Fréttablaðið - 02.09.2011, Blaðsíða 8
2. september 2011 FÖSTUDAGUR8
Við ætlum að leggja
áherslu á það sem er
mannaflsfrekt í framkvæmda-
og atvinnumálum
DAGUR B. EGGERTSSON
FORSETI BORGARRÁÐS
SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR Forseti borgar-
ráðs segir að margar sundlaugar borgar-
innar, þar á meðal Sundhöll Reykjavíkur,
þarfnist mikilla viðhaldsaðgerða.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
REYKJAVÍK Framkvæmdir við
endurgerð sundlauganna í Reykja-
vík eru hafnar og er áætlaður
kostnaður nú kominn upp í 320
milljónir króna eftir endurskoð-
aða fjárhagsáætlun frá 30. júní.
Í apríl síðastliðnum kom fram að
áætlaður kostnaður yrði um 275
milljónir króna, en þó var gert ráð
fyrir 500 milljónum í framkvæmd-
irnar í upphaflegri fjárhagsáætlun
2011. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Reykjavíkurborg.
Unnið er við nær allar sundlaug-
ar í Reykjavík og var verkefna-
staðan kynnt fyrir borgarráði í
gær. Dagur B. Eggertsson, forseti
borgarráðs, segir ástæðu kostnað-
arbreytinganna þá að nú sé búið að
fullhanna framkvæmdaáætlunina
og því liggi hinar endanlegu við-
miðunartölur fyrir.
„Við ætlum að leggja áherslu á
það sem er mannaflsfrekt í fram-
kvæmda- og atvinnumálum,“ segir
Dagur. „Sundlaugarnar okkar eru
algengustu og vinsælustu ferða-
mannastaðirnir í borginni og eru
í gríðarlega mikilli notkun allt árið
um kring. Því er afar mikilvægt að
halda þeim við þannig að við séum
stolt af þeim.“
Meðal framkvæmda verða upp-
hitaðar gönguleiðir við Laugar-
dalslaug, möguleg uppsetning
líkamsræktaraðstöðu við Breið-
holtslaug og eimbað og leiktæki á
Ylströndinni í Nauthólsvík. - sv
Framkvæmdir standa yfir við nær allar sundlaugar í Reykjavíkurborg:
Áætlaður kostnaður við laugarnar 320 milljónir
1200
900
30
. a
pr
íl ‘
09
Heimild: Skilanefnd Landsbankans
0
1.
10
4
1.
11
8
1.
13
5
1.
13
7
1.
14
8 1.
21
2
1.
23
0
1.
26
3
1.
30
0
1.
33
2
30
. m
aí
‘0
9
30
. s
ep
t.
‘0
9
31
. d
es
. ‘0
9
31
. m
ar
s ‘
10
30
. m
aí
‘10
30
. s
ep
t.
‘10
31
. d
es
. ‘1
0
31
. m
ar
s ‘
11
30
. m
aí
‘11
Mat á eignum þrotabús Landsbankans
allar tölur eru í milljörðum króna.
EFNAHAGSMÁL Eignir þrotabús
Landsbankans duga fyrir öllum for-
gangskröfum og ríflega það miðað
við nýtt mat á eignum búsins sem
kynntar voru kröfuhöfum í gær.
Stærstu forgangskröfurnar í búið
eru vegna Icesave-reikninganna.
Miðað við matið ættu því eignir
þrotabúsins að duga að fullu fyrir
Icesave-skuldinni.
Eignir þrotabúsins námu í lok
júlí 1.332 milljörðum króna, á
föstu gengi 22. apríl 2009. Miðað
er við þá dagsetningu þar sem
kröfur í þrotabúið eru reiknaðar
á gengi þess dags. Verðmæti eign-
anna hefur aukist um 45 milljarða
króna frá því það var metið síðast í
lok mars síðastliðins.
Forgangskröfur í búið nema
1.319 milljörðum króna, og eignir
umfram forgangskröfur eru um 13
milljarðar króna, samkvæmt til-
kynningu frá þrotabúi Landsbank-
ans. Allt sem eftir stendur þegar
forgangskröfur í þrotabúið hafa
verið greiddar fer upp í almennar
kröfur í búið.
