Fréttablaðið - 02.09.2011, Blaðsíða 54
2. september 2011 FÖSTUDAGUR34
HLÝLEGRA UM AÐ LITAST Ásgeir Kolbeinsson á skemmti- og veitingastaðnum Austur
eftir endurbæturnar sem hafa staðið yfir að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Vissulega kostaði þetta heilmikið
en þetta er góð fjárfesting þar sem
við erum með góðan stað í hönd-
unum,“ segir Ásgeir Kolbeinsson,
eigandi skemmti- og veitingastað-
arins Austur.
Haldið verður upp á tveggja ára
afmæli staðarins í kvöld kl. 21 og
velunnurum og fastagestum boðið.
Miklar endurbætur hafa staðið yfir
á framsvæði Austur og að sögn
Ásgeirs verður mun hlýlegra um að
litast en áður. „Þetta verður bæði
skemmtilegra til setu fyrir veit-
ingahúsagesti á kvöldin og jafn-
framt yfir daginn. Við ætlum að
hafa opið núna yfir daginn og bjóða
upp á kaffi og létt bakkelsi.“
Kynntur verður nýr kvöldmat-
seðill þar sem allir vinsælustu
réttirnir verða áfram til staðar
en bætt verður við léttari réttum.
„Konur eru oft til í léttari rétti. Við
erum að koma til móts við þær og
bæta við meira spennandi konu-
réttum.“
Þegar Ásgeir keypti Austur á
150 milljónir króna hvíldi leynd
yfir því hver eða hverjir hefðu
aðstoðað hann við kaupin. Nýlega
var því haldið fram að Styrmir Þór
Bragason, fyrrverandi forstjóri
MP banka, hefði stutt við bakið á
honum og Ásgeir staðfestir það.
„Hann kom að þessu í kringum
kaupin á staðnum og aðstoðaði mig
með það. Við erum búnir að þekkj-
ast lengi og hann er öflugur fjár-
málamaður.“
Spurður um Jim Carrey, sem
ætlaði að koma hingað til lands í
sumar og skemmta sér á Austur,
segir Ásgeir að enn standi til að
gamanleikarinn komi til lands-
ins. „Það var búið að leggja upp
dagsetningu fyrir hann og búið að
skipuleggja heilmikið af hlutum á
landinu. Eins og gengur með þess-
ar stjörnur var sagt allt í einu: „Ég
þarf að fresta“, og það var ekki
gefin frekari skýring á því. En það
er samt sami áhugi hjá honum að
koma. Það virðist vera ansi „spont-
ant“ þetta lið og þetta getur gerst
með stuttum fyrirvara.“
Hann segir að vissulega hafi
verið svekkjandi þegar Holly-
wood-stjarnan hætti við komuna.
„Sérstaklega ef hann ætlar að
draga þetta til vetrarins. Það er
kannski ekki alveg besti tíminn til
að koma.“ - fb
Ásgeir bíður spennt-
ur eftir Jim Carrey
Nýjasta James Bond-myndin
verður líklega tekin upp að hluta
til á Indlandi. Þetta verður önnur
Bond-myndin sem verður tekin
upp þar í landi. Octopussy sem
kom út 1983 var sú fyrsta. Einnig
er talið að einhverjar tökur verði
í Suður-Afríku.
23. Bond-myndin hefur enn
ekki fengið nafn. Leikstjóri
verður Sam Mendes, sem á að
baki myndir á borð við American
Beauty og Road To Perdition, og
frumsýning verður 9. nóvember
á næsta ári. Daniel Craig verður
sem fyrr í hlutverki njósnara
hennar hátignar, 007.
James Bond
til Indlands
ÞRIÐJA MYNDIN Næsta James Bond-
mynd verður sú þriðja með Daniel Craig
í aðalhlutverki.
Kvikmyndin Á annan veg í
leikstjórn Hafsteins Gunn-
ars Sigurðssonar er komin
í bíó. Myndin var tekin upp
á aðeins sextán dögum og
fóru upptökur fram á sunn-
anverðum Vestfjörðum.
„Ég er mjög stoltur að eiga þátt í
þessu verkefni. Ég er mjög sáttur
við útkomuna,“ segir Sveinn Ólaf-
ur Gunnarsson leikari.
Hann fer með aðalhlutverkið á
móti Hilmari Guðjónssyni í kvik-
myndinni Á annan veg sem fer í
almennar sýningar í kvöld. Auk
þeirra fer Þorsteinn Bachmann
með stórt hlutverk.
Á annan veg er lágstemmd
kómedía sem segir frá tveimur
starfsmönnum Vegagerðarinnar
sem stunda tilbreytingasnauða
vinnu á afskekktum fjallvegum á
níunda áratugnum. Myndin, sem
var að miklu leyti unnin í sjálf-
boðavinnu, er sú fyrsta sem leik-
stjórinn Hafsteinn Gunnar Sig-
urðsson sendir frá sér. Hún er
einnig fyrsta mynd Sveins og
Hilmars í aðalhlutverkum.
Á annan veg var tekin upp á
mettíma, eða sextán dögum, og
fóru tökur fram á sunnanverðum
Vestfjörðum. Íbúar Patreksfjarð-
ar veittu tökuliðinu góða aðstoð
á meðan það bjó í bænum. „Það
fylgdi þessu gott karma frá fyrsta
degi. Við vorum mjög sterk þrenn-
ing, ég, Haddi [Hafsteinn Gunn-
ar] og Himmi [Hilmar Guðjóns-
son]. Þetta verkefni hafði einhvern
veginn meðbyr alveg frá byrjun,“
segir Sveinn Ólafur. „Haddi talaði
um það í byrjun þegar við komum
á Patró að þar væri valinn maður
í hverju rúmi og það reyndist vera
raunin.“
Sveinn hafði gaman af því að
vinna með Hilmari. „Það skapaðist
sérstakur vinskapur með okkur.
Ég vissi af honum en við þekkt-
umst ekkert. Núna erum við mikl-
ir og góðir vinir.“ Spurður hvort
stemning í anda kvikmyndarinn-
ar Brokeback Mountain hafi verið
uppi á heiði við tökurnar hlær
hann. „Þetta er kannski frekar
rannsókn á karlmennsku en þessi
mynd fer samt ekki í sömu átt.
Þetta er kannski á einhvern hátt
okkar kúreki, þessi vegavinnu-
maður, en ekki samkynhneigði
kúrekinn.“
Hilmar segir að það hafi verið
gjörsamlega æðislegt að leika í
myndinni. Hann kveðst aldrei
hafa haft neinar áhyggjur meðan á
gerð hennar stóð. „Maður gleymdi
sér bara í verkefninu, það var svo
gaman að vinna það.“ Samstarf
hans og Sveins Ólafs gekk einnig
mjög vel að hans mati. „Þetta var
byrjunin á mjög góðri vináttu.“
Á annan veg hefur verið tilnefnd
til verðlauna á hinni virtu kvik-
myndahátíð San Sebastian fyrir
bestu frumraun leikstjóra. Hátíðin
verður haldin á Spáni dagana 16.
til 24. september.
freyr@frettabladid.is
MYNDUÐU STERKA ÞRENNINGU
STERK ÞRENNING Hilmar Guðjónsson, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson og Sveinn
Ólafur Gunnarsson mynduðu sterka þrenningu við tökurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA