Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.08.2011, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 19.08.2011, Qupperneq 50
19. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR38 sport@frettabladid.is Þórsvöllur, áhorf.: 1.402 Þór KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–12 (4–8) Varin skot Rajkovic 6 – Hannes 5 Horn 2–10 Aukaspyrnur fengnar 7–9 Rangstöður 2–2 KR 4–3–3 Hannes Þór Halld. 6 Magnús Már Lúðv. 5 (66. Dofri Snorrason 5) *Grétar Sigurðars. 8 Aron Bjarki Jósepss. 6 Gunnar Þór Gunn. 4 Baldur Sigurðsson 6 Viktor Bjarki Jósepss. 6 Björn Jónsson 7 (66. Egill Jónsson 6) Guðjón Baldvinsson 5 Kjartan Henry Finnb. 7 Guðm. Reynir Gunn. 6 *Maður leiksins ÞÓR 4–3–3 Srdjan Rajkovic 5 Gísli Páll Helgason 5 Þorsteinn Ingason 6 Janez Vrenko 6 Ingi Freyr Hilmarsson 5 (73. Sigurður Marinó -) Aleksandar Linta 5 Atli Sigurjónsson 6 Clark Keltie 5 Jóhann H. Hanness. 5 (35. David Disztl 4) Sveinn Elías Jónsson 7 (81. Ármann Pétur -) Gunnar Már Guðm. 4 1-0 Sveinn Elías Jónsson (21.) 1-1 Kjartan H. Finnbogason, víti (61.) 1-2 Grétar S. Sigurðarson (86.) 1-2 Gunnar Jarl Jónsson (6) EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN og félagar í AEK Aþenu unnu í gær 1-0 sigur á Dinamo Tbilisi í forkeppni Evrópudeildar UEFA í gær. Eiður lék fyrstu 81 mínútuna en sigurmarkið kom þremur mínútum fyrir leikslok. Elfar Freyr Helgason var ekki í leikmannahópi AEK í gær en liðin mætast í Grikklandi í næstu viku. 00VILD LANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 70ARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERS MISSTU EKKI AF FYRSTA STÓRLEIK TÍMABILSINS Á MORGUN KL. 11:35 TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT STRAX! GOLF Ólafur Björn Loftsson fór vel af stað á Wyndham PGA-mótinu í Norður-Karólínuríki í gær og lék á tveimur höggum undir pari. Var hann vel fyrir ofan miðjan hóp og á góðan möguleika á að komast í gegnum niðurskurðinn ef hann heldur sig á sömu braut. Samtals lék hann á 68 höggum eða tveimur undir pari vallarins. og endaði í 41. sæti ásamt fleiri kylfingum. Hann byrjaði reyndar ekki vel og fékk skramba á fyrstu holu. Það reyndist í eina skiptið sem hann lék holu á yfir pari. „Þetta var alvöru byrjun,“ sagði hann í léttum dúr. „Ætli ég hafi ekki verið örlítið stressaður og svo lenti ég þar að auki utan brautar þar sem ég var í þykkum karga. Þetta er þar að auki erfið hola og var pinninn til að mynda á erfið- um stað.“ Er með sterkar taugar Hann segist ekki hafa svekkt sig á þessari byrjun. „Ég átti von á því að þetta yrði erfitt í dag en sem betur fer náði ég að halda dampi. Ég er með sterkar taugar og á ekki í erfiðleikum með að höndla press- una sem fylgir því að leika á svona sterku móti. Ég hafði vissulega ekkert gaman af því að fá þessa erfiðu byrjun en það kom heldur ekkert annað til greina en að halda áfram að spila mitt golf.“ Það var einmitt það sem Ólafur Björn gerði. Hann fékk þrjá fugla á næstu fimm holum. Hann fékk svo annan fugl á seinni níu og skil- aði sér í hús á tveimur höggum undir pari. „Ég sló fullt af frábær- um golfhöggum í dag og hitti flestar brautirnar – allar nema tvær. Ég kom mér líka í fugla- færi á flestum holum þar að auki og ég tel það vera mjög gott að vera á fjórum höggum undir pari á síðustu sautján holun- um. Ég hefði jafnvel getað náð enn betri árangri ef fleiri pútt hefðu dottið ofan í hjá mér.“ Hann lék í holli með Ástra la num Cameron Percy og Billy Horschel frá Banda- ríkjunum í gær og verð- ur með þeim aftur í dag. Öllum gekk þeim vel í gær – Percy lék á tveimur undir og Horschel á þrem- ur undir. „Þetta voru flottir gaurar og létt yfir okkur öllum. Mér leið virkilega vel úti á vell- inum.“ Hugsar ekki um niður- skurðinn Í dag fellur um helmingur kylfinganna úr leik en ekki er ólíklegt að Ólaf- ur Björn þurfi að spila jafn vel í dag til að komast í gegnum hann. En því er hann ekki að velta fyrir sér nú. „Ég fer ekki í mót og hugsa um niður- skurðinn. Ég fer í öll mót til að vinna og það á einnig við nú. Ég mun aðeins hugsa um minn leik og að gera mitt besta. É g mu n hugsa um eitt högg í einu og svo kemur í ljós hverju það skil- ar. Það er full ástæða til að ætla að ég geti gert enn betur á morgun. Það eru engin tak- mörk fyrir því.