Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 72
24. september 2011 LAUGARDAGUR40 Sjónarhorn Ljósmynd: Pjetur Sigurðsson FÓTBOLTI Í FJALLAFAÐMI Liðsmenn ÍH létu hvorki iðjagrænan golfvöllinn né fjallasýnina frá Hveragerði trufla sig þegar þeir sigruðu Hamar með 4 mörkum gegn 3 á laugardaginn var, í síðasta leiknum sem fram fór í 2. deild á þessu sumri. Á þessum degi fyrir réttum 23 árum, hinn 24. september árið 1988, vann Kanadamaðurinn Ben Johnson eitt magnaðasta íþróttaafrek sögunnar þegar hann kom fyrstur í mark í 100 metra hlaupi á Ólympíu- leikunum í Seúl á 9,79 sekúndum, langt á undan erkióvini sínum Carl Lewis. Gleði Johnsons reyndist þó skammvinn því að þremur dögum síðar var opinberað að lyfjapróf hefði leitt í ljós að hann hefði neytt stera til að bæta árangur sinn. Hann var því sviptur titlinum og heimsmetinu og var í framhaldinu dæmdur í keppnisbann. Leið Johnsons á toppinn hófst í upphafi níunda áratugarins þegar hann náði góðum árangri á Samveldisleikunum 1982 og vann sér þátttökurétt á Ólympíuleik- unum í Los Angeles árið 1984. Þar hreppti hann bronsið í 100 metra hlaupi á meðan Lewis vann glæstan sigur. Lewis hafði lengi yfirburði í greininni en árið 1985 vann Johnson loks sigur á þess- um helsta keppinauti sínum og endurtók leikinn á Góðgerðaleikunum árið eftir. Það var síðan á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Róm árið 1987 sem Ben Johnson festi sig í sessi sem besti spretthlaupari heims, en þá tryggði hann sér sigur með því að hlaupa á nýju heimsmeti, 9,83 sek- úndum. Hann bætti með því fjögurra ára gamalt met Bandaríkjamanns- ins Calvin Smith um tíu hundraðshluta og var sigurstranglegastur fyrir Ólympíuleikana sem nálguðust óðfluga. Í aðdraganda leikanna meiddist Johnson hins vegar tvívegis á læri og var efast um að hann myndi ná fullum styrk fyrir stóru stundina. Hann hristi hins vegar allt slíkt af sér og átti einstakt hlaup, þar sem menn eins og Lewis og Linford Christie máttu sín lítils. Eftir hlaupið stóðst hann ekki mátið að nudda salti í sárin og sagði að helsta takmark sitt í hlaupinu hefði verið að sigra Carl Lewis. „Ekki að slá heimsmet, heldur að sigra Carl Lewis og vinna hlaupið.“ Eins og fyrr sagði var gleðin þó skammvinn. Johnson hélt því lengi fram að efnunum hefði verið laumað í glas hans fyrir hlaupið og að um samsæri hefði verið að ræða. Hann játaði þó síðar að hafa neytt lyfjanna og líka þegar hann sló heimsmetið árið áður, þannig að það var einnig fellt úr gildi. Johnson reyndi endurkomu árið 1991 en gekk ekki vel. Hann komst þó á Ólympíuleikana í Barcelona árið eftir en komst ekki upp úr undan- rásunum. Hann er nú búsettur í Kanada, þar sem hann sinnir þjálfun, en hann gaf út ævisögu sína í fyrra þar sem hann sparaði ekki stóru orðin, sérstaklega hvað varðar Carl Lewis. Hans verður þó ætíð minnst sem alræmdasta svindlara í sögu frjálsra íþrótta eftir hlaupið afdrifaríka fyrir 23 árum. - þj Í ÞÁ TÍÐ: 1988 Skammvinn sigur- gleði Bens Johnson Spretthlauparinn Ben Johnson var sviptur Ólympíugulli eftir lyfjahneyksli. Í MARK Kanadamaðurinn Ben Johnson kom fyrstur í mark í 100 metra hlaupi á Ólympíu- leikunum árið 1988. Þremur dögum síðar var hann sviptur titlinum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.