Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 12
24. september 2011 LAUGARDAGUR12
Góð hugmynd á skilið að verða að veruleika
Svanni - lánatryggingasjóður kvenna
auglýsir eftir umsóknum um lánatryggingar
Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir en sjóðurinn er í samstarfi við
Landsbankann um lánafyrirgreiðslu.
Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta
sótt um tryggingu. Gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki og að
verkefnið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
Unnt er að sækja um lánatryggingu vegna eftirtalinna þátta:
Stofnkostnaðar •
Markaðskostnaðar•
Vöruþróunar •
Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu vöru/þjónustu.•
Lánatrygging skal ekki vera undir einni milljón króna og að jafnaði skal trygging ekki fara yfir
tíu milljónir króna.
Allar nánari upplýsingar auk umsóknareyðublaðs má finna á heimasíðu verkefnisins www.svanni.is.
Umsóknarfrestur til og með 19. október 2011.
Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins í síma 582 4914.
Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið svanni@svanni.is.
TAÍLAND „Hérna eru heilu hverf-
in þar sem maður sér bara nokk-
ur húsþök standa upp úr vatn-
inu. Þökin eru eina merki þess að
þarna hafi fólk búið fyrir nokkrum
dögum,“ segir Kolbrún Björt Sig-
fúsdóttir, sem hefur dvalist í Taí-
landi í rúman mánuð ásamt manni
sínum, Erlingi Grétari Einarssyni.
Þau fengu vinnu á leikskóla í
borginni Sing buri, þar sem þau
kenna fjögurra til fimm ára börn-
um ensku. Flóðin hafa hins vegar
sett strik í reikninginn, því leik-
skólanum var lokað fyrir tíu
dögum vegna flóða.
„Leikskólinn er núna eins og
eyja með vatn allt í kring. Við
komumst þangað ekki með nokkru
móti nema vaða vatnið,“ segir Kol-
brún. „Við búum hins vegar í mið-
bænum og erum heppin, því her-
inn hefur lagt mikla vinnu í að
halda miðbænum þurrum. Hér er
öll verslun og þjónusta og mikill
íbúafjöldi.“
Meðkennarar þeirra á leikskól-
anum, breskir að þjóðerni, eru
ekki jafn heppnir því þeir þurftu
að yfirgefa heimili sitt og fengu
inni hjá Kolbrúnu og Erlingi.
Hálf önnur milljón manna hefur
nú hrakist að heiman vegna flóð-
anna, sem eru óvenjumikil í ár.
Venjulega hefst flóðatíminn ekki
fyrr en í október og stendur fram
í nóvember. Taílendingar sjá því
fram á erfiða tíma áfram næstu
vikurnar.
„Heimamenn hafa samt tekið
þessu með miklu jafnaðargeði þótt
þeir sjái fram á að vera heimilis-
lausir í tvo mánuði. Fólki er bara
smalað í rútur og flutt til annarra
borga, þar sem það gistir í bráða-
birgðahúsnæði og neyðarskýlum.“
Kolbrún er menntaður leik-
stjóri en Erlingur er fyrrverandi
ritstjóri Mynda mánaðarins. Hún
segir að löngunin til að ferðast og
skoða heiminn hafi dregið þau til
Taílands.
„Við ætlum að vera hér alla vega
þangað til í mars,“ segir Kolbrún.
Hún segir að þau Erlingur séu
strax farin að sakna barnanna, sem
þau voru byrjuð að kynnast.
Flóðin í Taílandi hafa ekki verið
áberandi í heimsfréttunum. Meira
hefur verið sagt frá flóðum í Pak-
istan, sem annað árið í röð hafa
valdið þar gríðarlegu tjóni og raski.
Monsúnflóðin eru árviss við-
burður í sunnan- og suðaustan-
verðri Asíu, þótt tjónið af þeim
verði sjaldan jafn mikið og það
ætlar að verða í ár.
gudsteinn@frettabladid.is
Leikskólinn er eins og eyja
í flóðvatninu í Taílandi
Íslensk hjón hafa ekki komist til vinnu sinnar á leikskóla í Taílandi vegna flóðanna, sem hrakið hafa hálfa
aðra milljón af heimilum sínum. Taílendingar sjá fram á áframhaldandi flóð næstu vikurnar.
BÁTAR BUNDNIR VIÐ FLÓÐVARNAGARÐ Borgin Sing buri er á einu flóðasvæðanna í
Taílandi, þar sem hálf önnur milljón manna hefur þurft að yfirgefa heimili sín.
FRÉTTABLAÐIÐ/KOLBRÚN BJÖRT
FYLGST MEÐ PÁFA Nunna nokkur greip
til sjónauka til að sjá betur Benedikt
páfa, sem er í heimsókn í Þýskalandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVISS, AP Vísindamenn í Sviss segj-
ast ekki hafa séð betur en öreind-
ir, sem þeir gerðu tilraunir með
í CERN-öreindahraðlinum, hafi
farið á 299.798 kílómetra hraða á
sekúndu.