„Það eru stór tímamót fyrir
okkur sem höfum tekið þátt í þess-
ari vinnu [...] að endurheimtur séu
hærri en forgangskröfur í búið,“
sagði Lárentsínus Kristjánsson,
formaður skilanefndar Lands-
bankans, á fundi með fjölmiðla-
fólki í gær.
„Enn sem fyrr teljum við þrátt
fyrir þessa niðurstöðu mat okkar
á eignum búsins varfærið,“ sagði
Lárentsínus. „Að okkar mati er
ekkert áþreifanlegt í stöðunni í dag
sem bendir til þess að mat á eign-
um sé óraunhæft.“
Verðmæti eigna þrotabúsins
hefur hækkað jafnt og þétt frá því
það var fyrst metið af slitastjórn
bankans. Um 45 milljarða hækkun
á síðustu þremur mánuðum skýrist
aðallega af hækkandi mati á kröf-
um bankans á fjármálafyrirtæki,
útlánum til fyrirtækja í lánasafni
og hækkun á verðmæti skulda-
bréfs sem þrotabúið fékk frá nýja
Landsbankanum á móti eignum
sem fluttar voru frá þrotabúinu til
nýja bankans.
Verðmat skilanefndar Lands-
bankans á erlendum hlutabréfum
búsins hefur ekki verið uppfært frá
því fyrir þremur mánuðum.
Langstærsta eignin í þeim flokki
er tæplega 67 prósenta hlutur bús-
ins í bresku verslunarkeðjunni
Iceland Foods. Lárentsínus segir
ástæðuna fyrir því að mat á þess-
ari stóru eign þrotabúsins sé ekki
uppfært þá að eignin sé nú í sölu-
meðferð og því óeðlilegt að endur-
meta verðmæti hennar í bili.
Þrotabú á fyrir Icesave-skuld
Verðmæti eigna þrotabús Landsbankans hefur hækkað um 45 milljarða á þremur mánuðum. Eignir duga
fyrir öllum forgangskröfum, þar með talið öllum kröfum vegna Icesave. Mat á eignum enn sagt varfærið.
■ Eignir þrotabús Landsbankans
eru nú 1.332 milljarðar króna.
■ Forgangskröfur í búið nema
1.319 milljörðum króna.
■ Eignir umfram forgangskröfur
eru 13 milljarðar króna.
■ Mat á eignum þrotabúsins hefur
hækkað um 45 milljarða á
þremur mánuðum.
Lykiltölur
KOSIÐ Um 60 prósent landsmanna höfnðu öðrum Icesave-samningnum í þjóðar-
atkvæðagreiðslu 9. apríl síðastliðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Það er mjög jákvætt ef þetta verður niðurstaðan
og eignirnar duga fyrir öllum forgangskröfum,“ segir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, um nýtt mat á eignum þrotabús
Landsbankans.
„Ef þetta gengur eftir og þrotabúið getur byrjað að
greiða út fyrr en síðar hlýtur það að létta þrýstingi í
þessu máli,“ segir Sigmundur Davíð.
Hann segir að reynist mat skilanefndarinnar
rétt ætti Icesave-málið að vera úr sögunni fyrir
Íslendinga. Bresk og hollensk stjórnvöld eigi kröfu
á þrotabúið sem stefni í að þau fái greidda að fullu. „Það telst mjög
gott að fá 100 prósent af kröfum sínum greidd úr þrotabúi,“ segir
Sigmundur. Hvað vaxtakröfur breskra og hollenskra stjórnvalda varðar
segir hann aldrei greidda vexti í gjaldþrotamálum, og verði þetta
niðurstaðan ættu Bretar og Hollendingar að falla frá öllum kröfum um
vexti. - bj
Icesave ætti að vera úr sögunni
„Það er mjög ánægjulegt að þessi
þróun heldur áfram, heildar-
endurheimtuhorfurnar batna og
fé kemur hraðar inn þannig að
handbært fé er orðið umtalsvert,“
segir Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra um nýtt mat á
eignum þrotabús Landsbankans.
„Icesave-málinu væri í sjálfu sér
lokið ef seinni samningurinn hefði
verið staðfestur og allar líkur á því að við hefðum
komist frá án kostnaðar,“ segir Steingrímur.
