Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.09.2011, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 06.09.2011, Qupperneq 4
6. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR4 Í leiðara blaðsins í gær var farið rangt með vörumerki Vallanesbúsins á Fljótsdalshéraði. Vörur búsins eru seldar undir merkinu Móðir jörð. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LANDSDÓMUR Mál Alþingis á hendur Geir H. Haarde er órannsakað sem sakamál, ákæran er stórkostlega vanreifuð og óskýr, Sigríður J. Friðjónsdóttir er vanhæf sem saksóknari og málsmeðferðin brýtur bæði í bága við stjórnar- skrá Íslands og Mannréttindasáttmála Evrópu. Allt ofantalið er meðal röksemda Andra Árnasonar, verjanda Geirs, fyrir því að vísa beri málinu frá landsdómi. Tekist var á um frá- vísunarkröfuna í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Geir krafðist einnig frávísunar málsins þegar ákæran á hendur honum var þingfest í júní, þá á þeirri forsendu að dómurinn væri ólöglega skipaður. Þeirri kröfu var hafnað. Í gær var aftur tekin fyrir frávísunarkrafa, nú byggð á fjölda ann- arra atriða sem Geir og verjandi hans telja ónýta málið. Í fyrsta lagi telja þeir að málið hafi aldrei hlotið formlega sakamálarann- sókn þar sem bæði sak- sóknari og þingmanna- nefnd Atla Gíslasonar hafi undirbúið ákæruna með því einu að liggja yfir gögnum. Raunar gagnrýndi Andri það sérstaklega að nefndin og þingið allt hafi tekið ákvörðun um ákæru án þess að hafa haft til þess fullnægjandi gögn, sem Þjóðskjalasafnið og forsætisráðu- neytið afhentu ekki fyrr en að beiðni saksókn- ara. Sérstaklega gagnrýndi Andri það í yfir- ferð sinni að engin skýrsla hefði verið tekin af Geir við rannsókn málsins, eins og tíðkað- ist í öllum sakamálum. „Reglur um rannsókn sakamála eru ekki bara upp á punt. Þær eru þarna til að þeim sé fylgt,“ sagði Andri. Í öðru lagi telja þeir að að ákæran sé svo almennt orðuð að ótækt sé. Engin leið sé fyrir Geir að átta sig fyllilega á því fyrir hvað – nákvæmlega – hann er ákærður, hvað hann hefði átt að gera sem hann gerði ekki og öfugt. Ákærur þurfi að vera skýrar og ekki sé nóg að ítarleg lýsing á ákæruatriðunum komi fyrst fram við aðalmeðferð. Hún sé raunar svo óljós að hún standist ekki kröfur um réttláta máls- meðferð og brjóti þar með gegn stjórnar- skránni og Mannréttindasáttmála Evrópu. Ómögulegt sé að undirbúa málsvörn þegar menn þurfi nánast að geta sér til um það á hverju málatilbúnaður ákæruvaldsins muni byggja. Í þriðja lagi telur sakborningurinn að sak- sóknarinn hafi gert sig vanhæfan til að fara með málið þegar hann var þingmannanefnd Atla Gíslasonar til ráðgjafar um smíði þings- ályktunartillögu um ákæruna. Að lokum er það mat Geirs og Andra að jafnræðisregla stjórnarskrárinnar hafi verið brotin þegar Alþingi ákvað að ákæra aðeins einn af þeim fjórum sem þingmannanefndin lagði til að dregnir yrðu fyrir dóm, án þess að sýnt hafi verið fram á að sú aðgreining hafi byggst á málefnalegum forsendum. Sigríður Friðjónsdóttir var til andsvara og mótmælti öllum röksemdum Geirs og Andra. Hún sagði málið í raun hafa verið rannsakað af rannsóknarnefnd Alþingis og ekki ætti að taka skýrslu til þess eins að fullnægja form- skilyrðum. Ákæran væri í samræmi við það sem Alþingi ákvað og alls ekki óskýr, sjálf hefði hún enga efnislega afstöðu tekið til máls- ins við ráðgjöf sína og þingmenn hefðu greitt atkvæði um ákæru samkvæmt sannfæringu sinni, eins og kveðið væri á um í stjórnarskrá, og það þyrfti ekki frekari rökstuðnings við. Landsdómur hefur nú fjórar vikur til að kveða upp úrskurð um kröfuna. stigur@frettabladid.is Telja ítrekað brotið á Geir Mannréttinda- og stjórnarskrárbrot, vanhæfi og stórkostleg vanreifun eru allt orð sem verjandi Geirs H. Haarde greip til þegar hann krafðist þess – aftur – að máli Alþingis gegn honum yrði vísað frá landsdómi. ENGINN KULDI Geir Haarde heilsaði að venju saksóknaranum Sigríði Friðjónsdóttur með handabandi við upphaf réttarhaldanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Reglur um rannsókn sakamála eru ekki bara upp á punt. ANDRI ÁRNASON VERJANDI GEIRS H. HAARDE VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR ENSKI BOLTINN STÆRRI EN ALLT GENGIÐ 05.09.