Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 06.09.2011, Blaðsíða 34
6. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR26 sport@frettabladid.is VEIGAR PÁLL GUNNARSSON dró sig um helgina úr íslenska landsliðinu vegna ósættis við landsliðsþjálfarann Ólaf Jóhannesson. Sjálfur vildi Ólafur ekki tjá sig um ágreininginn í samtali við Fréttablaðið í gær og ekki náðist í Veigar Pál sem leikur með Vålerenga í Noregi. FÓTBOLTI Íslenska landsliðið spilar í kvöld síðasta heimaleik sinn í und- ankeppni EM 2012 þegar Kýpur kemur í heimsókn á Laugardals- völlinn. Þetta er um leið hálfgerð- ur úrslitaleikur um að sleppa við júmbósætið í riðlinum því Kýp- verjar eru með einu stigi meira en Ísland þökk sé stigi sem þeir náðu í á útivelli á móti Portúgal. Þetta er umfram allt leikur upp á stolt- ið og algjört dauðafæri til að enda eina lengstu þrautargöngu íslenska karlalandsliðsins. Biðin eftir sigurleik í mótsleik er orðin löng hjá íslenska landslið- inu og í raun hefur íslenska lands- liðið aðeins tvisvar þurft að bíða lengur eftir sigri síðan sá fyrsti vannst á móti Austur-Þjóðverjum í undankeppni EM 5. júní 1975. Metið er 1.170 daga bið lands- liðsins frá 11. júní 1977 til 24. ágúst 1980. Íslenska liðið endaði biðina með óvæntum 3-1 útisigri á Tyrkjum í undankeppni HM í Izmir. Það var jafnframt fyrsti úti- sigur íslenska landsliðsins í undan- keppni HM eða EM. Íslenska landsliðið beið síðan í 1.092 daga eftir sigri frá 12. sept- ember 1984 til 9. september 1987. Ísland endaði biðina með 2-1 sigri á Norðmönnum á Laugardalsvelli og vann síðan einnig sigur á Norð- mönnum í Ósló í næsta leik. Þetta var í fyrsta sinn sem íslenska landsliðið vann tvo mótsleiki í röð. Ólafur Jóhannesson hefur aðeins stýrt íslenska liðinu til sig- urs í einum af fimmtán leikjum í undankeppni HM og EM. Eini sig- urinn til þessa kom á móti Make- dóníu á Laugardalsvellinum 15. október 2008 og síðan eru liðnir 1.056 dagar. Tapleikurinn í Ósló var tíundi mótsleikur Íslands í röð án þess að liðið náði að vinna. „Við fáum núna enn eitt tæki- færið til að sýna að við erum betri en undanfarið gengi hefur gefið til kynna,“ sagði Kolbeinn Sigþórsson sem er einn af ungu leikmönnum liðsins sem hafa ekki náð að vinna alvöru landsleik. „Hungrið í sigur er mikið í liðinu en auðvitað erum við svekktir eftir síðasta leik. Það hefur verið mikil neikvæðni í kringum landsliðið og það er kjör- ið tækifæri núna að sýna okkar rétta andlit,“ sagði Kolbeinn. Kolbeinn fékk lítið úr að moða í framlínunni í leiknum í Nor- egi. „Við þurfum klárlega að laga sóknarleikinn. Það er ekki nóg að skapa tvö færi í einum leik og ég sem dæmi fékk ekki neitt færi í leiknum. Það gerist ekki oft að ég fái ekki færi í leik. Við þurf- um að bæta aðeins sóknarleikinn en varnarleikurinn var góður síð- ast,“ sagði Kolbeinn. „Kýpurmenn eru með gott lið og við verðum að passa okkur líka því þeir eru klók- ir og geta gert góða hluti ef þeir fá tækifæri til þess. Ef við lítum samt á riðilinn og á hvaða lið við eigum að vinna þá er það Kýpur,“ sagði Kolbeinn. Jóhann Berg Guðmundsson á það sameiginlegt með Kolbeini að hafa fengið fá tækifæri til að nýta sóknarhæfileika sína á móti Noregi. „Það er kominn tími á sigur og er ekki um að gera að ná honum á heimavelli á móti liði sem