Fréttablaðið - 02.09.2011, Page 4
2. september 2011 FÖSTUDAGUR4
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
S
FG
4
20
40
0
4.
20
08
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
27°
21°
18°
26°
27°
17°
17°
27°
25°
31°
25°
29°
18°
29°
27°
18°Á MORGUN
Strekkingur á V-fjörðum
annars mun hægari.
SUNNUDAGUR
Hæg norðaustlæg
eða breytileg átt.
10
10
11
11
11
13
14
14
13
13
6
9
7
8
9
7
5
6
5
6
7
8
13
12
12
14
8 10
15
12
14
7
HELGARSPÁIN
Veðrið um helgina
verður nokkuð
gott. Vindur verður
yfi rleitt mjög
hægur en strekk-
ingur á Vestfjörð-
um. Víða dálítil
væta á morgun en
á sunnudag styttir
víðast upp og léttir
jafnvel eitthvað til,
einkum syðra.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
FRÉTTASKÝRING
Hvernig verður nýtingarrétti Huangs
Nubo háttað á Grímsstöðum, gangi
kaup hans eftir?
Allar meiriháttar framkvæmdir
sem kínverski fjárfestirinn Huang
Nubo vill ráðast í á Grímsstöðum
á Fjöllum verða háðar samþykki
meðeiganda hans, ríkisins. Nubo
hefur sótt um undanþágu hjá inn-
anríkisráðuneytinu frá banni við
fasteignakaupum ríkisborgara
utan EES til að geta keypt 72 pró-
senta hlut í Grímsstöðum, sem er
um 300 ferkílómetra jörð, ein sú
stærsta á landinu öllu. Ríkið á 25
prósenta hlut í jörðinni og stendur
ekki til að selja hann, samkvæmt
Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Fái Nubo undanþágu hjá ráðu-
neytinu mun hann eiga Gríms-
staði í óskiptri sameign með rík-
inu. Með óskiptri sameign er átt
við að eignarhlutum landsins er
ekki skipt upp landfræðilega, held-
ur eiga báðir aðilar sinn hlut, óháð
staðsetningu.
Karl Axelsson hæstaréttarlög-
maður segir Nubo í raun og veru
vera með hendur bundnar hvað
framkvæmdir varðar þar til ríkið
veiti samþykki sitt.
„Hann gæti hugsanlega farið í
eitthvað sem væri ekki á neinn hátt
að ganga á hagsmuni sameiganda
hans, eins og til dæmis að koma
sér upp sauðfé og beita því á land-
ið. Allt umfram það útheimtir sam-
þykki sameigandans.“
Þeir sem eiga saman jörð í
óskiptri sameign geta látið skipta
lóðinni upp landfræðilega. Karl
bendir þó á að það sé ekki einung-
is stærð landsins sem skipti máli,
heldur einnig hvernig landið er
metið.
„Hluti af Grímsstöðum er regin-
fjöll og öræfi – algjörlega verðlaust
land. Annað er undirlendi sem er
miklu verðmætara,“ segir Karl.
„Eftir skiptingu þurfa eigendur að
eiga það sem svarar hlutfallslegri
eign þeirra í verðmætum. Stærð
er ekki eini mælikvarðinn, heldur
líka gæði og eðli landsins.“
Ef til þess kæmi að ríkið seldi
Nubo sinn hlut í Grímsstöðum,
væri hann háður sömu lögum er
varða lóðareignir og allir aðrir
landeigendur.
„Ef hann ætti landið einn og
áformaði framkvæmdir, þá þyrfti
hann að fá samþykkt deiliskipu-
lag eða breytingu á aðalskipulagi,
byggingaleyfi, leyfi samkvæmt
auðlindalöggjöf og svo framvegis.
Allt með nákvæmlega sama hætti
og ef íslenskur aðili ætlaði að fara
sömu leið,“ segir Karl en sveitar-
félög fara með skipulagsvald.
Innanríkisráðuneytið hefur veitt
24 erlendum aðilum utan EES und-
anþágu til kaupa á fasteignum og
lóðum hér á landi síðan árið 2007.
Einum aðila hefur verið synjað og
var það í fyrra. Ráðuneytið vill
ekki gefa upp ástæðu synjunar-
innar. sunna@frettabladid.is
Nubo háður samþykki hins
opinbera með framkvæmdir
Gangi kaup Huangs Nubo á Grímsstöðum eftir verður hann háður samþykki opinberra aðila varðandi
allar framkvæmdir. Ríkið og Nubo munu eiga landið í óskiptri sameign þar til því verður skipt upp.
