Fréttablaðið - 02.09.2011, Page 58
2. september 2011 FÖSTUDAGUR38
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Ísland mætir Norðmönn-
um á Ullevaal-leikvanginum í
Ósló í undankeppni EM 2012 í
kvöld. Fátt annað en stoltið er í
húfi hjá íslenska liðinu en það
norska á í harðri baráttu um sæti
í sjálfri lokakeppninni í Póllandi
og Úkraínu á næsta ári.
Í síðustu viku var tilkynnt að
Ólafur myndi stíga til hliðar að
lokinni undankeppninni þegar
samningur hans við KSÍ rennur
út. Sjálfur segir hann að sú til-
kynning hafi engu breytt í undir-
búningi leiksins.
„Ég mun klára minn samning
og sinna minni vinnu eins vel
og ég get. Þetta hefur því engu
breytt,“ sagði Ólafur á blaða-
mannafundi íslenska liðsins á
Ullevaal í gær. Hann segist engin
sérstök viðbrögð hafa fengið frá
leikmönnunum um tíðindin. „Nei,
ekki nein.“
Rúrik Gíslason var einnig á
fundinum og segist sjálfur ekki
hafa leitt hugann mikið að stöðu
Ólafs. „Landsleikir skipta alltaf
jafn miklu máli, hvort sem Óli er
að hætta eða ekki. Hann er enn
þjálfarinn okkar.“
Mikil og sterk umræða hefur
verið um stöðu Ólafs undanfarna
mánuði og segir Rúrik að honum
sé viss vorkunn. „Auðvitað vor-
kennir maður Óla, hann hefur
fengið alla gagnrýnina. En það
má ekki heldur gleyma því að við
erum lið og þó svo að þjálfarinn
taki mikla ábyrgð á því berum við
leikmenn okkar sök. Við vitum vel
að við höfum ekki verið að standa
okkur eins og við getum best.“
Ísland vann síðan keppnisleik
árið 2008 og segir Rúrik að leik-
menn hungri í sigur. „Ég hef alltaf
góða tilfinningu fyrir landsleikj-
um og er ávallt fullur sjálfstrausts.
Við förum inn í alla leiki til að
vinna og það er engin breyting á
því núna. Vissulega eru meiðsli og
forföll í okkar hópi en við eigum
góða leikmenn sem koma inn í liðið
í þeirra stað. Ég finn að menn eru
hungraðir í sigurinn.“
Á blaðamannafundinum voru
þeir sem fyrir svörum sátu spurð-
ir af norskum blaðamönnum út í
stöðu Íslands á heimslista FIFA.
Rúrik gaf lítið fyrir þær spurn-
ingar. „Þetta skiptir mig engu
máli. Við vitum best sjálfir hvern-
ig við höfum staðið okkur upp á
síðkastið og tek ég þessu ekki
alvarlega.“
Um leikinn sjálfan sagði Ólafur
að hann ætti von á því að Norð-
menn myndu sækja hratt og stíft
á íslensku vörnina. „Lykilatriði
verður eins og alltaf að verjast
vel. Ég býst við mikilli hápressu
frá Norðmönnum og hef undirbúið
liðið fyrir það.“
Mikil forföll eru í íslenska
landsliðinu og verður Kristján
Örn Sigurðsson í banni í kvöld.
Indriði Sigurðsson gæti tekið
stöðu hans sem miðvörður og
Hjörtur Logi Valgarðsson þá
komið inn í stöðu vinstri bakvarð-
ar. Aron Einar Gunnarsson er frá
vegna meiðsla, sem og Ólafur Ingi
Skúlason, og því líklegt að Helgi
Valur Daníelsson sinni stöðu
varnartengiliðs við hlið Eggerts
Gunnþórs Jónssonar. Að öðru
leyti ætti uppstillingin að vera
nokkuð hefðbundin, með Kolbein
Sigþórsson sem fremsta sóknar-
mann.
