Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 10
24. september 2011 LAUGARDAGUR10
BÆNDA
-
MARKA
ÐUR
Í DAG L
AUGAR
DAG
KL. 11-16
Bændamarkaðurinn
er í Krónunni
Lindum / Bíldshöfð
a / Granda / Mosfel
lsbæ / Selfossi / Ak
ranesi
N k uppskeraslený s í
U kriftirpps
ningasteSvei mt
ært verðFráb
ukkaðSma – fyrst og fre
mst
ódýr!
VELJUM
ÍSLENS T!K⁄
SJÁVARÚTVEGUR Hagnaður íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja er meiri en
hagnaður fyrirtækja í geiranum í
Noregi. Þetta má að einhverjum
hluta rekja til fyrirkomulags fisk-
veiða hér á landi, segir í samantekt
norsks sérfræðings.
Framlegðin hjá íslenskum sjávar-
útvegsfyrirtækjum var umtalsvert
hærri en hjá norskum fyrirtækjum
á árunum 2008 og 2009, en fyrir
þann tíma er munurinn minni,
sagði Audun Iversen, sérfræðingur
hjá Nofima, á fundi um sjávarút-
vegsmál á vegum Íslandsbanka í
gær. Nofima er matar-, sjávarút-
vegs- og fiskeldisstofnun í Noregi.
Hann segir kvótakerfið sem
Íslendingar nota gefa sjávarútvegs-
fyrirtækjum möguleika á að skipu-
leggja veiðarnar, sem gefi þeim for-
skot á útgerðir í öðrum löndum. Þau
geti frekar tryggt stöðugt vöru-
framboð fyrir kaupendur, sem sé
sérlega mikilvægt þegar selt sé í
sífellt auknum mæli til erlendra
stórmarkaða.
Í samantekt sérfræðinga Íslands-
banka kemur fram að framlegð
íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja
hafi batnað umtalsvert eftir banka-
hrunið haustið 2008. Má rekja
breytingarnar til falls krónunnar,
sem kemur útflutningsgreinum
vel, sem og hækkandi fiskverðs á
alþjóðamörkuðum.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, benti á fundinum á
að arðsemin í sjávarútvegsfyrir-
tækjunum væri góð núna, en sú
hefði ekki alltaf verið raunin.
Í gögnum bankans sést saman-
burður á hagnaði íslenskra sjávar-
útvegsfyrirtækja fyrir skatta,
afskriftir og fjármagnsliði frá
árinu 1981. Þar sést að hagnaður-
inn var að meðaltali um sex pró-
sent á árunum áður en kvótakerf-
ið var tekið upp árið 1984. Frá því
að kerfið var tekið í gagnið þar til
framsal kvóta var leyft árið 1991
var hagnaðurinn fimmtán pró-
sent að meðaltali. Eftir 1991 hefur
hagnaðurinn verið að meðaltali 21
prósent.
Skuldir sjávarútvegsfyrirtækja
við Íslandsbanka eru á bilinu 70-80
milljarðar króna og hefur bankinn
varað við fyrirhuguðum breyting-
um á kvótakerfinu í umsögn um
frumvarp sjávarútvegsráðherra.
„Þetta er áróðursstríð,“ sagði
Birna. Hún hvatti hagsmunaaðila
til að vera duglega að koma stað-
reyndum um sjávarútveginn á
framfæri við almenning, enda
byggðu ákvarðanir þingmanna
gjarnan á viðhorfum kjósenda.
brjann@frettabladid.is
Hagnaðurinn meiri á Íslandi
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hagnast meira en fyrirtæki í Noregi segir norskur sérfræðingur. Hann segir
kvótakerfið skýra muninn að hluta. Bankastjóri Íslandsbanka varar við breytingum á kvótakerfinu.
Á LEIÐ Í LAND Íslenskum fiskiskipum hefur fækkað úr 1.976 árið 1999 í 1.625 árið 2010, eða um átján prósent. Þeim fjölgaði
lítillega aftur á síðasta ári vegna strandveiða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kvótinn á fárra hendur
1992 1999 2004 2011
Hlutdeild tíu stærstu kvótaeigendanna í heildarafla
60
50
40
30
20
10
%
24%
32%
47%
53%
HEIMILD: ÍSLANDSBANKI OG FISKISTOFA
Eftir að heimilt varð að kaupa og selja aflaheimildir árið 1991 hafa fyrirtæki í sjávarútvegi sam-
einast og stækkað, sem eykur skuldsetningu innan greinarinnar en stuðlar að aukinni arðsemi
fyrirtækjanna, að því er segir í úttekt sérfræðinga Íslandsbanka um sjávarútvegsmál.
Þetta hefur það í för með sér að kvótinn safnast á sífellt færri hendur, og nú er svo komið
að tíu stærstu sjávarútvegsfyrirtækin eiga 53 prósent kvótans. Tuttugu stærstu fyrirtækin eiga
73 prósent kvótans.
Fimm stærstu fyrirtækin eru HB Grandi, Samherji, Ísfélag Vestmannaeyja, Síldarvinnslan og
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum.
Tíu stærstu eiga ríflega helming kvótans
LENGSTA TACO HEIMS Kokkar í
Mexíkóborg bjuggu í vikunni til fimm-
tíu metra langa taco-vefju í von um að
slá heimsmet. NORDICPHOTOS/AFP
HEILBRIGÐISMÁL Ópal sjávarfang
ehf. hefur ákveðið að taka graf-
lax af markaði eftir að listeria
monocytogenes greindist yfir við-
miðunarmörkum við lok líftíma
vörunnar.
Örverugreining leiddi í ljós að
listería fannst í laxi sem fram-
leiddur var á tímabilinu 5. til 18.
september. Þeim sem eiga graf-
lax frá Ópal sjávarfangi ehf. með
þessum framleiðsludögum er bent
á að hafa samband við fyrirtækið í
síma 517 6630. - jss
Matvæli tekin af markaði:
Enn finnst list-
ería í graflaxi
Fá 300 þúsund til jólanna
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar fær
300 þúsund króna styrk úr bæjar-
sjóði til að mæta útgjöldum vegna
komandi jólaúthlutunar. Bæjarráð
samþykkti þetta á fimmtudag.
HAFNARFJÖRÐUR