GRÍMSSTAÐIR Á FJÖLLUM Gangi kaup Huangs Nubo á um 72 prósenta hlut á Grímsstöðum eftir, mun hann þurfa að leita eftir samþykki ríkisins hvað varðar allar meiriháttar
framkvæmdir á svæðinu. MYND/SIGGA HALLGRÍMS
EFNAHAGSMÁL Alls 97 fyrirtæki
voru tekin til gjaldþrotaskipta í
júlí. Það er tvöfaldur fjöldi þeirra
fyrirtækja sem úrskurðuð voru
gjaldþrota í sama mánuði í fyrra.
Þetta kom fram í Morgunkorni
Íslandsbanka á miðvikudag.
Þetta er sjötti mánuðurinn í röð
sem aukning á sér stað í fjölda
gjaldþrota á milli ára. Alls hafa því
938 fyrirtæki orðið gjaldþrota á
fyrstu sjö mánuðum ársins sem er
aukning um 55 prósent á milli ára.
Í Morgunkorni segir að sú seinkun
sem orðið hefur á fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækja
skýri málið að stórum hluta.
Í júlí voru gjaldþrot tíðust hjá
fasteigna- og byggingarfyrir-
tækjum. Þá voru fleiri fyrirtæki
nýskráð í mánuðinum en urðu
gjaldþrota. - mþl
Nýskráningar enn fleiri:
Fleiri fyrirtæki
gjaldþrota
HOLLAND, AP Frakkland og Þýska-
land bera verulega ábyrgð á
skuldakreppu evruríkjanna, segir
Jan Kees de Jage, fjármálaráð-
herra Hollands.
Hann segir
að fordæmi
þessara tveggja
stærstu ríkja
evrusvæðisins,
þegar fjárlaga-
halli þeirra
beggja fór yfir
þriggja pró-
senta markið
árin 2003 og
2004, hafi orðið til þess að smærri
ríki leyfðu sér hömlulítið að safna
skuldum langt umfram þau mörk,
sem reglur evrusvæðisins kveða á
um. Þetta hafi á endanum leitt af
sér kreppuna, sem nú sligar ríkin
á evrusvæðinu. - gb
Fjármálaráðherra Hollands:
Stóru evruríkin
bera ábyrgðina
EFNAHAGSMÁL Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn (AGS) spáir minni sveifl-
um í hagvexti á Íslandi á næstu
árum en Seðlabankinn. Þá spáir
AGS meiri hagvexti í ár og á næsta
ári en OECD. AGS birti nýjustu
hagvaxtarspá sína fyrir Ísland í
fyrradag.
Forvitni legt er að bera
hagvaxtarspá AGS saman við spár
Seðlabankans og OECD sem birt-
ar hafa verið síðustu mánuði. Í spá
sinni gerir AGS ráð fyrir nokkuð
stöðugum hagvexti næstu ár. Á
næsta ári er gert ráð fyrir 2,5 pró-
senta hagvexti, 3,1 prósents hag-
vexti árið 2012 og svo 2,8 prósenta
hagvexti 2013.
Í nýjustu spá Seðlabankans er
hins vegar gert ráð fyrir töluvert
meiri sveiflum í hagvexti. Seðla-
bankinn spáir 2,8 prósenta hagvexti
í ár, 1,6 prósenta hagvexti 2012 og
3,7 prósenta hagvexti árið 2013.
Efnahags- og framfarastofn-
un Evrópu hefur einnig birt
hagvaxtarspá fyrir Ísland en hún
nær einungis fram á næsta ár.
Stofnunin er varfærnari en AGS
og spáir 2,2 prósenta hagvexti í ár
og 2,9 prósenta hagvexti á næsta
ári. - mþl
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur birt nýja hagvaxtarspá fyrir Ísland:
AGS spáir minni sveiflum í hagvexti
JAN KEES DE JAGER
DANMÖRK Dönskum börnum
þykja feður sínir jafnan
skemmtilegri en mæðurnar.
Þetta kemur fram í nýrri rann-
sókn frá Háskólanum í Álaborg.
Könnunin náði til 1.562 barna
á aldrinum 11 til 16 ára, sem
voru spurð að því hvort foreldr-
ið hefði meiri húmor, hvort
væri betra í að segja brandara
og hvort væri líklegra til að
sprella.
Feður komu betur út bæði hjá
stúlkum og drengjum, í öllum
þremur flokkum. - þj
Ný dönsk viðhorfskönnun:
Pabbar fyndn-
ari en mömmur
HUANG NUBO KARL AXELSSON
GENGIÐ 01.09.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,4457
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
113,92 114,46
184,62 185,52
162,63 163,55
21,826 21,954
21,109 21,233
17,838 17,942
1,4778 1,4864
182,29 183,37
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Hagvaxtarspá
4
3
2
1
0
2011 2012 2013
%
OECD gefur ekki út hagvaxtarspá fyrir árið 2013
■ Seðlabanki Íslands
■ AGS
■ OECD