Fréttablaðið - 19.08.2011, Side 12

Fréttablaðið - 19.08.2011, Side 12
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR12 Straumhvörf urðu í heims- sögunni þegar Sovétríkin, annað tveggja stórvelda heimsins í nær hálfa öld, liðu undir lok. Tímamót urðu í þeirri atburðarás fyrir réttum tuttugu árum, hinn 19. ágúst árið 1991, þegar harðlínumenn innan Kommúnistaflokksins gerðu tilraun til valdaráns. Þegar komið var fram á níunda áratuginn voru Sovétríkin í mikl- um vandræðum. Stöðnun ríkti og ljóst að breytinga var þörf. Mikhaíl Gorbatsjov hafði risið hratt innan flokksins undir stjórn Júrí Andropov og Konstantíns Tsjernenko á árunum 1982 til 1985 og var skipaður aðalritari flokks- ins í mars sama ár. Hann hóf strax áætlun um efnahagslegar og sam- félagslegar umbætur, perestroika og glasnost, en sló líka nýjan tón í stjórnmálasamskiptum við önnur ríki, þar sem afvopnunarviðræð- ur við Bandaríkin bar einna hæst. Upplausnar fer að gæta Innan Sovétríkjanna voru sömu- leiðis mikil vatnaskipti þegar aðildarríkin fóru að krefjast auk- ins forræðis yfir sínum málum. Sú tilhneiging minnkaði síst undir lok áratugarins þegar frelsisalda reið yfir Austur-Evrópu og hvert fylgi- ríkið á fætur öðru losnaði undan áratugaoki stórveldisins. Umbætur Gorbatsjovs fólu meðal annars í sér minni mið- stýringu stjórnvalda í Kreml og í febrúar árið 1990 var eins flokks kerfið afnumið og efnt til kosninga í öllum fimmtán aðildarríkjum Sovétríkjanna. Uppgangur þjóðernisflokka og umbótasinna var augljós þar sem kommúnistar lutu í lægra haldi í kosningum í fimm ríkjum, Eystra- saltsríkjunum þremur, Georgíu og Moldóvu. Upplausnarferlið hófst svo þegar Litháen lýsti yfir sjálf- stæði 11. mars 1990 og Eistland og Lettland fylgdu þeim fast á eftir. Stjórnvöld í Kreml reyndu að kæfa frelsisbaráttuna og sendu inn herinn, en það varð til lítils og allt stefndi í áttina að lausriðnara ríkjabandalagi. Sverfur til stáls Á miðstjórnarfundi Kommún- istaflokksins í apríl 1991 fór að sverfa til stáls innan forystunnar. Umbótasinnar og afturhald átt- ust þar við og segist Gorbatsjov hafa fengið nóg þegar hugmyndir komu upp um að lýsa yfir neyðar- ástandi. Í endurminningum sínum segist hann hafa sagt: „Ég hef fengið nóg af þessu lýðskrumi. Ég segi af mér [embætti aðalritara].“ Það fór þó ekki svo. Gorbatsjov dró uppsögnina aftur og upplausnar ferlið hélt áfram. Sam- komulag tókst milli Kremlar- veldisins og þeirra níu ríkja sem enn höfðu hug á að vera innan vébanda Sovétríkjanna um að ríkin fengju verulegt sjálfs- ákvörðunarvald meðal annars í efnahagsmálum. Þau yrðu þó enn með sameiginlegan forseta, utan- ríkisstefnu og her. Til stóð að undirrita nýjan ríkjasáttmála þess efnis 20. ágúst, en annað kom heldur betur á dag- inn. Afturhaldsöflin Gorbatsjov hafði dvalið um stutta hríð í sumarhúsi á Krímskaga við Svartahaf, ásamt konu sinni Raísu, þegar dró til tíðinda. Hópur afturhaldssinna innan hæstu raða flokksins hafði komið sér saman um að bola Gorbatsjov frá völdum, kasta nýja ríkjasátt- málanum og endurreisa algert vald flokksins yfir öllum þátt- um samfélagsins. Þar í hópi voru meðal annarra varaforset- inn Gennadí Janajev, Vladimír Krjúskov, yfirmaður leyniþjón- ustunnar KGB, Valentín Pavlov forsætisráðherra, Dimitrí Jasov varnarmálaráðherra og Boris Pugo innanríkisráðherra. Útsendarar þeirra fóru til fundar við Gorbatsjov í sumar- húsið 18. ágúst og kröfðust þess að hann segði af sér og bæri við heilsufarsástæðum, skipaði Janajev í forsetaembætti og lýsti yfir neyðarlögum. Hann varð ekki við því og var í kjölfarið hnepptur í stofufang- elsi. Valdarán afturhaldsins Daginn eftir stigu forsvarsmenn uppreisnarhópsins fram og lýstu yfir stofnun nefndar sem myndi stýra Sovétríkjunum tímabundið. Þeir bönnuðu umsvifalaust aðra stjórnmálaflokka og flest dag- blöð í landinu í þeim yfirlýsta tilgangi að bjarga Sovétríkjun- um frá stórslysi. Gorbatsjov var sagður í veikindaleyfi. Hörð viðbrögð almennings komu flatt upp á uppreisnar- mennina sem höfðu alls ekki við búist við þeim. Jeltsín tekur af skarið Boris Jeltsín, nýkjörinn forseti Rússlands, tók strax af skarið og hélt að þinghúsinu í Moskvu þar sem hann lýsti því yfir að stofnun nefndarinnar væri brot á lögum. Hann beindi tilmælum til her- manna að taka ekki þátt í gern- ingnum og boðaði til allsherjar verkfalls. Þúsundir manna hópuðust að þinghúsinu og létu óánægju sína í ljós. Janajev kom fram í sjón- varpi og reyndi árangurslaust að sefa mannfjöldann, skjálfandi og taugaóstyrkur. Við þinghúsið átti Jeltsín sína stærstu stund þegar hann klifr- aði upp á skriðdreka og ákallaði mótmælendur. Uppreisnarmennirnir ráðgerðu að taka þinghúsið með hervaldi, en ekkert varð af því. Andstað- an var einfaldlega svo mikil að yfirmenn hersins töldu að blóð- bað myndi hljótast af slíkum aðgerðum. Að tveimur dögum liðnum sáu Janajev og félagar í hvað stefndi. Hinn 21. ágúst hafði fjarað undan harðlínuöflunum og þeir reyndu að sættast við Gorbatsjov. Hann vildi ekki heyra á það minnst og flaug aftur til Moskvu. Dag- inn eftir voru uppreisnarmenn- irnir handteknir og allar þeirra ákvarðanir ógildar. Fall stórveldis Þessir þrír dagar reyndust svo sannarlega afdrifaríkir því að þar sást svo ekki var um villst hvernig samfélagið hafði tekið stakkaskiptum. Völd hins mið- stýrða kommúnistaflokks, sem hafði um áratugaskeið hald- ið heilum heimshluta í heljar- greipum, voru ekki í líkingu við það sem áður hafði verið. Í framhaldinu sagði Gorbatsjov skilið við flokkinn, Jeltsín bann- aði starfsemi kommúnista í Rúss- landi og stig af stigi raknaði ríkjasambandið upp. Eitt af öðru lýstu ríkin yfir sjálfstæði og í desember ákváðu FRÉTTASKÝRING: Tuttugu ár frá valdaránstilraun í Sovétríkjunum Upphafið að endalokunum Þorgils Jónsson thorgils@frettabladid.is Pictures: AP, Getty Images Twenty years ago, the Soviet Union split apart and the Cold War came to an end. But the chain of events leading to the collapse was set in motion six years earlier by the sweeping reforms of Mikhail Gorbachev 1985: New Soviet Communist Party (CPSU) leader Mikhail Gorbachev calls for perestroika (economic restructuring) and glasnost (political openness) Aug 21: Coup collapses amid massive public demonstrations, spearheaded by Yeltsin Aug 19: Gorbachev overthrown in coup by Communist hardliners while at his holiday home in Crimea. Plotters aim to prevent signing of new treaty giving republics greater freedom Aug 22: Gorbachev freed from house arrest returns to Moscow but is humiliated in Russian parliament by Yeltsin, who orders that Soviet Communist Party end its activities on Russian soil Dec 8: Leaders of Russia, Belarus and Ukraine meet to disband Soviet Union and form Commonwealth of Independent States (CIS) Sep 6: Independence of Lithuania, Estonia and Latvia recognized Aug 23: Gorbachev resigns as General Secretary of CPSU Jun 1991: Yeltsin elected president of Russian Federation 1990-91: Gorbachev calls for multi- party politics but pro-independence demonstrations in Azerbaijan and Lithuania are violently suppressed 1988: Stirrings of independence in Lithuania, Latvia and Estonia 1989: Boris Yeltsin elected to parliament set up under Gorbachev s reforms. Soviet bloc crumbles as Berlin Wall falls 3 4 56 7 8 9 21 10 11 14 13 12 Feb / Apr: Lithuania (1), Georgia (7) Aug 20-22: Estonia (3), Latvia (2) Aug 24-31: Ukraine (5), Belarus (4), Moldova (6), Azerbaijan (9), Kyrgyzstan (13) Sep: Uzbekistan (11), Tajikistan (14), Armenia (8) Oct: Turkmenistan (10) Dec: Kazakhstan (12) Baltic States do not join CIS. Georgia joins in 1993 but quits in 2008 after war with Russia. Turkmenistan reduces status to associate member in 2005 R U S S I A Moscow SOVIET REPUBLICS: Date independence declared, 1991 1,000km 620 miles Countdown to fall of USSR ' GRAPHIC NEWS Aðdragandi að falli stórveldis Fyrir tuttugu árum síðan gerðu harðlínumenn í sovéska kommúnistaflokknum tilraun til valdaráns. Það rann út í sandinn innan tíðar en í framhaldinu fóru Sovétríkin að liðast í sundur og Kalda stríðið leið undir lok. Atburðarásin fram að því hófst hins vegar sex árum áður þegar Mikhaíl Gorbatsjov hóf umbótaáætlun sína. 1985: G rbatsjov skipaður leiðtogi Kommúnista- flokksins og kallar eftir perestroika (efnahags- umbótum) og glasnost (opnari stjórnarháttum) 198 : Sjálfstæðistitringur í Eystrasalts- löndunum. 1989: ris Jeltsín kjörinn á þing, sem var hluti umbóta Gorbatsjovs. Austurblokkin leysist upp og Berlínarmúrinn fellur. 90-91: atsjov boðar jölflokkakerfi en sjálfstæðisaðgerðir í Aserbaídsjan og Litháen eru barðar niður af hörku. úní 1991: J l ín kjörinn forseti Rússlands. 19. ágúst: Gorbatsjov lt úr sessi í valda- ráni harðlínumanna. Tilgangurinn var að koma í veg fyrir lög um aukin völd aðildarríkjanna. 21. ágúst: Valdaránstilraunin rennur út í sandinn í skugga fjöldamótmæla almennings, sem Jeltsín fer fyrir. 22. ágúst: Gorbatsjov fr lsaður úr st fufangelsi í sumarhúsi sínu á Krím- skaga. Snýr aftur til Moskvu en er settur niður á þingi af Jeltsín, sem bannar starfsemi Kommúnistaflokksins innan landamæra Rússlands. 23.ágúst: Gorbatsjo hættir sem aðal- ritari Kommúnistaflokksins. 6. september: Sjálfstæði Eystrasalts- landanna viðurkennt. 8. desember: Leiðtogar Rússlands, Hvíta-Rússlands og Úkraínu hittast til að leysa upp Sovétríkin en ynda þess í stað Samveldi sjálfstæðra ríkja. 25. desember: Gorbatsjov hverfur úr stóli forseta Sovétríkjanna. Sovétríkin líða endanlega undir lok. RÚ SL AND kva Febrúar og apríl: Litháen (1), Georgía (7) 20.-22. ágúst: Eistland (3), Lettland (2) 24.-31. ágúst: Úkraína (5), Hvíta-Rússland (4), Moldóva (6), Aserbaídsjan (9), Kirgisistan (13) September: Úsbekistan (11), Tadsjikistan (14), Armenía (8) Október: Túrkmenistan (10) Desember: Kasakstan (12) Sovésku ríkin: agsetningar sjálf- stæðisyfirlýsingar árið 1991 Eystrasaltsríkin eru ekki í Samveldi sjálf- stæðra ríkja. Georgía gengur í samveldið árið 1993 en segir sig úr því árið 2008 eftir stríð við Rússa. Túrkm ni t n breytir fullri aðild í aukaaðild árið 2005. Myndir/AP og Getty. leiðtogar Rússlands, Úkraínu og Hvíta-Rússlands að leysa Sovét- ríkin upp og stofna í stað þeirra Samveldi sjálfstæðra ríkja. Það var svo á jóladag árið 1991, rétt fjórum mánuðum eftir að valdaránstilraunin var gerð, sem Gorbatsjov sagði af sér for- setaembættinu og Sovétríkin liðu endanlega undir lok. Höfuðpaurarnir voru hand- teknir, að undanskildum Pugo sem svipti sig lífi áður en til þess kom. Réttarhöldin töfðust nokkuð en árið 1994 fengu þeir allir upp gefnar sakir og voru látnir laus- ir. Margir þeirra fengu störf á ýmsum stofnunum og fyrirtækj- um, en flestir eru látnir í dag. Kaldhæðni örlaganna er sú að þessi misheppnaða tilraun til að festa Kommúnistaflokk- inn og Sovétríkin aftur í sessi hafði þveröfug áhrif. Frekar en að hverfa aftur til fortíðar varð upphlaupið til þess að flýta hinu óumflýjanlega. Annað tveggja stórveldanna var fallið og heims- myndin var allt önnur. Það var svo á jóladag árið 1991, rétt fjórum mán- uðum eftir að valdaránstilraunin var gerð, sem Gorbatsjeff sagði af sér forsetaembættinu og Sovétríkin liðu endanlega undir lok.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.