Fréttablaðið - 02.09.2011, Side 6
2. september 2011 FÖSTUDAGUR6
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Arges PROFESSIONAL
Einfasa rafstöð HD3800
Bensín m/rafstarti 3,2KW
87.900,-
Ryk/blautsuga
15 lítrar HKV 1000w
18.900,-
Slípirokkur
HDA 436 1050w
7.490,-
Rafhlöðuborvél, HDA2544
17.900,-
Rafmagnsborvél,
HDA 310
11.990,-
DÓMSMÁL Lögregla hefur lokið
rannsókn á máli manns sem situr
í gæsluvarðhaldi, grunaður um að
hafa nauðgað ungri konu á Þjóðhá-
tíð í Vestmannaeyjum. Málið hefur
verið sent Ríkissaksóknara til
ákærumeðferðar.
Í greinargerð lögreglu til héraðs-
dóms vegna málsins kemur fram
að maðurinn sást elta stúlkuna að
veitingatjaldi á svæðinu, þar sem
hún leitaði aðstoðar þriggja gæslu-
manna eftir að hafa flúið undan
manninum. Gæslumönnunum ber
saman um að hún hafi verið hrædd
og hafi skýlt sér bak við þá. Maður-
inn hafi verið mjög ölvaður og við-
haft „kynferðislega tilburði og orð-
bragð“ gagnvart stúlkunni.
Maðurinn hefur orðið margsaga
við yfirheyrslur en framburður
stúlkunnar er stöðugur. Gæsluvarð-
hald yfir manninum rennur út í dag.
- jss
Nauðgun á Þjóðhátíð:
Málið sent til
Ríkissaksóknara
EFNAHAGSMÁL Hægt er að afnema
verðtryggingu án mikils kostnað-
ar ef verðbólga helst lág og stöðug.
Hvort það sé raunhæft er hins vegar
önnur og flóknari spurning.
Þetta sagði Ásgeir Daníelsson,
forstöðumaður á hagfræðisviði
Seðlabankans, á málstofu um verð-
tryggingu sem Íslandsbanki stóð
fyrir í gær.
Í máli sínu velti Ásgeir því fyrir
sér hverjar afleiðingar þess yrðu
að afnema verðtryggingu á Íslandi.
Slíkt væri hægt að gera með ýmsum
hætti; banna hana með lögum eða
þá vinna gegn notkun hennar með
því að skapa þannig aðstæður að
fólk væri ólíklegra til að gera verð-
tryggða samninga.
„Lykilatriði til að það sé hægt er
hins vegar að verðbólga sé lág og
stöðug, fyrst og fremst þarf hún þó
að vera stöðug,“ sagði Ásgeir. „Vand-
inn er að verðbólga, sérstaklega ef
hún er veruleg, er mjög ófyrirsjáan-
leg. Hér á landi höfum við til dæmis
haft á þessari öld tvö eða þrjú verð-
bólguskot. Þau valda óvissu sem
er langt umfram það sem þekkist
víðast hvar annars staðar og því
er eðlilegt að það skapist viðleitni,
bæði hjá lánveitendum og lántak-
endum, til að verðtryggja lán.“
Ásgeir sagði kostnaðinn af
afnámi verðtryggingar skiptast
í tvennt. Raunvextir yrðu hærri
þar sem lánveitendur myndu krefj-
ast áhættuálags vegna verðbólgu-
áhættu. Þá myndi endurgreiðslu-
ferilinn af óverðtryggðum lánum
verða mjög framhlaðinn ef verð-
bólga myndi skyndilega hækka
töluvert. Það myndi valda lántak-
endum miklum vandræðum þar
sem stærstur hluti raunvirðis láns-
ins yrði greiddur upp á skömmum
tíma. Ásgeir sagði þó hægt að leysa
þessi vandamál að hluta með því að
setja tíð endurskoðunarákvæði inn
í lánasamninga.
Þá sagði Ásgeir það ekki rétt sem
oft væri haldið fram að ábyrgðin
og hættan af verðtryggðum lánum
væri alfarið hjá lántakendum.
Helgi Hjörvar, þingmaður Sam-
fylkingar og formaður efnahags- og
viðskiptanefnda, sagði alveg ljóst að
hægt væri að reka hagkerfi án verð-
tryggingar. Víðast hvar væri málum
háttað þannig.