“ Margir þekktir kylf- ingar keppa á mótinu og sumir spiluðu verr en Ólaf- ur í gær. Til að mynda hinn skrautlegi John Daly og Írinn Padraig Harrington, sem báðir voru á höggi undir pari í gær. „Þetta er draumurinn og hérna vil ég vera. Ég mun gera allt sem ég get til að láta það rætast. Ég útskrifast úr skóla næsta vor og ætla mér að gerast atvinnumaður þá. Ég stefni að því að spila með þessum köppum reglulega þá.“ Ólafur Björn ræsir út klukkan 17.50 á íslenskum tíma í dag og spilar í sama holli og í dag. eirikur@frettabladid.is ÓLAFUR BJÖRN Lék vel á Wyndham-mótinu í Bandaríkjunum í gær. Stefnan sett á sigur eins og ávallt Ólafi Birni Loftssyni gekk vel á fyrsta keppnisdeginum á Wyndham PGA-mótinu í Bandaríkjunum í gær. Hann lék betur í gær en margir heimsþekktir kylfingar og er í góðri stöðu fyrir niðurskurðinn í dag. Evrópudeild UEFA FORKEPPNI, FYRRI LEIKIR Álasund - AZ Alkmaar 2-1 Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn fyrir AZ Alkmaar. FC Thun - Stoke City 0-1 0-1 Danny Pugh (18.). Fulham - Dnipro 3-0 1-0 Aaron Hughes (38.), 2-0 Clint Dempsey (43.), 3-0 Clint Dempsey (49.). Hearts - Tottenham 0-5 0-1 Rafael van der Vaart (5.), 0-2 Jermain Defoe (13.), 0-3 Jake Livermore (28.), 0-4 Gareth Bale (63.), 0-5 Aaron Lennon (78.). Eggert Gunnþór Jónsson var ónotaður varamaður hjá Hearts. AEK Aþena - Dinamo Tbilisi 1-0 1-0 Jose Carlos (87.) CD Nacional - Birmingham 0-0 Sænska úrvalsdeildin Djurgården - Tyresö 0-3 Guðbjörg Gunnarsdóttir, Katrín Jónsdóttir og Dóra María Lárusdóttir léku allan leikinn fyrir Dj. Pepsi-deild karla STAÐAN KR 13 10 3 0 30-10 33 ÍBV 14 9 2 3 22-12 29 FH 15 8 4 3 31-19 28 Valur 15 8 4 3 23-12 28 Stjarnan 15 6 5 4 30-24 23 Fylkir 15 5 4 6 22-27 19 Keflavík 14 5 2 7 18-20 17 Þór 15 5 2 8 22-30 17 Breiðablik 15 4 4 7 22-28 16 Grindavík 15 4 4 7 19-29 16 Fram 15 1 5 9 9-22 8 Víkingur 15 1 5 9 13-28 8 ÚRSLIT SKRAUTLEGUR John Daly var klæddur í appelsínugult í gær. Hann lék á einu höggi undir pari á fyrsta keppnis- deginum. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Það voru engir meistara- taktar hjá KR á Akureyri í gær, meistaraheppni er nær lagi en liðið vann þó Þór 1-2. KR fékk á sig mark um miðjan fyrri hálfleik þegar Sveinn Elías gerði mjög vel og skoraði gott mark eftir að Þór hafði verið betri aðilinn. Toppliðið fékk síðan víti þegar Atli Sigurjónsson togaði Björn Jónsson niður eftir klukkutíma leik og Kjartan Henry skoraði. Peysutog Atla var alls ekki mikið en nóg til að Björn féll. Kjartan Henry fékk síðan sitt annað gula spjald og þar með rautt fimmtán mínútum fyrir leikslok en KR vann samt sem áður leik- inn. Grétar Sigfinnur skoraði gott skallamark eftir horn og kom KR fjórum stigum frá ÍBV á toppnum. Liðið á auk þess leik til góða. Biðin eftir því að Þórsarar keyrðu á KR eftir rauða spjaldið stendur enn yfir, í stað þess gekk KR á lagið. Vestubæjarliðið stýrði reyndar leiknum lengst af en hefur oft spilað betur. KR-ingar voru ósáttir við dómara umfjöllun Stöðvar 2 Sport í vikunni og aðeins Rúnar Kristins- son gaf Fréttablaðinu færi á við- tali. „Ég er rosalega ánægður með sigurinn og við vorum betri allan leikinn. Ég er ósáttur við rauða spjaldið, Kjartan fékk tvö glóru- laus gul spjöld. Við fengum aug- ljóst víti eftir að okkur var neitað um annað. Í ljósi umræðna hjá Stöð 2 þora menn ekki að dæma og með þessu er búið að hafa áhrif á dóm- arana. Við erum komnir hingað til að spila heiðarlegan leik en erum sparkaðir niður trekk í trekk. Samt fáum við fleiri spjöld en Þór. Ef þetta er leiðin til að reyna að brjóta KR á bak aftur er þetta röng leið,“ sagði Rúnar ósáttur. Páll Viðar Gíslason, kollegi hans, var einnig ósáttur. „Þetta er mest svekkjandi tap sem ég hef séð. Ég þarf að passa mig að missa ekkert út úr mér en ég er alveg sjóðandi. Ég trúi ekki að menn hafi ekki sýnt meiri sigurvilja, það er nánast ófyrirgefanlegt að vinna ekki. Ég þekki ekki liðið sem spil- aði í seinni hálfleik,“ sagði þjálfar- inn. - hþh KR steig enn nær Íslandsmeistaratitlinum með góðum 1-2 sigri á Þór á Akureyri í gær: Ekki rétta leiðin til að brjóta KR niður KJARTAN HENRY Skoraði og sá rautt gegn Þór í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.