við eigum möguleika á móti? Við vitum að þetta verður erfiður leik- ur og að við verðum að vera hundr- að prósent á leikdag. Síðasti leik- urinn í þessari keppni er á móti Portúgal úti sem verður gríðarlega erfiður leikur. Það verður erfitt að ná í einhver stig þar þannig að þetta er leikurinn sem við ætlumst til að við vinnum og viljum vinna. Vonandi heppnast það hjá okkur,“ segir Jóhann Berg sem segir liðið vera búið að losa sig við svek- kelsið frá því í Noregi. „Auðvitað var þetta fínn leikur hjá okkur og algjör óheppni að fá þetta mark á sig á lokamínútunum. Það er ekki mikið búið að falla með okkur en vonandi breytist það á morgun.Við verðum að fá þessa þrjá punkta og ég held að það sé skylda.“ Það hefur ekki verið mikill áhugi á íslenska landsliðinu að undanförnu en vonandi verður enginn svikinn af því að skella sér í Laugardalinn í kvöld og sá sjald- gæfan íslenskan sigurleik. ooj@frettabladid.is Endar 1.056 daga bið í kvöld? Íslenska landsliðið í fótbolta hefur ekki unnið mótsleik í tvö ár, tíu mánuði og tuttugu og tvo daga. Liðið fær frábært tækifæri til að enda þessa löngu bið eftir sigri þegar Kýpverjar mæta á Laugardalsvöllinn í kvöld. Kolbeinn Sigþórsson og Jóhann Berg Guðmundsson vonast eftir betri og meiri sóknarleik en í Ósló. SÓKNARLÍNAN VERÐUR AÐ VERA Í LAGI Jóhann Berg Guðmundsson, Kolbeinn Sigþórsson og Helgi Valur Daníelsson fylgjast með Eiði Smára Guðjohnsen á lands- liðsæfingu á Laugardalsvellinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Lengsta bið Íslands eftir sigurleik í undankeppni: 1170 dagar - 11.júní 1977 - 24. ágúst 1980 Endaði: Izmir í Tyrklandi, 3-1 sigur á Tyrkjum 1092 dagar - 12. sept. 1984 - 9.sept. 1987 Endaði: Laugardalsvöllur, 2-1 sigur á Noregi 1056 dagar - 15. október 2008 - enn í gangi 801 dagur - 11. júní 1995 - 20. ágúst 1997 Endaði: Liechtenstein, 4-0 sigur á Liechtenstein 737 dagar - 5. júní 1975 - 11. júní 1977 Endaði: Laugardalsvöllur, 1-0 sigur á Norður- Írlandi 728 dagar - 23. sept. 1987 - 20. sept 1989 Endaði: Laugardalsvöllur, 2-1 sigur á Tyrklandi 658 dagar - 20. ágúst 2003 - 8. júní 2005 Endaði: Laugardalsvöllur, 4-1 sigur á Möltu 641 dagur - 8. sept. 1993 - 11. júní 1995 Endaði: Laugardalsvöllur, 2-1 sigur á Ungverjalandi 634 dagar - 9. sept. 1981 - 5. júní 1983 Endaði: Laugardalsvöllur, 1-0 sigur á Möltu FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari stýrir íslenska landsliðinu í síðasta sinn á Laug- ardalsvellinum þegar Ísland mætir Kýpur í undankeppni EM 2012 í kvöld. Ísland tapaði fyrir Noregi ytra á föstudaginn, 1-0, en Ólafur var samt ánægður með frammistöðu leikmanna. „Við vinnum Kýpur með ann- arri eins frammistöðu. Það er ekki spurning.“ Hann segir leik- menn hafa verið svekkta eftir tapið. „Það hefur gengið ágætlega að gíra menn upp í leikinn og ég hef engar áhyggjur af því að menn gefi sig ekki alla í leikinn eins og þeir hafa alltaf gert. Við spil- uðum ágætlega gegn Noregi en við erum meðvitaðir um að við fengum ekkert stig úr þeim leik. En menn gáfu sig alla í leikinn og við ætlum að gera það sama nú.