttekjum í horfinu sem hlutfalli landsframleiðslu. „Hægri söngurinn um óhóflega skattpíningu er því innistæðulaus áróður. Hvort sem skatttekjur sem hlutfall af landsframleiðslu eða samanburður við skatthlut- föll á hinum Norðurlöndunum er notað sem viðmiðun,“ segir Steingrímur. Eins og stundum áður skiptir máli að sambærilegir hlutir séu bornir saman þegar metið er hvort skattar á Íslandi séu hærri eða lægri en í öðrum vestrænum ríkjum. Í skýrslu sem Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn gerði í fyrra að beiðni ríkisstjórnarinnar og fjallaði um leiðir sem mætti fara til að auka tekjuöflun ríkissjóðs, var dregið skýrt fram að við mat á skatttekjum sem hlutfalli af landsframleiðslu á Íslandi yrði að taka tillit til þess að Íslendingar borguðu hátt hlutfall af launum sínum til einkarekinna lífeyris- sjóða. Í flestum öðrum OECD-löndum væru lífeyristryggingar hins vegar fjármagnaðar með sköttum. Þess vegna yrði annað hvort að bæta lífeyrisiðgjöldunum við skattana á Íslandi við útreikning skattbyrði eða draga frá útgjöld til lífeyristrygginga í öðrum löndum. AGS komst að þeirri niðurstöðu að sama væri hvor leiðin væri farin, skattar væru hátt hlutfall landsframleiðslu, með þeim hæstu í OECD og jafnvel háir í norrænum samanburði. Á þessum staðreyndum byggði AGS síðan þau tilmæli sín að varlega yrði að fara í frekari skattahækkanir, til dæmis stig- hækkandi tekjuskatta, ættu þær ekki að valda hagkerfinu „alvar- legum skaða“. Samtök atvinnulífsins hafa rifjað upp þessa skýrslu AGS og jafnframt vísað á samanburð OECD á skatthlutföllum, að frá- dregnum framlögum til lífeyristrygginga. Þar er Ísland í fjórða til fimmta sæti OECD-ríkja ásamt Noregi hvað varðar hlutfall skatta af landsframleiðslu, á eftir Danmörku, Svíþjóð og Nýja- Sjálandi. Samtökin álykta réttilega að Ísland sé háskattaland. Íslendingar bera nú þegar „norræna“ skattbyrði, sem er ein- hver sú hæsta á Vesturlöndum. Ríkisstjórnin getur auðvitað ákveðið að hækka skattana ennþá frekar, en það er ekki hægt að gera í skjóli þess að þeir séu svo lágir í samanburði við önnur lönd og ríkissjóður eigi þannig mikið inni hjá skattgreiðendum. Eru skattarnir á Íslandi háir eða lágir samanborið við önnur vestræn ríki? Háskattalandið Átakasæknin Rétturinn til að knýja fram kjarabætur með verkfalli er undirstaða lífs kjara launafólks. Á bóluárunum mátti oft heyra að verkföll og verkalýðsbarátta væri úrelt; allt átti að gerast á forsend- um einstaklingsins og samstaða þótti gamaldags. Nú eru leikskólakennarar á leið í verkfall og krefjast sambærilegra launa og grunnskólakennarar, enda menntunin eins. Seint verður sagt að sveitarfélögin sýni lipurð í samskiptum, for- maður Sambands íslenskra sveitarfélaga hótar upp- sögnum og skattahækkunum verði gengið að kröfunum og nú hefur samninganefndin lýst því yfir að vonast sé til að hægt verði að forðast átök við verkfallsverði. Það bendir ekki til mikils samningsvilja að slagsmál séu möguleg, en ekki æskileg. Ábyrgð kjörinna fulltrúa Samninganefndin starfar á vegum Sam- bands íslenskra sveitar félaga og á bak við hana geta kjörnir fulltrúar í sveitar- félögunum skýlt sér. Þeir þurfa því ekki að svara fyrir launa- kjör leikskólakennara, hvort mánaðarlaun þeirra séu eðlileg hjá fólki sem elur börnin okkar upp. Vel má vera að hagræði sé í einni samninga- nefnd en heldur snautlegt er að kjörnir fulltrúar svari ekki fyrir stefnuna. Menntunin og launin Leikskólakennsla er göfugt starf og á að vera vel borgað. Eðlilegt er einnig að fyrir sambærileg störf fáist sömu laun. Sú skoðun, sem til dæmis sást í pistli í Viðskiptablaðinu í gær, að forsenda ásóknar í menntun sé hærri laun er hins vegar umhugsunarefni. Vissulega má færa fyrir því rök að lán fyrir margra ára námi kalli á laun sem undir þeim standi. Hvatinn að menntun ætti hins vegar að vera þekkingarleit og – svo naívisminn sé kallaður til – von um betri heim. Ekki bara krónur og aurar. kolbeinn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.