Fréttablaðið - 02.09.2011, Blaðsíða 22
2. september 2011 FÖSTUDAGUR22
Alúðarþakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og veittu okkur stuðning í
veikindum og við fráfall okkar ástkæra
Eyjólfs Guðjónssonar
fv. skipstjóra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 11E, LSH,
heimahlynningu Karitas og líknardeild LSH
í Kópavogi fyrir einstaka umönnun.
Fyrir hönd ástvina,
Sigurrós Guðjónsdóttir
Anna Eyjólfsdóttir og fjölskylda.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kristjana Gísladóttir
Eyrarholti 6, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut 29. ágúst.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju, fimmtudaginn
8. september kl. 13.00.
Magnús Haraldsson
Gísli Þór Magnússon Kristín Sæmundsdóttir
Borghildur Kristín Magnúsdóttir
Pétur Már Gíslason og Hildur Una Gísladóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Anna Kristín Vilhelmína
Biering
Fossvogsbletti 2, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 31. ágúst.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 6. ágúst kl. 15.
Moritz Wilhelm Sigurðsson Margrét Dóra Guðmundsdóttir
Guðmundur Sigurðsson Anna Sigríður Zoëga
Auður Sigurðardóttir Ólafur Halldórsson
Sigurður Þórir Sigurðsson Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra
Þuríður Benediktsdóttir
frá Hömrum í Haukadal,
til heimilis að Furugerði 1, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 31. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Hjördís Óskarsdóttir
Kristján Ingason, Karl Ingason, Jón S. Hilmarsson,
Þuríður Kristín Hilmarsdóttir, fjölskyldur þeirra
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Knútur Bergsveinsson
Kópavogsbraut 1a, áður Melgerði 36,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 30. ágúst.
Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju, miðvikudaginn
7. september kl. 13.oo. Þeim sem vilja minnast Knúts
er bent á Krabbameinsfélag Íslands eða Minningarsjóð
Sunnuhlíðar.
Dýrólína (Lóa) Eiríksdóttir
Logi Knútsson Ásta Kristjánsdóttir
Auðbjörg Halla Knútsdóttir Sæmundur Kr. Þorvaldsson
Auður Lena Knútsdóttir Rúnar Emilsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur samúð og hlýhug við
andlát og útfarar okkar elskulegs
sonar og bróður
Eyþórs Darra
Róbertssonar
Róbert Ólafsson Lilja Huld Steinþórsdóttir
Albert Marel Róbertsson Berta María Róbertsdóttir
og aðstandendur
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
S. Guðjónsson ehf. kom
færandi hendi í Iðnskól-
ann í Hafnarfirði í síðustu
viku en fyrirtækið færði
skólanum raflagnaefni og
búnað í tölvur og síma-
tengla ásamt öllum römm-
um og frágangsbúnaði.
Áætlað virði gjafarinnar
er rúmlega hálf milljón
króna.
Á síðasta ári færði S.
Guðjónsson ehf. skólanum
ljósabúnað til kennslu í
uppsetningu á lýsingabún-
aði. Í fréttatilkynningu frá
Iðnskólanum í Hafnarfirði
er gjöfin sögð undirstrika
skilning aðila í atvinnulíf-
inu á mikilvægi samvinnu
skólans og atvinnulífs.
Iðnskólinn tók nýja
kennsluaðstöðu í rafiðn-
greinum í notkun í haust
og er nú með mjög góða
aðstöðu til kennslu í iðn-
aðarveitum, stórveitum og
smábátaraflögnum. - rat
Iðnskólinn fær góða gjöf
Ragnhildur Guðjónsdóttir deildarstjóri rafiðnaðardeildar, Ársæll
Guðmundsson skólameistari, Skarphéðinn Smith, framkvæmdastjóri
S.Guðjónssonar ehf., Gunnar Örn Steinarsson kennari, Björgúlfur Þor-
steinsson kennari og Guðni Guðjónsson kennari.
Sex háskólanemar munu kynna rann-
sóknir sínar á íslenskri samtímalist-
fræði á málþinginu Krítik og kenn-
ingasmíð á sunnudaginn. Málþingið
fer fram milli klukkan 15 og 17 í Lista-
safni Reykjavíkur og er öllum opið.