“ - esá Ólafur Jóhannesson: Gefum allt í Kýpurleikinn KVEÐJUSTUND Ólafur Jóhannesson stýrir Íslandi í síðasta sinn á Laugardalsvell- inum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Ekkert varð að því að Roy Keane kæmi til Íslands í gær eins og greint var frá snemma dags. Eggert Magnússon, fyrr- um formaður KSÍ, kom til lands- ins ásamt eiginkonu sinni en þau höfðu boðið Keane og eiginkonu hans til Íslands. Knattspyrnusamband Íslands er nú að leita að nýjum landsliðs- þjálfara og sagði Geir Þorsteins- son, formaður sambandsins, um helgina að nokkrir hefðu sýnt starfinu áhuga. Forráðamenn KSÍ vildu ekki staðfesta í gær að Roy Keane væri einn þeirra. Málið hefur fengið mikil og sterk viðbrögð í Írlandi, heima- landi Keanes, sem og í Bretlandi. Fréttablaðið setti sig í samband við fréttamann enska dagblaðsins Daily Mail, sem skrifaði um málið í gærmorgun. Heimildir blaðs- ins herma að Keane hafi átt í við- ræðum við Knattspyrnusamband Íslands og að hann verði, þrátt fyrir allt, viðstaddur leik Íslands og Kýpur í dag. Eggert sagði að ekkert hefði verið rætt við Keane um að taka að sér starfið eins og fullyrt var á vefsíðu Daily Mail í gær. „Ég hef bara rætt við hann af því að hann er gamall vinur minn úr enska boltanum. Hann er mikill fjöl- skyldumaður og komst ekki frá henni að svo stöddu,“ sagði Eggert við Fréttablaðið í gær. Aðspurður fullyrti hann að Keane yrði ekki á leiknum í dag. Keane hefur verið atvinnulaus síðan í janúar síðastliðnum og full- yrða þeir fjölmiðlamenn á Írlandi sem Fréttablaðið ræddi við í gær að Keane komi til greina sem næsti landsliðsþjálfari Írlands, ákveði Giovanni Trapattoni að stíga til hliðar þegar núverandi samningur hans rennur út. Sá gild- ir fram yfir EM 2012. Mikil óvissa er um málið eins og er og vildu forráðamenn KSÍ ekk- ert um það segja hvort þeir hefðu sett sig í samband við Keane eða ekki. Keane er þó enn sterklega orðaður við landsliðið, þó svo að hann hafi ekki komið til landsins í gær. - esá Mikið fjaðrafok um meinta komu Roy Keane til Íslands í gær sem svo ekkert varð úr: Keane enn sterklega orðaður við landsliðið EGGERT KOM EN KEANE EKKI Til stóð að Roy Keane kæmi til Íslands í gær í fylgd með Eggerti Magnússyni en svo varð ekki. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG FÓTBOLTI U-21 lið Íslands mætir í dag jafnöldrum sínum frá Nor- egi í undankeppni EM 2013. U-21 liðið hóf leik í undankeppninni á fimmtudaginn var en þá unnu strákarnir 2-1 sigur á Belgíu á Vodafone-vellinum. Leikurinn í dag fer fram á Kópavogsvelli og hefst klukkan 16.15. Björn Bergmann Sigurðarson skoraði bæði mörk Íslands gegn Belgíu en hann verður ekki með í dag. Hann var um helgina kall- aður inn í A-landsliðið sem mætir Kýpur í dag. - esá Undankeppni EM U-21: Strákarnir mæta Noregi GLEÐI U-21 landslið Íslands fagnar öðru marka sinna gegn Belgíu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Svo gæti farið að Ólafur Jóhannesson þurfi að gera breyt- ingar á varnarlínu Íslands þar sem miðvarðarparið úr leiknum gegn Noregi, Indriði Sigurðsson og Sölvi Geir Ottesen, eru báðir tæpir fyrir leikinn í kvöld. Indr- iði er veikur en Sölvi Geir að glíma við meiðsli í baki. Það kemur ekki í ljós fyrr en í dag hvort þeir geti spilað. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að Kristján Örn Sigurðsson kemur aftur inn í liðið eftir að hafa tekið út leikbann. - esá Breytingar í varnarlínunni? Indriði veikur og Sölvi tæpur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.