Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 47
FÖSTUDAGUR 19. ágúst 2011 35
Sænska þjóðin er í skýjunum
eftir að Viktoría krónprinsessa
og Daníel prins tilkynntu að þau
ættu von á sínu fyrsta barni.
Barnið er væntanlegt í mars á
næsta ári og prinsessan því rétt
komin þrjá mánuði á leið.
Barnið verður fyrsta barna-
barn Karls Gústafs Svíakonungs
og Silvíu drottningar.
Viktoría prinsessa og Daníel
giftu sig með pompi og prakt í
fyrrasumar og prinsessan hefur
aldrei dulið löngun sína í að
stofna fjölskyldu sem fyrst.
Sænsku netmiðlarnir fóru á
flug á miðvikudaginn þegar til-
kynning barst frá konungsfjöl-
skyldunni og reiknuðu út að
barnið hefði hugsanlega verið
getið á sænska þjóðhátíðar-
daginn, 6. júní.
Svíaprinsessa
á von á barni
VÆNTANLEGIR FORELDRAR Viktoría,
krónprinsessa Svía, og Daníel prins eiga
von á sínu fyrsta barni í mars á næsta
ári. NORDICPHOTOS/GETTY
Gestir barsins Garage í Bergen
áttu ekki von á því að enda mið-
vikudagskvöldið á djammi með
einni af vinsælustu söngkonum
heims, Rihönnu. Rihanna heldur
tvenna tónleika í Bergen í vik-
unni og ákvað að kanna skemmt-
analíf bæjarins eftir þá fyrri.
Rihanna mætti á staðinn
ásamt 30 manna fylgdarliði
og troðfyllti litla barinn, sem
þekktur er fyrir dálæti sitt á
rokktónlist. Rihanna var samt
fljót að biðja um óskalög og
endaði með því að barnum var
breytt í hiphop-dansstað þar
sem plata Jay-Z var spiluð allan
tímann.
Djammaði
í Bergen
HRESS Rihanna kannaði skemmtanalífið
í Bergen en söngkonan heldur tvenna
tónleika þar í vikunni.
NORDICPHOTO/GETTY
Leik- og söngkonan Jennifer Hud-
son sagði í nýlegu viðtali að hún
væri hreyknari af þyngdartapi
sínu en Óskarsverðlaununum sem
hún hlaut fyrir leik sinn í Dream-
girls.
Hudson segir vaxtarlag sitt hafa
verið ólíkt vexti annarra kvenna
í Hollywood en að í heimaborg
sinni, Chicago, hafi hún þótt nokk-
uð grannvaxin. „Í fyrstu skildi ég
ekki af hverju fólk sagði mig vera
„plus size“ en svo þegar ég leit í
kringum mig á rauða dreglinum
fattaði ég við hvað fólk átti.“ Hún
sagði móður sína hafa hvatt sig
áfram eftir að hún tók þá ákvörðun
að grenna sig. „Mamma mín sagði
mér að það þýddi ekkert að fara í
megrun nema mig virkilega lang-
aði til þess að missa nokkur kíló.
Ég ákvað að setja mér markmið og
lagði mikið á mig að ná þeim. Ég er
stoltari af þyngdartapi mínu en ég
er af Óskarnum,“ sagði Hudson í
viðtali við tímaritið Self. Hún seg-
ist jafnframt hafa viljað breyta um
lífsstíl og lifa heilsusamlegar eftir
að hún eignaðist son sinn, David
Daniel Otunga Jr., árið 2009.
Hreyknari af megr-
un en Óskarnum
NÝTT LÍF Jennifer Hudson ákvað að snúa við blaðinu eftir fæðingu sonar síns og lifa
heilsusamlegar. NORDICPHOTOS/GETTY