Fréttablaðið - 19.08.2011, Síða 48

Fréttablaðið - 19.08.2011, Síða 48
36 19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR Ellefu ár eru síðan fyrsta og eina plata hljómsveitar- innar Stolið kom út. Sveitin var endurvakin í fyrra og kemur fram á Menningar- nótt á laugardaginn. Með- limir Stolið eru í kringum fertugt og segja það ágætt að fá útrás fyrir barnið í sér á hljómsveitaræfingum. Hljómsveitin Stolið liðaðist í sundur skömmu eftir að fyrsta plata sveitarinnar kom út árið 2000. Meðlimir hennar fluttust til útlanda og sneru sér að öðrum verkefnum. Í fyrra höfðu þeir svo allir skilað sér heim til Íslands og þá var ákveðið að taka aftur upp þráðinn. „Við urðum bara að koma þessu aftur í gang,“ segir bassa- leikarinn Kristinn Jón Arnarson. Plata Stolið hét Allt tekur enda. Svo tók þetta bara enda … „Já, en samt ekki alveg. Við gerðum eitt lag árið 2003 þegar ég var búinn að vera úti einn vetur. Það kallaðist Langt og hafði greinilega mikla vísun í framtíð- ina. Hléið varð langt en tók svo enda,“ segir Kristinn. Auk Kristins skipa Stolið Guðmundur Annas Árnason, söngvari og gítarleikari, Snorri Gunnarsson gítarleikari, Jón Gestur Sörtveit trommuleikari og Huldar Freyr Arnarson, hljóm- borðsleikari og hljóðmaður. Huld- ar var áður trommari Stolið en hefur fært sig framar á sviðið. Gamla trommarafeimnin er þó greinilega enn til staðar því hann var ekki mættur þegar ljósmynd- ari Fréttablaðsins hitti sveitina á miðvikudagskvöldið. Nýtt lag Stolið kallast Föllin og hefur verið dreift á útvarps stöðvar auk þess sem myndband við lagið er að finna á fésbókarsíðu sveitar- innar. Kristinn segir að lagið fjalli um breyskleika mannsins. „Við erum alltaf að falla á einhvern hátt, að klúðra hlutunum. En það er líka bjartsýni í þessu; maður verður að treysta því að maður komist á leiðarenda, hafa trú á því að þetta reddist.“ Miðað við þessa lýsingu gæti þetta verið AA-boðskapur … „Nei, við erum ekki farnir að predika neitt. Við erum allir réttu megin við snúruna, þó það megi eflaust líta öðruvísi á það,“ segir hann í léttum tón. Það hefur ýmislegt breyst á þeim rúma áratug sem liðinn er síðan Stolið starfaði síðast. Nú þurfa hljómsveitir ekki að punga út háum fjárhæðum til að taka upp tónlist sína og auðveldara er að gera myndbönd en áður. Lífið er líka breytt hjá meðlimum Stolið því börnum þeirra hefur fjölgað frá tveimur og upp í ellefu. Aðspurður segir Kristinn að meðalaldur með- lima sé að skríða yfir fertugt. „Það er rosalegt!“ segir hann. „Einhverjir kynnu að halda að við værum komnir í eitthvað mið- aldra poppdæmi en reyndin er sú að við erum þyngri ef eitthvað er. Þetta er þvílíkt rokk á köflum og það hefur komið sjálfum okkur á óvart. Kannski er maður bara að fá útrás fyrir barnið í sér, heima sjá aðrir um barnalætin.“ Stolið treður upp á Menningar- nótt á morgun. Tónleikarnir eru í bakgarði Gallerís Ófeigs, Skóla- vörðustíg 5, á milli 16-18. Þar koma einnig fram Elín Helena og Baku Baku. hdm@frettabladid.is En það er líka bjartsýni í þessu; maður verður að treysta því að maður komist á leiðarenda, hafa trú á því að þetta reddist. KRISTINN JÓN ARNARSON BASSALEIKARI Íslandsmyndband indí-rokkarans Bon Iver við lagið Holocene var frumsýnt á heimasíðu National Geo graphic í gær. Myndbandinu er leikstýrt af Nabil Elderkin, sem hefur unnið mikið með rapp- ofurstjörnunni Kanye West. Fjallað var um mynd- bandið á vefsíðu pitchfork.com í gær en það hefur þegar vakið mikla athygli. Í hverri viku er eitt myndband valið á vefsíðu National Geographic sem þykir sýna fjölbreytileik- ann á vefnum. Að þessu sinni var hins vegar tekin sú ákvörðun að frumsýna myndband Bon Iver en það þykir sýna einstaka náttúrufegurð landsins. Myndbandið er tekið upp við Vík í Mýrdal og segir leikstjórinn að það hafi alltaf verið draumur sinn að gera myndband á Íslandi. „Ísland er töfrum hlaðið og lítur út fyrir að vera Mars. Mig hefur alltaf langað til að gera myndband þarna og þegar Bon Iver gaf mér leiðbeiningar fyrir myndbandinu þá vissi ég að Ísland væri staðurinn.“ Myndbandið sýnir ungan íslenskan dreng ganga um í náttúrunni og sjást þekktir staðir eins og Dyrhólaey, Svarti- foss og Jökulsárlón og er einstaklega fallegt að líta. Lagið Holocene er af plötu Bon Iver, samnefndri sveitinni, sem kom út í júní. - fgg Íslandsmyndband Bon Iver frumsýnt ÍSLANDSMYNDBAND Bon Iver fékk hinn virta myndbandaleik- stjóra Nabil Elderkin til að gera myndband fyrir sig við lagið Holocene. Elderkin valdi Ísland sem tökustað. Gott að fá útrás í rokkinu MEIRA ROKK EN ÁÐUR Hljómsveitin Stolið hefur verið endurvakin og kemur fram á Menningarnótt á morgun. Frá vinstri eru Guðmundur söngvari, Kristinn bassaleikari, Jón Gestur trommari og Snorri gítarleikari. Á myndina vantar Huldar Frey hljómborðs- leikara. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÖSTUDAGUR: ANDLIT NORÐURSINS 18:00, 20:00, 22:00 ANIMAL KING- DOM 17:50, 20:00, 22:10 MONSTERS 22:00 ÍSLENSKA RÚSTA- BJÖRGUNARSVEITIN Á HAITI (ICE-SAR) 18:00 ENGLAR ALHEIMSINS (ANGELS OF THE UNIVERSE) 20:00 VILLILJÓS (DRAMARAMA) 22:00 ENGLISH SUBTITLES MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDA- MIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS / www.bioparadis.is / midi.is CHANGE UP 8 - FORSÝNING CONAN THE BARBERIAN 8 og 10.20 COWBOYS & ALIENS 10.20 STRUMPARNIR - 3D 4 og 6 - ISL TAL STRUMPARNIR - 2D 4 og 6 - ISL TAL CAPTAIN AMERICA - 3D 7.30 BRIDESMAIDS 5 og 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar T.V. - kvikmyndir.is FORSÝNING M.M.J - kvikmyndir.is HÖRKU SPENNUMYND www.laugarasbio.is -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar ÁLFABAKKA V I P V I P 12 12 14 16 16 16 14 12 L L 7 7 L EGILSHÖLL 12 12 12 1212 10 12 12 12 L L L L L L AKUREYRI GREEN LANTERN kl. 5:40 - 10:30 3D LARRY CROWNE kl. 8 D2 CARS 2 BÍLAR 2 m/ísl. tali kl. 5:40 2D HORRIBLE BOSSES kl. 8 HARRY POTTER kl. 10:10 2D LARRY CROWNE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D LARRY CROWNE LUXUS VIP kl. 8 - 10.20 2D COWBOYS & ALIENS kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 2D GREEN LANTERN kl. 3 - 5:40 - 8 - 10.20 2D HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 2D HORRIBLE BOSSES LUXUS VIP kl. 3 - 5.30 2D BÍLAR 2 m/ ísl. tali kl. 3 - 5.30 3D BÍLAR 2 m/ ísl. tali kl. 3 - 5.30 2D HARRY POTTER kl. 8 - 10.40 2D L L KRINGLUNNI 12LARRY CROWNE kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D LAST DAYS OF THE ARTIC kl. 6 - 8 2D SMURFS m/ ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 3D SMURFS m/ ísl. tali kl. 3:40 2D GREEN LANTERN kl. 10.30 3D HORRIBLE BOSSES kl. 10 2D HARRY POTTER kl. 8 3D BÍLAR 2 m/ ísl. tali kl. 3:30 3D STÓRKOSTLEGAR TÆKNIBRELLUR 14 14 12 12 L L L L LARRY CROWNE FRÁBÆR RÓMANTÍSK GRÍNMYND JULIA ROBERTSTOM HANKS SELFOSS CONAN THE BARBARIAN kl. 8 - 10.20 FRIENDS WITH BENEFITS kl. 8 GREEN LANTERN kl. 5.30 COWBOYS & ALIENS kl. 10:20 BÍLAR 2 ísl. tal kl. 5.30 FINAL DESTINATION 5 kl. 10:40 3D THE SMURFS m/ísl tali kl. 2:30 - 5 3D COWBOYS & ALIENS kl. 8 - 10:30 2D THE SMURFS m/ísl tali kl. 2:30 - 5 2D RISE OF THE PLANET OF THE APES kl. 8 - 10:20 2D BÍLAR 2 m/ísl tali kl. 2:30 3D COWBOYS & ALIENS kl. 5:20 2D HORRIBLE BOSSES kl. 8 2D CAPTAIN AMERICA kl. 10:45 3D BÍLAR 2 m/ísl tali kl. 2:30 2D GREEN LANTERN kl. 5:20 3D HARRY POTTER kl. 8 3D Box of Magazine 14 7 KEFLAVÍK LARRY CROWNE kl. 8 2D CONAN THE BARBARIAN kl. 10:20 2D STRUMPARNIR m/ísl. tali kl. 5:40 3D CARS 2 m/ísl. tali kl. 5:40 2D HORRIBLE BOSSES kl. 8 BAD TEACHER kl. 10:10 2D 12 12 SÝND Í 2D OG 3D MEÐ ÍSLENSKU TALI OG ENSKU TALI Í 2D BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK STRUMPARNIR FARA Á KOSTUM! SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR “ÓMISSANDI EPÍSK RÓMANTÍK!” - HARPER’S BAZAAR 5% NE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L ONE DAY LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 L COWBOYS AND ALIENS KL. 5.25 - 10.20 14 STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 - 8 L STRUMPARNIR 2D ÍSL. TAL KL. 3.20 - 5.40 L RISE OF THE PLANETS OF THE APES KL. 8 - 10.20 12 FRIENDS WITH BENEFITS KL. 8 - 10.20 12 STRUMPARNIR 3D ÍSL. TAL KL. 6 L COWBOYS AND ALIENS KL. 8 - 10.15 14 CAPTAIN AMERICA 3D KL. 8 12 RISE OF THE PLANET OF THE APES KL. 6 - 10.15 12 CONAN THE BARBARIAN KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 ONE DAY KL. 5.30 - 8 - 10.30 L CAPTAIN AMERICA 3D KL. 8 - 10.35 12 STRUMPARNIR 3D ÍSL.TAL KL. 5.40 L THE SMURFS 2D ENS. TAL KL. 5.40 - 8 - 10.20 L T.V. - KVIKMYNDIR.IS / SÉÐ OG HEYRT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.