Síðustu pörinn af
Sumarlínunni 2011
nú á 40% afslætti
frá 2. til 6. sept-
ember, komdu
og gerðu kaup.
afsláttur af Ecco golfskóm
ecco.com
Casual Cool II - herra
Verð áður kr. 29.995
Verð nú kr. 17.995
Stærðir: 39 - 47 | Vörunr. 150024-54411
Casual Cool - dömu
Verð áður kr. 27.995
Verð nú kr. 16.995
Stærðir: 35 - 43 | Vörunr. 120023-56455
Casual Cool - dömu
Verð áður kr. 27.995
Verð nú kr. 16.995
Stærðir: 35 - 43 | Vörunr. 120023-51052
Casual Cool II - herra
Verð áður kr. 24.995
Verð nú kr. 14.995
Stærðir: 39 - 47 | Vörunr. 150014-56904
Casual Cool II - herra
Verð áður kr. 24.995
Verð nú kr. 14.995
Stærðir: 39 - 47 | Vörunr. 150014-56901
Casual Cool - dömu
Verð áður kr. 24.995
Verð nú kr. 14.995
Stærðir: 35 - 43 | Vörunr. 120013-56938
Casual Cool II - herra
Verð áður kr. 29.995
Verð nú kr. 17.995
Stærðir: 39 - 47 | Vörunr. 150024-56462
Classic - herra
Verð áður kr. 29.995
Verð nú kr. 17.995
Stærðir: 39 - 50 | Vörunr. 140524-51222
Comfort Classic - herra
Verð áður kr. 33.995
Verð nú kr. 20.995
Stærðir: 40 - 47 | Vörunr. 141004-01007
40%
S í m i 5 5 3 8 0 5 0
NORÐMENN verða án þriggja af sínum stærstu knattspyrnustjörnum í kvöld. John Arne Riise og Morten Gamst
Pedersen eru meiddir og þá er John Carew ekki í góðu leikformi og verður á bekknum. Moa, framherji Hannover 96,
verður í norsku sókninni í hans stað en hann hefur verið sjóðheitur í Þýskalandi í upphafi tímabilsins. Hann skoraði
einnig annað markið í 2-1 sigrinum á Íslandi fyrir ári síðan.
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
skrifar frá Ósló í Noregi
eirikur@frettabladid.is
FÓTBOLTI Eiríkur Stefán Ásgeirs-
son, íþróttafréttamaður á Frétta-
blaðinu, hefur sett saman pistil
um stöðu íslenska landsliðsins
sem mætir Noregi í Osló í kvöld.
Þar skrifar hann meðal annars
um það að stærsti munurinn á
stjórnartíð Ólafs Jóhannessonar,
þjálfara íslenska landsliðsins,
og Egils „Drillo“ Olsen, þjálf-
ara Noregs, sé að Drillo sé löngu
búinn að finna sitt lið og hafi
haldið sig við það. Hið sama sé
ekki hægt að segja um Ólaf.
Ólafur hættir sem þjálfari
eftir undankeppnina og nýr
maður verður að mati Eiríks að
kynna sér hvaða mistök voru
gerð í stjórnartíð forvera hans
og ef til vill líka hvernig í ósköp-
unum Egil „Drillo“ Olsen, þjálf-
ari Noregs, kom liðinu á þann
stall sem það er á í dag. Allan
pistil Eiríks Stefáns má finna á
Vísi.
Utan vallar um landsliðið:
Þarf að leita í
smiðju Drillos
EGIL „DRILLO“ OLSEN Hefur komið
norska landsliðinu upp í tólfta sæti á
FIFA-listanum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Leikmenn bera líka sök á genginu
Ísland mætir Noregi í undankeppni EM 2012 ytra í kvöld. Rúrik Gíslason, leikmaður Íslands, vorkennir
Ólafi Jóhannessyni þjálfara fyrir þá gagnrýni sem hann hefur fengið og segir að leikmenn beri líka sök.
EINN AF FRAMTÍÐARMÖNNUNUM Rúrik Gíslason er af ungu mönnunum í íslenska
A-landsliðinu. Hér er hann í leik með 21 árs landsliðinu á EM í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON