Fréttablaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 29
19. ágúst föstudagur 5
✽
m
yn
da
al
bú
m
ið
Þessi mynd er af 3. flokki kvenna ÍA. Við vorum að
hampa Íslandsmeistaratitli, ég er pían með tvo bý-
fluguhnúta í hárinu. Ísabella að knúsa Einar Orra í Kjarnaskógi um nýliðna verslunarmannahelgi.
Bræðurnir Alex Be
rgmann og Einar
Orri á góðri stund
u.
Alltaf stutt í brosið hjá Köru Lind.
EKKI WAG
Skammstöfunin „WAG“ er mikið
notað í breskum fjölmiðlum yfir
eiginkonur og unnustur fótbolta-
manna sem eyða dögum sínum í
hádegismat og verslunarleiðangra.
Spurð hvort slíkar týpur finnist
einnig á Íslandi svarar Helga Lind
því neitandi. „Mér finnst þetta svo
hræðilegt orð! Þessar týpur finnast
helst í Bretlandi þar sem eiginkon-
urnar eyða deginum í að kaupa
merkjaflíkur til þess að klæðast
á leikjum. Sumar mættu aldrei
í sama dressinu tvisvar og fyrir
mig, Skagastelpuna sem mætti í
flíspeysu í skólann, var mjög sér-
stakt að koma inn í þennan heim.
En þetta er alls ekki svona í Noregi
eða hér á Íslandi.“
A-MANNESKJA ÚT Í GEGN
Helga Lind starfar nú sem pilates-
kennari hjá Hreyfingu og segir
þá íþrótt hafa nú tekið við af
fótboltanum. Hún kennir bæði á
morgnana og á kvöldin og seg-
ist ekki eiga erfitt með að vakna
í morguntímana. „Það er alls ekki
erfitt,“ segir hún brosandi. „Mér
finnst erfiðara að koma mér í gang
ef ég sef of lengi og vakna eftir
klukkan níu. Ætli ég sé ekki þessi
A-týpa.“
Hún segist ánægð í starfi sínu
en útilokar ekki að hún muni í
framtíðinni bæta við sig menntun
og breyta til. „Ég hef alveg fund-
ið mig í Pilates-kennslunni en ég
held að maður þurfi að passa sig
að staðna aldrei heldur halda sér
á tánum og prófa nýja hluti. En ég
er alsæl í Hreyfingu, þar sem mér
hefur verið tekið opnum örmum.
Það er ekki amalegt að vakna á
hverjum morgni og hlakka til að
fara í vinnuna,“ segir hún brosandi
að lokum.
ROSEBERRY
Nýtt og áhrifaríkt efni fyrir þvagfærin
ROSEBERRY inniheldur þykkni úr trönuberjum ásamt hibiscus og C-vítamíni.
Þessi þrívirka blanda hefur reynst vel við þvagfæravandamálum.
2-3 töflur á dag fyrir svefn
Fæst í apótekum heilsubúðum og
heilsuhillum stórmarkaðanna.
Innflutningsaðili:
Öflugt þrívirkt fæðubótarefni sem slegið hefur í
gegn á Norðurlöndunum
Ranka ráðagóða
Til þess að halda sér frá
þvagfæra-
vandamálum er m.a. gott
að drekka
nóg af vatni, hreyfa sig
reglulega,
þrífa sig vel eftir klóset
tferðir og
eftir samlíf.
KYNNINGARAFSLÁTTUR
til 31. ágúst nk.
20%