„Verðtrygging er hins vegar ekki
orsök vandans heldur birtingar-
mynd óstjórnar í efnahagsmálum,“
sagði Helgi og bætti við að langtíma-
markmiðið ætti að sínu mati að vera
að yfirgefa krónuna og taka upp
evru sem tryggði lægri raunvexti og
verðbólgu. Það gæti hins vegar tekið
tíma og þangað til ætti að draga úr
vægi verðtryggingarinnar eins og
ríkisstjórnin stefndi að.
Þá sagði Helgi mikilvægt að
bankarnir sem og Íbúðalánasjóður
byðu neytendum upp á óverðtryggð
lán samliða verðtryggðum.
magnusl@frettabladid.is
Óvíst að hægt sé að
halda verðbólgu lágri
Hægt er að afnema verðtryggingu á Íslandi en því gæti fylgt nokkur kostnaður.
Hve mikill sá kostnaður yrði fer eftir verðbólguþróun segir hagfræðingur.
ÍSLANDSBANKA Í GÆR Málstofan í gær var hluti af fundaröð sem VÍB, eignastýringar-
þjónusta Íslandsbanka, hefur staðið fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PENINGASTEFNUNEFNDIN Fundargerðir
nefndarinnar eru birtar tveimur vikum
eftir vaxtaákvörðun.
EFNAHAGSMÁL Einn nefndarmað-
ur peningastefnunefndar Seðla-
bankans vildi halda vöxtum
óbreyttum við vaxtaákvörðun
bankans í ágúst þegar vextir
voru hækkaðir um 0,25 prósent.
Meirihluti nefndarmanna
taldi rétt að draga úr örvandi
áhrifum peningastefnunnar
vegna versnandi verðbólgu-
horfa. Að mati eins nefndar-
manns vó hins vegar óvissan
um þróun á alþjóðvettvangi og
áframhaldandi viðkvæm staða
innlendra efnahagsreikninga
þyngra og mælti hann því með
óbreyttum vöxtum.
Þetta kemur fram í fundar-
gerð nefndarinnar sem birt var
í fyrradag. Fimm eiga sæti í
nefndinni en á fundi hennar í
ágúst var einn meðlimur fjar-
verandi. - mþl
Peningastefnunefnd:
Einn á móti
vaxtahækkun
KÖNNUN Ríflega þriðjungur þeirra
meðlima þjóðkirkjunnar sem
tóku afstöðu í nýlegri könnun
MMR sagðist hafa hugsað um að
segja sig úr þjóðkirkjunni á síð-
ustu mánuðum.
Alls sögðust 34,4 prósent hafa
íhugað að segja sig úr þjóðkirkj-
unni, en 64,5 prósent höfðu ekki
hugsað um það.
Yngra fólk hafði frekar hugsað
um að segja sig úr þjóðkirkjunni
en þeir sem eldri eru. Þá hafði
hærra hlutfall karla en kvenna
íhugað úrsögn. - bj
Kanna afstöðu til þjóðkirkju:
Um 34 prósent
íhugað úrsögn
REYKJANESBÆR Ljósanótt var sett
með pomp og prakt í Reykjanes-
bæ í gærmorgun þegar nemend-
ur leik- og grunnskóla bæjarins
slepptu 2.000 blöðrum til himins.
Hátíðin stendur alla helgina.
Fjölbreytt dagskrá er í boði á
Ljósanótt, meðal annars listsýn-
ingar víðs vegar um bæinn auk
þess sem hægt er að heimsækja
Skessuna í hellinum.
Hápunktur hátíðarinnar verð-
ur á útisviðinu við Ægisgötu en
þar munu helstu tónlistarmenn
landsins troða upp og korter
yfir tíu verður flugeldasýning
Björgunarsveitar Suðurnesja.
Ljósanótt formlega sett:
Slepptu 2 þús-
und blöðrum
Telurðu rétt að lækka tolla á
innflutt kjöt?
Já 70,9%
Nei 29,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á Ísland að bjóða fram aðstoð
við uppbyggingu í Líbíu eftir að
friður kemst á í landinu?