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 219,0053 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 115,07 115,61 185,59 186,49 162,48 163,38 21,809 21,937 21,193 21,317 17,845 17,949 1,4966 1,5054 183,3 184,4 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is KJARAMÁL Félagsráðgjafar hjá Reykjavíkurborg hyggjast fjöl- menna á opinn fund borgarstjórn- ar í dag til þess að leggja áherslu á launakröfur sínar. Í byrjun júní felldu félagsráðgjafarnir með 75 prósentum greiddra atkvæða samninga sem þeim buðust og er þá farið að lengja eftir að viðun- andi niðurstaða fáist. „Störf starfsmanna hjá Reykja- víkurborg voru metin árið 2006. Við erum ósátt við matið og viljum endurmat. Við erum lægst laun- aða fagfólkið á þjónustumiðstöðv- unum en erum í framvarðasveit í velferðarþjón- ustu. Aukið álag í kjölfar banka- hrunsins hefur að miklu leyti lent á okkur og við viljum fá laun í samræmi við það og einn- ig í samræmi við menntun okkar,“ segir Bryndís Ósk Gestsdóttir félagsráðgjafi. Hún kvaðst hafa fengið 231.954 krónur í laun eftir skatt 1. septem- ber síðastliðinn. „Félagsráðgjafanámið er fimm ára háskólanám. Ég er orðin 38 ára og er með 10 ára starfs- reynslu. Þessi lágu laun félags- ráðgjafa hafa valdið því að þeir eru farnir að ráða sig annað. Það er farið að ráða fólk með aðra menntun í stað þeirra sem hafa hætt. Það er verið að minnka þjónustustigið við borgarana. Það er á ábyrgð stjórnmála- mannanna að þjónustan sé fagleg og góð og þess vegna fjölmenn- um við í Ráðhúsið,“ segir Bryn- dís Ósk. - ibs Félagsráðgjafar hjá Reykjavíkurborg flýja annað vegna óánægju með lág laun: Ófaglærðir ráðnir í staðinn BRYNDÍS ÓSK GESTSDÓTTIR Í Fréttablaðinu í gær var sagt að útboð vegna olíuleitar á Drekasvæð- inu yrðu opnuð 1. október. Hið rétta er að það gerist 3. október, fyrsta mánudag í október. LEIÐRÉTTINGAR SÓMALÍA Hungursneyð hefur verið lýst yfir í fleiri héröðum í Sómalíu. Fjórar milljónir Sómala þurfa nú á neyðaraðstoð að halda, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Hundruð Sómala látast úr hungri á hverjum degi. Að minnsta kosti helmingurinn er börn. Tæplega sextíu prósent fólks eru alvarlega vannærð. Hungurs- neyðin mun breiðast enn meira út ef ekki verður brugðist við strax, segja Sameinuðu þjóðirnar. Hungursneyð hefur verið lýst yfir á sex svæðum, fjórum í Sóm- alíu og tveimur svæðum þar sem eingöngu flóttamenn hafast við. - þeb Hungursneyð breiðist út: Hundruð látast á hverjum degi SUÐUR-KÓREA Tíðni sjálfsvíga hefur tvöfaldast í Suður-Kóreu á síðustu árum. Þetta sýna nýjar tölur. Tölurnar sýna að árið 2009 frömdu meira en 40 manns sjálfs- víg á hverjum degi, sem eru tvö- falt fleiri en tíu árum fyrr. Suður-Kórea hefur einna hæst hlutfall sjálfsvíga í heiminum. Þrýst hefur verið á stjórnvöld að aðhafast í þessum málum. Lög hafa verið sett sem leggja meiri ábyrgð á herðar stjórnvalda, og nú stendur til að opna hjálpar- stofnanir víða um landið. - þeb Tvöföldun á tíu árum: 40 sjálfsvíg á dag í S-Kóreu HÖRMULEGT ÁSTAND Fjórar milljónir Sómala þurfa á neyðaraðstoð að halda. Hundruð deyja úr hungri á hverjum degi. MYND NORDICPHOTOS/AFP VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 29° 21° 20° 16° 21° 21° 16° 16° 28° 17° 29° 21° 31° 16° 20° 25° 18° Á MORGUN 10-18 m/s. FIMMTUDAGUR 8-15 m/s. 5 12 13 12 12 10 10 10 6 10 10 8 3 4 5 3 2 5 5 4 2 3 5 7 6 10 12 46 6 8 10 NORÐANÁTT Gengur í stífa norðanátt á land- inu í nótt með úrkomu um norð- an- og austanvert landið næstu daga. Úrkomulítið og létt- ir til syðra. Kólnar heldur í veðri og má víða búast við næturfrosti aðra nótt. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.