Fréttablaðið - 02.09.2011, Page 28
2 föstudagur 2. september
Haft eftir vi skiptavinum okkar:
Vilborg: Ég vakna i á
venjulegum tíma dreif mig í
sturtu, eftir hana eyddi ég 5
mínútum í hári , ég vissi
ekki hva ég átti a gera
vi næstu 45 mínúturnar
sem ég yfirleitt eyddi í
hári á morgnanna!
Gu laug: Besta
fjárfestingin sem
ég hef gert hva
var ar hár mitt!
Hvet ig til a koma og prufa
NATURA KERATIN
kraftaverkame fer sem virka!
NOLAS REYKJAVÍK
BYLTINGAKENND ME FER AR SEM KERATIN
OG ALOE BARBADENSIS ER NOTU TIL A
INNSIGLA HÁRI . MÖGNU ME FER SEM GERIR
HÁRI MJÚKT, SLÉTTARI, HEILBRIGT OG GLAN-
SANDI. ESSI ME FER VIRKAR EINS OG
KRAFTAVERK Á URRT, ÚFI , VI KVÆMT OG
BROTTHÆTT HÁR. BESTI KOSTURINN FYRIR LITA
HÁR, HÁR ME STRÍPUM E A SKEMMT HÁR.
SALON REYKJAVÍK GRANDAGAR UR 5
101 REYKJAVÍK SÍMI: 56 85 305
=
=
núna
✽ Buslað í rigningu
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
KERTALJÓS Með lækkandi sól er klassískt að draga fram alla
kertastjaka heimilisins og lífga upp á skammdegið. Það er gott ráð að
kaupa kerti í ÖLLUM REGNBOGANS litum og gefa þannig gömlum
kertastjökum nýjan og hressandi blæ.
F atahönnuðirnir Guðmundur Jörundsson og Mundi stíga sín
fyrstu skref í leikhúsunum á næsta
ári þegar þeir hanna búninga fyrir
sitthvort leikritið í Borgarleikhús-
inu.
Mundi ætlar að sjá um að klæða
Vesturportsleikhópinn í leikritinu
um Axlar-Björn og er strax byrjað-
ur að brjóta heilann yfir búninga-
vali.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á Axlar-Birni, sem var einn skæð-
asti fjöldamorðingi Íslandssögunn-
ar og hefur gleymst gegnum tíðina.
Ég var því ekki í vafa þegar Vestur-
port hafði samband,“ segir Mundi,
sem er nú þegar byrjaður að funda
með leikhópnum og vinna í pers-
ónusköpun. „Þetta er allt annað
en að hanna sína eigin fatalínu og
þetta verður engin Munda-tísku-
sýning á sviðinu.“
Guðmundur, eða Gummi eins og
hann er kallaður, sér um búninga-
hönnun í leikriti Jóns Atla Jónas-
sonar, Nóttin nærist á deginum.
Það var Jón Atli sem hafði sam-
band við Gumma, sem þótti þetta
strax spennandi verkefni að tak-
ast á við. „Ég varð strax heillað-
ur af verkinu. Það er spennandi að
prófa leikhúsið og fín reynsla fyrir
mig,“ segir Gummi og bætir við að
þetta verði einnig krefjandi. „Verk-
ið er frekar dimmt og drungalegt
nútímaleikrit. Það þarf að passa að
búningarnir taki ekki of mikla at-
hygli á sviðinu en ég hlakka til að
hefja ferlið með leikhópnum.“
Báðir hafa þeir Mundi og Gummi
vakið athygli fyrir hönnun sína
en þeir eru um þessar mund-
ir að vinna í sumarlínum næsta
árs. Gummi hannar herrafatalínu
fyrir Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar ásamt því að hanna
herrafatnað fyrir verslunina GK.
Mundi er á fullu að vinna í sumar-
línu sinni, sem hann stefnir á að
frumsýna innan skamms.
alfrun@frettabladid.is
Fatahönnuðirnir Mundi og Guðmundur Jörundsson í leikhúsið:
SPENNANDI REYNSLA
Fatahönnuðir í leikhúsið Fatahönnuðirnir Guðmundur Jörundsson og Mundi stíga báðir sín fyrstu skref
í leikhúsunum á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fyrrverandi ritstjóri franska Vogue, Carine Roitfeld, gefur
út ævisögu sína, Irreverent, 18.
október næstkomandi. Bókarinn-
ar er beðið með mikilli eftirvænt-
ingu tískuspekúlanta enda Roit-
feld áhrifamanneskja í tískuheim-
inum og þykir luma á nokkrum
skemmtilegum sögum þaðan.
Bókin er tæpar 400 blaðsíður
og inniheldur fullt af myndum úr
einkaalbúmi Roit-
feld. Einnig eru
bréf og sögur frá
frægum hönnuð-
um á borð við Al-
exander McQueen,
John Galliano og
Tom Ford í bókinni.
R o i t f e l d s e g -
ist sjálf ekki skilja
þessa eftirvæntingu
en nýtur þess að
vera í sviðsljósinu.
„Ég er hvorki lista-
maður né rithöfund-
ur. Ég stílisera myndatökur. Það er
ekkert sérstakt við mig en kannski
er ég á réttum stað
á réttum tíma. Eftir
að ég hætti hjá Vogue er ég að
drukkna í alls konar tilboðum.“
- áp
Ævisaga Carine Roitfeld
Bók fyrir tískuljón
Umdeild Í sinni tíð sem
ritstjóri Vogue fór Carine
Roitfeld oft yfir strikið og
var umdeild.
Dillað og dansað
Þeim sem vilja sletta
úr klaufunum og
dansa inn í haust-
ið er bent á að
leggja leið sína
á Nasa á laug-
ardagskvöld-
ið. Þar heldur
útvarpsþátturinn
Party Zone dans-
veislu þar sem þýski plötusnúður-
inn Henrik Schwartz er heiðurs-
gestur. Íslensku plötusnúðarnir DJ
Margeir og Benzol koma einnig
fram ásamt Sean Danke.
Eitthvað fyrir augað
Ljósmyndarinn Sigríður Ólafsdótt-
ir, betur þekkt sem Sissa, opnar
ljósmyndasýningu á Kex Hostel á
laugardaginn. Sýningin ber heitið
Honesty og er einlæg, djörf og
beint frá hjartanu en viðfangsefn-
ið er meðvirkni í ólíkum myndum.
Tónverk eftir tónlistarmanninn
Bigga Bix er spilað undir sem
hluti af sýningunni. Hress-
andi viðkomustaður á laugar-
dagsrúntinum. - áp
KONA Í RAUÐU Lady Gaga vant-
ar ekki hugmyndaflugið þegar kemur
að því að velja sér klæðnað. Hér
er hún rauðklædd frá toppi til táar í
fyrirpartíi MTV Video Music Awards.
Takið eftir háu sólunum á skónum
hennar. NORDICPHOTO/GETTY