Segðu þína skoðun á visir.is
Sló konu í andlitið á sportbar
Rúmlega tvítugur karlmaður
hefur verið ákærður fyrir Héraðs-
dómi Vesturlands fyrir líkamsárás.
Manninum er gefið að sök að hafa
slegið konu á svipuðu reki og hann er
sjálfur, í andlitið. Atvikið átti sér stað í
maí síðastliðnum á skemmtistaðnum
Breiðinni á Akranesi.
LÖGREGLUMÁL
DÓMSMÁL Samsetning bóta til
fórnarlamba ofbeldis er nú til
skoðunar í innanríkisráðuneytinu.
Til þess að breyta samsetningu
bótanna þarf að breyta lögum, að
sögn Höllu Gunnarsdóttur, aðstoð-
armanns innanríkisráðherra.
Hámarksbætur sem ríkissjóð-
ur greiðir fyrir líkamstjón eru 2,5
milljónir króna en fyrir miska 600
þúsund krónur. Ef um kynferðis-
brot er að ræða greiðir ríkissjóð-
ur eingöngu miskabætur. Þessar
hámarksbætur hafa verið óbreytt-
ar frá árinu 1996.
Úrskurði dómari fórnarlambi
ofbeldis bætur
undir 400 þús-
undum króna
fær fór na r -
lambið engar
bætur greidd-
ar úr ríkissjóði
vegna líkams-
tjóns og ann-
ars tjóns. Þetta
var ákveðið 1.
júlí 2009 vegna
brota framinna eftir þann tíma.
Lögfræðikostnaðurinn fellur jafn-
framt á fórnarlambið en annars
greiðir ríkið yfirleitt þann kostnað.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra sagðist í byrjun sumars
ætla að beita sér fyrir því að sam-
setning á ráðstöfun bótanna, ann-
ars vegar skaðabóta og hins vegar
miskabóta, yrði skoðuð. „Það má
vel vera að breyta þurfi innbyrðis
vægi óháð því hvort aukin framlög
koma til sögunnar,“ sagði innan-
ríkisráðherra.
„Það var kallað eftir sjónarmið-
um frá þeim sem halda utan um
þessi mál og þau eru nú til skoðun-
ar. Það er vilji til að breyta þessu,“
segir Halla Gunnarsdóttir.
- ibs
Lagabreyting nauðsynleg til að breyta bótum til fórnarlamba ofbeldis:
Samsetning bóta til skoðunar
HALLA
GUNNARSDÓTTIR
EVRÓPURÁÐIÐ, AP Thomas Hamm-
arberg, mannréttindafulltrúi
Evrópuráðsins, gagnrýnir
stjórnvöld margra Evrópuríkja
harðlega fyrir aðgerðir þeirra í
svonefndri baráttu gegn hryðju-
verkum.
Hann segir þau meðal annars
hafa aðstoðað Bandaríkin við
óteljandi glæpaverk undanfar-
inn áratug. Næstu daga, þegar
þess er minnst að tíu ár eru liðin
frá árásunum 11. september, eigi
að nota til þess að rannsaka við-
brögðin við þessari árás, hvort
þau hafi verið viðeigandi og
hvort þau hafi skilað einhverju.
„Í baráttunni gegn glæpum,
sem hryðjuverkamenn eru sakað-
ir um, hafa óteljandi aðrir glæp-
ir verið framdir,“ segir Hamm-
arberg og tekur fram að þessa
glæpi hafi verið reynt að fela
vandlega.
Hann segir stjórnvöld Evrópu-
ríkja hafa gerst samsek Banda-
ríkjunum, meðal annars hvað
varðar pyntingar og ólöglegt
flug með fanga milli leynilegra
fangelsa.
„Þau leyfðu, vörðu og tóku þátt
í aðgerðum leyniþjónustunn-
ar CIA, sem brutu gegn grund-
vallarreglum réttarfars okkar
og mannréttindaverndar,“ sagði
Hammarberg í yfirlýsingu, sem
hann sendi frá sér í gær. - gb
Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins segir evrópsk ríki samsek Bandaríkjunum:
Leyfðu gróf mannréttindabrot
THOMAS HAMMARBERG Mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins er harðorður í garð
evrópskra stjórnvalda. NORDICPHOTOS/AFP
KJÖRKASSINN