Fréttablaðið - 24.09.2011, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 24. september 2011 13
NEYTENDAMÁL IKEA biður við-
skiptavini sem eiga ELGÅ skáp
með FENSTAD rennihurð með
spegli frá framleiðanda nr. 12650
að hafa samband við þjónustuver
verslunarinnar til þess að fá nýja
hurð.
Borist hafa tilkynningar um að
spegillinn frá framleiðanda með
ofangreindu númeri geti losnað
af hurðinni og brotnað. Vitað er
um eitt tilvik þar sem viðskipta-
vinur skar sig.
Númer framleiðandans er
prentað neðst á bakhlið hurð-
arinnar, á sama stað og stendur
„Made in Sweden“. - ibs
Viðskiptavinur skar sig:
Rennihurð frá
IKEA innkölluð
SJÁVARÚTVEGUR Íslenskar útgerðir
gætu sparað stórfé í eldsneytis- og
viðhaldskostnað með því að smíða
skip sín úr trefjaplasti í stað stáls.
Þetta segir Andri Þór Gunnarsson
hjá fyrirtækinu Infuse, sem ásamt
fyrirtækinu Ausus framleiðir efni
í trefjabáta. Fyrirtækin eru meðal
þeirra sem kynna hugmyndir
sínar á Sjávarútvegssýningunni í
Smáranum um þessar mundir.
„Sjávarútvegurinn mundi hagn-
ast mikið á því að fara að byggja
stóru skipin alfarið úr trefjaplasti,“
segir Andri. „Það hefur sýnt sig í
ótal rannsóknum að þau eru miklu
eyðslugrennri, og þess vegna miklu
betri fyrir umhverfið, og tærast
náttúrulega ekki neitt.“ Þá séu þau
betur einangruð sem geri það að
verkum að þurrara og notalegra er
um borð. Reynsla af dönsku trefja-
plastsherskipi sýni að viðhalds-
kostnaður sé 80 prósentum lægri.
Andri segir að kostnaðurinn við
smíðina sé um fimmtungi hærri
en það borgi sig upp á þremur til
fjórum árum.
Andri nefnir dæmi af Íslending-
um sem hafi skipt fjögurra tonna
stýrishúsi á bát sínum út fyrir
annað úr trefjaplasti sem er þrjátíu
fermetrum stærra en vó innan við
1.700 kíló. Þá sé fyrirtækið Seigla
á Akureyri að byggja heilt skip úr
trefjaplasti.
Infuse og Ausus eru einnig með
til kynningar á sýningunni fjöl-
nota bát með einingum í skutnum
sem hægt er að skipta út og breyta
þannig bátnum á stundarfjórð-
ungi, til dæmis úr rækjuveiðibát í
farþegaferju eða rannsóknarskip.
- sh
Íslensk fyrirtæki vinna saman að þróun efnis í trefjaplastskip og kynna afurðina á Sjávarútvegssýningunni:
Hægt að spara mikið með skipum úr trefjaplasti
STÓR SÝNING Um 500 fyrirtæki frá
34 löndum taka þátt í sýningunni í
Smáranum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Allar nánari upplýsingar á www. vita.is/golflif
Golf, iðandi mannlíf
og framandi menning
Verð frá 449.500 kr.
á mann í tvíbýli.
Magnaður heildarpakki
Einstaklega mikið innifalið!
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
4. - 21. febrúar - 17 nætur ı 4. - 29. febrúar - 25 nætur
Draumastaðurinn þinn í vetur
Golf í Mexíkó
– Mazatlan á Kyrrahafsströnd
DANMÖRK Af þingmönnum á nýja
danska þinginu eru 57 prósent
með háskólamenntun. Af þeim
sem kjörnir voru á þing í Dan-
mörku árið 2007 voru hins vegar
40 prósent með háskólamenntun.
Þeir sem hafa lesið eða lokið
námi í stjórnmálafræði eru nær
20 prósent nýrra þingmanna.
Faglærðum á þingi hefur fækk-
að frá kosningunum 2007 úr 18
prósentum í 9 prósent. Þetta hlut-
fall þykir ekki sýna þverskurð
af samfélaginu þar sem háskóla-
menntaðir eru 35 prósent. - ibs
Nýkjörið þing í Danmörku:
Meirihlutinn
háskólagenginn
DANMÖRK Síðastliðið sumar á
vegum Danmerkur var með allra
besta móti.
Í frétt Politiken kemur fram að
í ágúst létust fimmtán í umferð-
inni, sem er það lægsta sem sést
hefur. Það sama gilti um júní og
júlí, en ein skýringin á bak við
þessa jákvæðu þróun er talin
vera minni umferðarhraði.
Mælingar sýna að meðalhraði
innanbæjar hefur minnkað úr
53,9 kílómetrum á klukkustund
árið 2002 niður í 50,9, og á þjóð-
vegum, þar sem hámarkshrað-
inn er 110, hefur meðalhraðinn
á sama tíma fallið úr tæpum 120
niður í 115. - þj
Umferðaröryggi í Danmörku:
Minni hraði og
færri banaslys
ÚR UMFERÐINNI Banaslysum hefur
fækkað í Danmörku. Það er rakið til
minni hraða á götum landsins.
NORDICPHOTOS/AFP
Sat fastur í tré
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
kom ungum dreng til hjálpar í gær
þar sem hann sat fastur uppi í tré á
leiksvæði við grunnskóla. Drengurinn
átti ekki í vandræðum með að
komast upp, en þorði ekki aftur niður.
Körfubíll var kallaður á svæðið og
drengurinn komst niður án vandræða
og heill á húfi.
Fimm í vímu undir stýri
Fimm ökumenn voru teknir fyrir
ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuð-
borgarsvæðinu í fyrradag og fyrrinótt.
Þetta voru fjórar konur á aldrinum 22
til 49 ára og einn karlmaður, 21 árs.
Kviknaði í potti á eldavél
Eldur kviknaði í potti sem skilinn
hafði verið eftir á eldavél í húsi við
Skipasund í gær. Slökkviliðinu tókst
að slökkva eldinn áður en hann náði
að breiðast út um íbúðina.
LÖGREGLUFRÉTTIR