Fréttablaðið - 19.08.2011, Page 42
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR30 30
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 19. ágúst 2011
➜ Tónleikar
12.00 Klassískir tónleikar í Ketilhúsinu,
Akureyri, með Huldu Jónsdóttur, fiðlu
og Jane Ade Sutarjo, píanó. Aðgangs-
eyrir er kr. 1.500 og kr. 1.000 fyrir eldri
borgara.
21.00 Hjálparsamtökin Veraldarvinir
með góðgerðartónleikum á Sódóma.
Bjartmar og Bergrisarnir, Haffi Haff,
El Camino og The Vintage Caravan
koma fram. Aðgangseyrir er kr. 1.000
og mun renna óskiptur til hjálparstarfs
Veraldarvina.
22.00 Steve Vai tribute hljómsveitin
heldur tónleika á Græna hattinum á
Akureyri. Aðgangseyrir er kr. 1.500.
23.00 Kveðjutónleikar hljómsveitar-
innar Rökkurró verða haldnir á Faktorý.
Ásamt þeim spila Útidúr, Agent Fresco
og Úlfur Úlfur. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
23.00 Pétur Ben leikur á Sumar-
tónleikaröð Bar 11 og Tuborg. Aðgangur
er ókeypis.
➜ Opnanir
15.00 Útisýning á gömlum og sögu-
legum ljósmyndum úr Grófargili opnuð
milli Ketilhúss og Listasafnsins á Akur-
eyri. Allir velkomnir.
17.00 Sýningin Gúbbar opnar í Kaolin
Gallery, Ingólfsstræti 8. Þar sýnir leir-
kerasmiðurinn Rut Ingólfsdóttir högg-
myndir. Allir velkomnir.
➜ Fræðsla
13.00 Vikuleg fræðsluganga um
Grasagarð Reykjavíkur í tilefni af 50
ára starfsafmæli garðsins. Þátttaka er
ókeypis og mæting við aðalinngang.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.
KLASSÍSKIR HÁDEGISTÓNLEIKAR Hulda Jónsdóttir leikur á fiðlu og Jane Ade Sutarjo á
píanó á síðustu hádegistónleikum á vegum Listasumars í Ketilhúsinu á Akureyri. Efnisskráin er afar
fjölbreytt og hefjast tónleikarnir klukkan 12. Aðgangseyrir er 1.500 kr. en 1.000 kr. fyrir eldri borgara.
TAKTU
FORYSTUNA
OG SETTU ÞÉR
MARKMIÐ!
D r. H e l g i Þ ó r I n g a s o n o g d r. H a u k u r
I n g i J ó n a s s o n e r u f o r s tö ð u m e n n h i n s
s í v i n s æ l a m e i s t a ra n á m s í ve r ke f n a -
s t j ó r n u n ( M P M ) á Í s l a n d i
Á Menningarnótt heldur
Torfi Frans Ólafsson sýn-
ingu á ljósmyndum sem
hann tók á ferðalagi um
Norður-Kóreu.
„Norður-Kórea er eins og risa-
stórt safn um kalda stríðið og
kommúnismann. Eins konar
stalín ískur húsdýragarður þar
sem hægt er að sjá heiminn eins
og hann var
víða annars
staðar fyrir
mörgum árum.
Ví ð a h ef u r
hann breyst en
í Norður-Kóreu
er eins og hann
hafi staðið í
stað,“ segir
Torfi F rans
Ólafsson, list-
rænn stjórn-
andi Eve Online, sem heldur sýn-
ingu á ljósmyndum sem hann tók
á ferðalagi sínu um Norður-Kóreu
á Hverfisgötu 52 á Menningar-
nótt. Sýningin nefnist Drauma-
land myrkursins og hangir hún
aðeins uppi þennan eina dag,
laugar daginn 20. ágúst, frá klukk-
an 14 og fram á kvöld.
Torfa bauðst tækifæri til að
ferðast um Norður-Kóreu ásamt
litlum hópi ferðamanna fyrir
þremur árum, en áður hafði hann
eytt löngum stundum við lestur
frétta frá landinu og furðað sig
á því sem þar gengur á. „Þetta
var áróðursferð sem átti að sýna
okkur hvað allt væri frábært í
Norður-Kóreu og ég tók myndir af
öllu því sem ég átti ekki að taka
myndir af,“ segir Torfi. „Íbúar
í landinu eru kúgaðir og settir í
ánauð af einræðis stjórninni og
strúktúrar samfélagsins eru í
niðurníðslu. Í raun er hreint ótrú-
legt að fólk búi við þessi hörmu-
legu skilyrði á 21. öldinni, á
meðan við kvörtum yfir of háum
tollum á iPod-um. Þessi sýning er
ekki fréttaskýring eða vísindaleg
heimild heldur túlkun á minni
upplifun,“ bætir hann við.
Sýningin er sölusýning og allur
ágóði rennur óskiptur til UNI-
CEF, barnahjálpar Sameinuðu
Þjóðanna.
kjartan@frettabladid.is
Eins og stalínískur húsdýragarður
TORFI FRANS
ÓLAFSSON
HÖLL BARNANNA „Skólastúlkur syngja ættjarðarlög um dýrð og yfirburði Norður-Kóreu og guðlegs leiðtoga þeirra í „Höll
barnanna“ í Pyongyang,“ segir Torfi. MYNDIR/TORFI FRANS ÓLAFSSON
EINANGRUNARSTEFNA „Íbúðarhús í Pyongyang. Langvarandi einangrunarstefna og
misheppnuð hagstjórn mikillar hnignunar og niðurníðslu sem sést hvert sem litið
er.”
GRAFHÝSI „Risahöll Kim Il-sung, sem nú er grafhýsi þar sem hann hvílir í glerkistu, til
sýnis eins og Maó í Beijing og Lenín í Moskvu.“
Tónlistarhúsið Harpa verður
vígt á morgun, Menningarnótt.
Meðal viðburða vígslunnar eru
tónleikar sex hörpuleikara sem
frumflytja tvo sextetta.
Það eru verkin Ljósbrot eftir
Mist Þorkelsdóttur, en við tón-
smíðina leit hún til leiks ljóss-
ins í glerhjúp Ólafs Elíassonar
um Hörpu. Ljósin verða einnig
tendruð í fyrsta sinn við vígsl-
una. Hinn sextettinn nefnist
Minning um Thor. Tónskáldið
Atli Heimir Sveinsson samdi
hann til minningar um rithöf-
undinn Thor Vilhjálmsson.
Verkin verða flutt af hörpu-
leikurunum Katie Buckley,
Moniku Abendroth, Gunnhildi
Einarsdóttur, Marion Herrera,
Sólveigu Thoroddsen og Elísa-
betu Waage. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 13.15 við stóra gler-
vegg tónlistarhússins.
- hþt
Hörpuleikur
í Hörpunni