Fréttablaðið - 02.09.2011, Síða 46
2. september 2011 FÖSTUDAGUR26
Góðan daginn–dagurinn var í Reykjavík í gær. Þetta vissi ég ekki fyrr en langt
var liðið á dag. Þá rakst ég óvart á mynd-
band af borgarstjóra með risanef bjóða
okkur góðan daginn. Í myndbandinu óskar
hann okkur til hamingju með daginn og
hálfpartinn stærir sig af því hversu vel
tókst til í fyrra.
GÓÐAN daginn–dagurinn er enda algjör-
lega uppfinning borgarstjóra okkar og í
slúðurmola sem birtist í Fréttablaðinu þann
16. júní á síðasta ári kemur fram að Jón
Gnarr hafi tekið við sem borgarstjóri dag-
inn áður og hafi flutt af því tilefni tíma-
mótaræðu í borgarstjórn. Hann sagðist
meðal annars vilja hafa svokallaðan „góð-
ann daginn–dag“ árlega þar sem borgar-
búar myndu bjóða hver öðrum góðan
daginn og brosa.
GÓÐAN daginn–dagurinn var sem
sagt haldinn hátíðlegur í annað sinn
í gær. Ég uppgötvaði ekki hvaða
„merkisdagur“ var fyrr en seint
og síðar meir. Það er svo sem
eftir öðrum vinnubrögðum þess-
arar borgarstjórnar, mikilvægir
atburðir falla í skugga skrípaláta.
Meira hefur farið fyrir fréttum af
ýmsum uppátækjum og skrýtnum
viðburðum sem meirihluti borgar-
stjórnar hefur staðið fyrir heldur en
raunverulegum afrekum. Ég hef til
dæmis tekið eftir fréttum af borgarstjóra
okkar að koma fram klæddur eins og kona,
umræðu um ísbjörn í Húsdýragarðinn og
læknisferð borgarstjóra eftir húðflúrun
skjaldamerkis Reykjavíkur á framhand-
legginn.
HVAR voru hins vegar frásagnir og efnis-
legar umræður um þriggja ára fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar í febrúar síð-
astliðnum, mánuðinum þegar átti að skila
henni? Meirihluti borgarstjórnar hefur
reyndar útskýrt þessa töf með því að flutn-
ingi á málefnum fatlaðra frá ríki til borgar
og óvissu um fjármögnun á málaflokknum
sé um að kenna.
BORGARMÁLIN, borgarstjórinn og Besti
flokkurinn voru meðal annars umræðuefni
mín og vinkonu minnar um daginn. Henni
fannst það nú alla vega ágætt að það væru
bara tvö ár eftir af kjörtímabilinu. Ég leit
undrandi á hana og sagði: „Tvö ár? Mein-
arðu ekki tæp þrjú ár?“
LEIKARASKAPUR og skrípalæti eru góð
tilbreyting í stjórnmálunum við og við.
Kosningabaráttan á síðasta ári var til að
mynda ágætis skemmtun og góðan dag-
inn–deginum fylgir jákvæður boðskapur en
þrátt fyrir uppátækin verður líka að huga
að alvarlegri málum. Þangað til borgarstjóri
ákveður að takast á við erfiðari málin tel ég
dagana til næstu kosninga.
Bauðstu góðan daginn?
Meðal annars efnis:
Áttu byssu? Hefurðu drepið mann?
Ólafur Þ. Stephensen rifjar upp kynni sín af Valerie
Plame söguhetju kvikmyndarinnar Fair Game.
Vildi að ég hefði komið fyrr til Íslands
Breski soul-popparinn og eitísgoðið Paul Young er
orðinn eldandi fjölskyldumaður.
Stoltastur af
skóginum
Eymundur og Eygló Ólafsdóttir rækta og framleiða eigin
vörur í Vallarnesi á Fljótsdalshéraði. Þau eru leiðandi í
lífrænni ræktun á Íslandi.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
BAKÞANKAR
Mörtu Maríu
Friðriksdóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. hróss, 6. frá, 8. klettasprunga, 9.
gogg, 11. mjöður, 12. samstæður
jakki og pils, 14. vinna, 16. klafi, 17.
þvottur, 18. við, 20. tveir eins, 21.
óvættur.
LÓÐRÉTT
1. ríki, 3. einnig, 4. bönd, 5. andi, 7.
ávöxtur, 10. flík, 13. op, 15. tré, 16.
mælieining, 19. tímabil.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lofs, 6. af, 8. gjá, 9. nef,
11. öl, 12. dragt, 14. starf, 16. ok, 17.
tau, 18. hjá, 20. rr, 21. mara.
LÓÐRÉTT: 1. land, 3. og, 4. fjötrar, 5.
sál, 7. ferskja, 10. fat, 13. gat, 15. furu,
16. ohm, 19. ár.
Ég er
hræddur við
fugla!
Nei, hvað
er nú
þetta?
KELLING!
Við höfum
ekki séð þig
lengi Pierce.
Ég veit.
Síðan
hvenær var
hætt að
kalla þetta
að sitja eftir?
Þegar
skólastjór-
inn kláraði
endur-
menntunina
sína.
Vá!
Ég hef verið að sækja frjálsa skyldutíma sem
ætlaðir eru til að bæta hegðun og hjálpa mér
á leiðinni til velgengni.
Oó...
þetta er
að virka!
Ég er að stækka!
Ég er að verða stærri...
STERKARI!
Þú bara varðst að
gefa honum vít-
amín, er það ekki?ÉG ER
SYSTUR-BANINN!
Glúbb!
Glúbb!
Glúbb!