Fréttablaðið - 24.09.2011, Side 80

Fréttablaðið - 24.09.2011, Side 80
24. september 2011 LAUGARDAGUR48 BAKÞANKAR Atla Fannars Bjarkasonar Kemst þú á forsíðu helgarblaðs Fréttablaðsins? Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni Fréttablaðsins og þú átt möguleika á því að komast á forsíðu næsta helgarblaðs og vinna verðlaun. Þema myndarinnar er „Fólk um haust“. Besta myndin verður á forsíðu helgarblaðs Fréttablaðsins laugardaginn 1. október. Myndir má senda inn til hádegis miðvikudaginn 28. september. Hver ljósmyndari má senda eina mynd inn, fyrsta myndin gildir. Sent er á netfangið: ljosmyndakeppni@frettabladid.is Verðlaun fyrir bestu myndina eru leikhúsmiðar fyrir 6 manns í Borgarleikhúsið. Verðlaun fyrir annað og þriðja sætið eru leikhúsmiðar í Borgarleikhúsið fyrir tvo. REGLUR Samkeppnin stendur frá morgni 23. september til klukkan tólf á hádegi þann 28. september. Hver þátttakandi má bara senda eina mynd inn. Óheimilt er að senda inn eða eigna sér ljósmyndir sem eru teknar af öðrum en sendanda. Myndirnar skulu hafa verið teknar nú í haust. Áskilinn er réttur til að hafna hvaða mynd sem er og til að breyta fyrirsögn og myndatexta í birtingu hennar, jafnframt er áskilinn réttur til birtingar myndar á forsíðu blaðsins. Innsendar myndir eru eign höfunda, en Fréttablaðinu og Vísir.is er heimilt að birta þær í tengslum við keppnina og í kjölfar hennar svo fremi sem höfundarnafn sé tiltekið. Tekið er við myndum í netfanginu ljosmyndasamkeppni@frettabladid.is og skulu þær vera í nægilegri upplausn til að birta í blaðinu. Myndinni þarf að fylgja nafn höfundar og upplýsingar um heimilisfang, netfang og símanúmer. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. bannhelgi, 6. rún, 8. saur, 9. skyggni, 11. guð, 12. óstilltur, 14. rófa, 16. tveir eins, 17. bar, 18. eyrir, 20. pfn., 21. umkringja. LÓÐRÉTT 1. íþrótt, 3. strit, 4. trjátegund, 5. háma, 7. starfræksla, 10. ar, 13. stormur, 15. rótartauga, 16. hald, 19. holskrúfa. LAUSN LÁRÉTT: 2. tabú, 6. úr, 8. tað, 9. der, 11. ra, 12. ókyrr, 14. skott, 16. tt, 17. krá, 18. aur, 20. ég, 21. króa. LÓÐRÉTT: 1. júdó, 3. at, 4. barrtré, 5. úða, 7. rekstur, 10. ryk, 13. rok, 15. tága, 16. tak, 19. ró. Líkar þér vel við mig? Er það allt og sumt?! Heyrðu góði, þú skalt reyna aðeins betur en það! Við erum ástargaukar! Tjitjing! Með því að líta á skóna þína get ég sagt þér hver þú ert! Ahhh, þú ert aðstoðarkennari í strákaskóla heyrnarskertra! Kennir ensku og dönsku! Þú ert hrifinn af fuglum og nan- brauði! Þú spilar á lútu og kýst Sam- fylkinguna! Jæja, ertu alveg kjaft- stopp? Eiginle … Ég horfði í augun á henni og það sagði mér allt! Kexrugluð! Þú hefur náðar- gáfu Jói! Ég finn andar- drátt þinn. ATLOT á göngum skólans Ég finn hjartslátt þinn Fitukirtlarnir þínir eru einstaklega virkir í dag. Byrjandi Meðal- maður Sérfræð- ingur Get ég einhvern veginn þénað peninga? Já. Þú getur þvegið bílinn, reytt arfa í garðinum, sópað innkeyrsluna, eða … Ég var svona meira að hugsa um arf eða eitthvað þannig. Að kremja hnetur, hita þær og kæla svo úr verði einhvers konar hnetu- smjör hefur verið gert í hundruð ára. Fyrsti maðurinn sem fékk einkaleyfi á slíku gumsi var hins vegar Kanada- maðurinn Marcellus Gilmore Edson árið 1884. Fjölmargir fengu svipaðar hugmyndir, og árið 1903 setti lækn- irinn Ambrose Straub saman vél sem kramdi hnetur svo úr varð hnetusmjör. Tilgangur vélarinnar var reyndar að koma prótíni ofan í tannlaust gamalt fólk og doktor Straub gerði sér eflaust ekki í hugarlund hversu stórkostleg hug- mynd þetta bragðgóða mauk var. Í HUNDRAÐ grömmum af hreinu hnetusmjöri eru nefnilega rúm 25 grömm af prótíni og tæp 50 grömm af meinhollri hnetu- fitu. Orðatiltækið um drauminn í dósinni hefur aldrei átt betur við, þar sem ég vinn nú að því að þyngja mig, ekki létta, og smyr því hnetusmjörinu á flest sem ég læt ofan í mig. ÉG HRÆRI hnetusmjöri í hafragraut- inn á morgnana og dýfi banananum ofan í krukkuna fyrir æfingar. Eftir æfingar set ég vænan slurk af hnetu- smjöri ofan í skyrið og í kaffitíma í vik- unni prófaði ég að smyrja hnetusmjöri á kleinu. Það kom reyndar ekki eins vel út og það hljómaði og ekki nærri því eins vel og þegar erlent súkkulaðistykki fékk hnetusmjörsmeðferðina. Á KVÖLDIN hvílir hnetusmjörskrukk- an einmana inni í ísskáp og kallar á mig. Ég reyni að svara ekki kallinu, þar sem heilsuspekingar keppast við að hallmæla því að maður borði fituríkan mat á kvöldin. Ég læt mig hins vegar dreyma um hnetusmjörspopp eða salt- stangir með hnetusmjöri. BANDARÍKJAMENN halda upp á hnetusmjörsdaginn 24. janúar ár hvert. Ég legg til að Íslendingar sláist í hóp með þessum ummálsmiklu frændum okkar og fagni þessu fituríka prótín- mauki sem hnetusmjörið er. Sumir segja að það geri allan mat betri. Ég trúði því þangað til ég dýfði kleinu ofan í krukkuna, en einhver verður undan- tekningin að vera til að sanna regluna. Hnetusmjörsdagurinn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.