Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 40
4 fjölskyldan S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s TILBOÐ 30% afsláttur Kínverskt te fyrir góða heilsu • orkuleysi • svefnleysi • hægðartregðu • grenningu • minkun kolesterols o.fl. o.fl. Margskonar te við: Sigurjón Vigfús Eiríksson fylltist mikilli tilhlökkun þegar móðir hans María Hreinsdóttir sagði hann eiga von á yngra systkini veturinn 1998. Afbrýðisemi sem grípur oft um sig meðal eldri systkina við slíkar fréttir var víðs fjarri enda Sigurjón löngu vaxinn upp úr slíku, orðinn 24 ára gamall og fluttur að heiman. „Mér fannst bara skemmtilegt að eignast lítið systkini hálf óvænt fyrir þrettán árum,“ minnist Sig- urjón, kallaður Donni, en mánuði fyrir jól kom yngri bróðirinn Birg- ir Már Birgisson í heiminn. „Mikil gleði ríkti heima hjá mömmu og Birgi (Georgssyni innsk. blaða- manns), pabba Birgis Más, þau jólin. Mamma ákvað að festa allt saman á filmu og til er alveg ógeðslega fyndin mynd af okkur bræðrunum, litla og stóra, þar sem við sitjum fyrir framan jólatréð.“ Þótt mikill aldursmunur sé á bræðrunum eru þeir mestu mátar og hvorugur vill kannast við að nokkurn tímann hafi verið rígur á milli. „Donni er skemmtilegur, fyndinn og frábær kokkur. Hann stríðir mér aldrei,“ upplýsir Birgir Már. „Nei, enda fannst mér nú ekki viðeigandi að lumbra á honum, það hefði ekkei litið sérlega vel út,“ tekur Donni fram og hlær og seg- ist halda mikið upp á litla bróður sinn. Donni er nú kvæntur og tveggja barna faðir. Hann segir syni sína Jóhannes Kára, sex ára og Eirík Ara, þriggja ára, líta upp til stóra frænda. „Birgir er góður við þá. Þeir djöflast saman og hann kenn- ir þeim fótboltabrögð,“ segir Donni. Birgir Már kveðst hafa gaman af en finnst þó verst að hvorugur tekur tilsögn. Donni hlær. „Kannski er bara meiri bræðra- stemning á milli þeirra.“ - rve Enginn bræðrarígur Þótt nokkur aldursmunur sé á bræðrunum Sigurjóni Vigfúsi Eiríkssyni og Birgi Má Birgissyni, heil 24 ár, eru þeir bestu vinir og gera ýmislegt skemmtilegt saman. Á góðri stundu Bræðurnir Sigurjón (Donni) og Birgir Már um síðustu áramót. Það líða aldrei margir dagar svo við tölum ekki saman,“ segir Ragnar Sigurðsson þegar hann og Júlíus bróð- ir hans eru spurðir út í samskipti sín. „Að minnsta kosti ekki vikur. Annað hvort hittumst við eða tölum saman í síma,“ áréttar Júlíus og segir þá oft hafa leitað ráða hvor hjá öðrum. „Við nýtum þau ráð ef okkur þykja þau góð – sem þau eru oft,“ segir hann. Júlíus er fæddur 1922 og Ragn- ar 1927. Þó að fimm ár skilji þá að í aldri segjast þeir hafa leikið sér mikið saman sem strákar. „Ég held við höfum öll náð vel saman systk- inin, níu talsins,“ segir Ragnar. „Við erum bara fjögur eftir og bara við tveir af strákunum.“ Þeir bræður ólust upp á Langeyr- arveginum í Hafnarfirði. „Við erum ekta „Gaflarar“ og líka ekta Hauk- ar,“ segir Júlíus, og Ragnar segir þá báða hafa spilað fótbolta í uppvext- inum. „Núna spilum við félagsvist með gömlum Haukum, einu sinni í mánuði,“ segir hann. Júlíus byrjaði til sjós 1939 og var á hafnfirskum togurum og bátum til 1973, þar af sem skipstjóri eða stýrimaður í 25 ár, og Ragnar vann á vinnuvélum, verkstæðum og eigin vörubíl í fjölda ára. „Undir lok starfstímans var ég umsjónar- maður í Flensborg, það voru skemmtilegustu árin,“ segir hann. Enn búa bræðurnir í Hafnarfirði. Viðtalið fer fram á fallegu heimili Ragnars og konu hans, Hjördísar Jónsdóttur. Spurðir hvort þeir hafi ferðast saman kemur í ljós að þeir bræður eru nýkomnir austan frá Gullfossi þar sem þeir gistu á hótelinu eina nótt. Þeir upplýsa líka að stórfjöl- skyldan hittist alltaf þrisvar á ári. „Það er jólafagnaður fyrir börnin, góugleði og svo vorfagnaður eða ferðalag. Við leigjum félagsheim- ili undir þessar samkomur enda mæta þar hátt í hundrað manns,“ segja þeir. Að síðustu eru bræðurnir innt- ir eftir hvort þeir hafi slegist sem strákar. „Ekki mikið innbyrðis. Við stóðum saman ef slagsmál brutust út og einhver bróðirinn var undir,“ segir Ragnar og kímir. „Ég man nú ekki eftir neinu stórslysi í sambandi við það,“ segir Júlíus. „En þeir voru ekki margir sem eltu okkur á eftir.“ - gun Ekta Gaflarar Ragnar og Júlíus halda báðir með Haukum, svo ekki metast þeir vegna íþróttanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Stóðum saman ef slagsmál brutust út Hafnfirsku bræðurnir Júlíus og Ragnar Sigurðssynir eru báðir á níræðisaldri og hafa verið bestu vinir alla tíð. Þeir eru líka hluti af samheldinni stórfjölskyldu sem hittist oft. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI ÍÞRÓTTIR Meiri Vísir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.