Verkefnið er samstarf LHÍ, Lista-
safns Íslands, Listasafns Reykjavík-
ur, Listfræði við HÍ, Nýlistasafnsins
og Listfræðafélags Íslands og var
unnið með styrk frá Nýsköpunarsjóði
námsmanna, Rannís. Rannsökuð voru
skrif fræðimanna og gagnrýnenda um
íslenska samtímalist, auk skrifa lista-
manna sjálfra.
„Við söfnuðum saman textum í
gagnagrunn en það hefur verið sár
þörf á samantekt af þessu tagi og í
raun krafa fræðimanna og listamanna
og fólks innan þessa geira um árabil,“
segir Katrín Inga Jónsdóttir mynd-
listarmaður og nemi í listfræði við HÍ.
„Myndlist eru gerð lítil skil í samfé-
laginu yfirleitt og það var mikill sigur
að fá styrk til að sinna þessu verkefni.
Síðasta heildaryfirlit um íslenska
myndlist kom út fyrir 40 árum. Und-
anfarna áratugi hefur því verið erfitt
að stunda rannsóknir og afla sér heim-
ilda um fagið,“ útskýrir Katrín en hóp-
urinn þurfti að leita víða eftir efninu.
„Við vorum aðallega að safna grein-
um úr dagblöðum og blöðungum sem
oft eru gefnir út í tengslum við sýning-
ar en hefur ekki verið haldið til haga.“
Markmið rannsóknarinnar er að
heildaryfirlit náist yfir fræðiskrif um
íslenska myndlist og grundvöllur skap-
ist fyrir frekari útgáfu. Katrín segir
vinnu hópsins í sumar mikilvægt skref
en nauðsynlegt sé þó að halda rann-
sóknarstarfinu áfram.
„Vinnunni er ekki nærri lokið. Það
er mikilvægt að komast yfir sem mest
af skrifum um íslenska myndlist svo
úr verði gagnabanki sem nýtist ekki
bara fræðifólki við rannsóknir held-
ur einnig kennurum og nemendum.
Efnið þarf síðan að gefa út í bókum
svo það verði aðgengilegt almenningi
og almenn þekking á myndlist eflist,“
segir Katrín og bætir við að fagna beri
væntanlegri útgáfu á íslenskri lista-
sögu nú í haust. Hún sé þó ekki nóg
ein og sér.
„Það er ekki nóg að skrifa bara sögu
myndlistar, þetta er önnur hlið á sög-
unni. Myndlistin er alltaf að berjast
fyrir tilvist sinni í samfélaginu en von-
andi verður það ekki eilífðarverkefni.“
heida@frettabladid.is
KRÍTIK OG KENNINGASMÍÐ: MÁLÞING UM RANNSÓKNIR Á SAMTÍMALISTFRÆÐI
Löngu tímabært verkefni
RANNSÓKNARHÓPURINN VIÐ STÖRF Katrín Inga Jónsdóttir, önnur frá vinstri, ásamt samstarfs-
fólki sínu. Hópurinn kynnir niðurstöður rannsóknarverkefnis á íslenskri samtímalistfræði á
sunnudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Lundúnabruninn mikli hófst
þennan dag árið 1666 en elds-
upptök voru í bakaríi Thomas
Farriner á Pudding Lane.
Bruninn, sem stóð yfir í þrjá
daga, eða til 5. september, er
einn sá mesti sem orðið hefur
á Englandi. Hann breiddist
hratt út um alla miðborgina,
náði yfir í fátækrahverfi
borgarinnar og ógnaði um
tíma Westminster.
Í brunanum eyðilögðust
13.200 hús, 87 kirkjur, þar á
meðal Dómkirkja Páls postula,
og flestar opinberar byggingar.
Bruninn eyðilagði heimili
sjötíu þúsund Lundúnabúa,
en í miðborginni bjuggu um
áttatíu þúsund manns.
Ekki er talið að margir hafi
látið lífið en þó voru manntöl
yfir millistéttina og fátæka
ónákvæm og því getur verið
að fleiri hafi látist en tölur gefa
til kynna.
ÞETTA GERÐIST: 2. SEPTEMBER ÁRIÐ 1666
Eldur brýst út í London og geisar í þrjá daga
INDRIÐI G. ÞORSTEINSSON rithöfundur (1926-2000) lést þennan dag.
„Enn í dag er sáralítið vitað um manninn sjálfan þótt ýmislegt af reynslu
hans geymist í bókum og listaverkum.”