Hann segir nú allar líkur á því að endurheimtu-
hlutfallið verði 100 prósent og útgreiðslur verði
hraðari, sem sé jákvætt í öllu tilliti. „Vonandi hjálpar
þetta til hvernig sem málinu reiðir af.“
- kóp
Ánægjuleg þróun
„Þetta eru afskaplega góð tíðindi. Þetta sýnir að þær
breytingar sem við gengumst fyrir í hruninu með
neyðarlögunum, þegar innstæðum var skapaður for-
gangur, munu leiða til þess að innstæðueigendur í
Bretlandi og Hollandi fái allt sitt til baka, jafnvel þó að þeir
hafi verið með innstæður umfram það sem innstæðu-
tryggingarkerfið átti að tryggja,“ segir Árni Páll Árnason,
efnahags- og viðskiptaráðherra, um nýtt mat á eignum
þrotabús Landsbankans.
„Þetta mun væntanlega þýða að inneign í búinu dugi
fyrir öllum innstæðum, líka innstæðum góðgerðarfélaganna í
Bretlandi og sveitarfélaganna og innstæðum umfram þau mörk
sem til dæmis hollensk stjórnvöld kusu að ábyrgjast,
það er að segja 100 þúsund evrur,“ segir Árni Páll.
Hann segir þá mynd sem nú blasi við í Icesave-
málinu annars eðlis en áður og það skapi forsendur
til að ræða málið á annan hátt. „Þessi niðurstaða
mundi líka þýða að Bretar væru að fá að fullu til
baka þá peninga sem þeir kusu að tryggja umfram
lágmarkstrygginguna til að verja eigið fjármálakerfi. Ef
þetta verður niðurstaðan, og ef Hæstiréttur staðfestir
forgang allra innstæðueigenda, getur málið aldrei
snúist um annað en mögulega kröfu Breta og Hollendinga um
greiðslu vaxta í einhvern tíma.“ - kóp
Bretar og Hollendingar fá allt til baka
SIGMUNDUR
DAVÍÐ GUNN-
LAUGSSON
STEINGRÍMUR
J. SIGFÚSSON
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
Söluferli Iceland Foods hefur
gengið mjög vel, og verður gagna-
pakki fyrir áhugasama kaupend-
ur tilbúinn um miðjan september,
segir Lárentsínus. Hann segist
reikna með að tilboð taki að berast
nokkrum vikum síðar.
Nú er enn fremur til skoðunar
hvort koma eigi öðrum eignum
þrotabúsins í Bretlandi í sölu-
meðferð, en verðmæti þeirra
bliknar í samanburði við verð-
mæti Iceland Foods.
brjann@frettabladid.is
Jákvætt að þrotabúið eigi fyrir kröfum Breta og Hollendinga
1. Hvað heitir nýi viðtalsþátturinn
sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
stýrir í Sjónvarpinu?
2. Til hvaða liðs var knattspyrnu-
maðurinn Guðjón Pétur Lýðsson
lánaður?
3. Hvaða íslenski fatahönnuður er
fluttur heim eftir tíu ára búsetu í
Danmörku?
SVAR:
1. Ísþjóðin 2. Helsinborg 3. Marín Manda
Magnúsdóttir
SKOTLAND Hinn 100 ára gamli
Fauja Singh mun væntanlega
skrá nafn sitt í metabækurn-
ar næsta vor þegar hann mun
ljúka glæstum hlaupaferli með
því að hlaupa heilt maraþon í
Edinborgarmaraþoninu.
Hann varð í gær fyrsti kepp-
andinn til að skrá sig til leiks en
hlaupið verður í maí.
Singh hefur vakið heimsathygli
síðustu ár fyrir vasklega fram-
göngu sína í hinum ýmsu kapp-
hlaupum. Hann hefur nú þegar
hlaupið sjö maraþonhlaup, öll
eftir að hann varð 89 ára gamall.
Hann á heimsmet í maraþoni
90 ára og eldri, tæpar sjö klukku-
stundir, og einnig tíu kílómetra
hlaupi 100 ára og eldri.
Hann byrjaði ekki að hlaupa af
alvöru fyrr en hann var kominn
á gamals aldur, en segir að næsta
maraþonhlaup hans verði tví-
mælalaust það síðasta. - þj
Afrekshlaupari lýkur ferlinum:
100 ára hleypur
heilt maraþon
ENN Á FULLU Fauja Singh lætur aldurinn
ekki stöðva sig og mun að öllu óbreyttu
hlaupa heilt maraþon næsta vor, þá 101
árs gamall. NORDICPHOTOS/GETTY
VEISTU SVARIÐ?