Þetta er örlítið meiri hraði en
ljóshraðinn, sem er 299.792 kíló-
metrar á sekúndu. Þar með virð-
ist hin alþekkta kenning Alberts
Einstein um að ekkert geti farið
hraðar en ljósið vera fallin.
„Flestir hafa það á tilfinning-
unni að þetta geti ekki verið rétt,
þetta geti ekki verið raunveru-
legt,“ sagði James Gilles, talsmað-
ur CERN, og hafði allan fyrirvara
á niðurstöðum rannsóknanna.
Reynist þær hins vegar rétt-
ar munu þær kollvarpa mörgum
helstu grundvallarkenningum eðl-
isfræðinnar.
„Okkur þætti það frábært ef
þetta er rétt, því okkur finnst svo
gaman að öllu sem hreyfir við
undir stöðum þess sem við trúum
á,“ sagði Brian Greene, eðlisfræð-
ingur við Columbia-háskólann í
Bandaríkjunum. „Út á það gengur
líf okkar.“ - gb
Kenning Einsteins um ljóshraðann virðist fallin:
Öreindir fóru örlítið
hraðar en ljósið
ÖREINDAHRAÐALLINN Í CERN Þarna þjóta öreindirnar hring eftir hring á ofsahraða,
vísindamönnum stundum til mestu furðu. NORDICPHOTOS/AFP
VÍSINDI Ráðgátan um hvarf risa-
eðlanna fyrir um 65 milljónum
ára er enn ekki að fullu leyst.
Vísindamenn Bandarísku geim-
vísindastofnunarinnar (NASA)
hafa nefnilega útilokað að loft-
steinninn sem talið er hafa lent
á jörðinni og grandað risaeðlun-
um hafi verið hluti af heljarstóru
smástirni, Baptistina að nafni.
Kenningar voru á lofti um að
Baptistina hefði lent í árekstri í
smástirnabeltinu milli Mars og
Júpíters og brot af því, tíu kíló-
metrar í þvermál, hefði þotið út í
geim og lent á jörðinni með fyrr-
greindum afleiðingum.
Nýjustu niðurstöður NASA,
eftir að hafa rannsakað stærð
og endurkast smástirnanna, gefa
hins vegar til kynna að fyrr-
nefndur árekstur og klofningur
Baptistina hafi átt sér stað mun
síðar en áður var haldið, fyrir
um 80 milljónum ára, vegna þess
að hæpið er að loftsteinninn hafi
verið aðeins 15 milljónir ára á leið
til jarðar.
Leitin að uppruna hamfaraloft-
steinsins stendur því enn yfir og
endalok risaeðlanna eru enn ekki
að fullu útskýrð. - þj
Ein helsta ráðgáta jarðarsögunnar er enn þá óleyst:
Baptistina drap ekki risaeðlunar
MOLNAÐI Í ÁREKSTRI Svona sjá vísinda-
menn NASA fyrir sér að smástirni
hafi brotnað upp og hluti þess lent á
jörðu. Nýjustu rannsóknir hafa útilokað
Baptistina-smástirnið sem uppruna loft-
steinsins. MYND/NASA
DANMÖRK Aldrei hafa eins mörg
dönsk börn verið getin með glasa-
frjóvgun líkt og á síðasta ári
þegar níu prósent fæddra barna
voru getin á þann hátt.
Í frétt Berlingske kemur einnig
fram að fæðingartíðni í Dan-
mörku á fyrri hluta ársins er sú
lægsta sem sést hefur í 24 ár.
Að sögn frjósemissérfræð-
ings eru málin af sama meiði en
orsakir lægri fæðingartíðni eru
bæði menningarlegar og líffræði-
legar.
Stór hluti karlmanna þar í landi
er með of lágt sæðishlutfall, og
þar á móti kemur að konur bíða
lengur með að eignast börn, fram
yfir frjósamasta æviskeiðið. - þj
Frjósemi í Danmörku:
Tíunda hvert
barn getið í glasi
BARNALÁN Danir fá í auknum mæli
hjálp við að geta börn. Myndin tengist
fréttinni ekki beint. NORDICPHOTOS/GETTY
LÖGREGLUMÁL Tveir ungir menn
voru handteknir á Norðurlandi á
fimmtudag eftir langferð á stoln-
um bíl.
Bílnum stálu þeir í Kópavogi.
Þeir komu við á bensínstöð þar
sem þeir fylltu á bílinn og stungu
af án þess að borga og héldu í kjöl-
farið norður í land. Þegar norður
var komið stöðvaði lögregla þá,
áttaði sig strax á því hvernig í
pottinn var búið, handtók þá og
sendi suður aftur. Þeir gistu í
fangageymslu lögreglunnar við
Hverfisgötu. - sh
Tveir ungir menn handteknir:
Óku norður á
stolnum bíl