Fréttablaðið - 24.09.2011, Page 32
24. september 2011 LAUGARDAGUR32
OPIÐ
Virka daga frá kl. 10-18
Lau frá kl. 11-17
Ótrúlegt
verð
90x200 39.000,- 65.900,-
100x200 42.000,- 69.900,-
120x200 48.000,- 75.900,-
140x200 53.000,- 79.900,-
160x200 67.900,- 99.900,-
180x200 73.900,- 109.900,-
Gegnheilar
viðarlappir
100%
bómullaráklæði
Svæðaskipt
Góðar
kantstyrkingar
Sterkur
botn
S
tundum segi ég í gríni að ég hafi
vitað þetta frá því sonur minn
var í móðurkviði. Frá upphafi
sáum við foreldrarnir að þetta
væri kraftmikill ungur maður
sem við höfðum fengið í hendurn-
ar. Hann fór eiginlega aldrei að labba – hljóp
bara af stað og hefur verið á hlaupum síðan.
Það er aldrei lognmolla í kringum hann.“
Þannig lýsir Sigríður Stephensen Páls-
dóttir syni sínum, sem var greindur með
ofvirkni og athyglisbrest á fjórða aldursári.
Í dag er hann sjö ára, opinn, kátur og lífs-
glaður drengur. Hann á þó við ýmsa erfið-
leika að etja vegna röskunar sinnar.
Full vinna fram á kvöld
Sigríður býr ein með syni sínum. Hún starf-
ar sem félagsráðgjafi á daginn en kvöldin
eru alla jafna þéttskipulögð í kringum son-
inn. Í uppeldinu notar hún mjög ákveðn-
ar hegðunarmótandi aðferðir sem byggja
meðal annars á umbunarkerfum. „Atgang-
ur daglegs lífs tekur heilmikið á. Það er til
dæmis ströggl á hverjum einasta degi að
láta hann læra heima. Hann er á lyfjum og
þau eru hætt að virka klukkan 5. Þá er mjög
erfitt að fá hann til að setjast niður og ein-
beita sér.“
Hún segir alla daga þurfa að vera mjög
vel skipulagða, eigi honum að líða vel. „Við
reynum að gera hlutina eins á hverjum degi.
Öll óvissa er honum erfið. Ef hann veit með
miklum fyrirvara að við séum að fara í
afmæli eða ferðalag fær hann þráhyggju
fyrir því, verður yfirspenntur, líður illa og
fer jafnvel að gráta. Sumarfrí, jólafrí og
vetrarfrí geta verið mjög krefjandi tímar
því þá fer þessi venjulega rútína úr skorð-
um.“
Mikilvægi stuðningsins
Sigríður hefur verið virk í ADHD samtök-
unum og situr þar í stjórn. Hún segir sam-
tökin hafa hjálpað sér mikið. „Þegar þú ert
að ganga í gegnum greiningu á barninu þínu
er stuðningur frá öðrum foreldrum alveg
ómetanlegur. Auðvitað fer fjarri að öll börn
með ADHD séu eins. En það eru ákveðin
einkenni sem allir finna fyrir. Það er gott
að heyra frá öðrum foreldrum hvernig þeir
takast á við hlutina. Ég á góða fjölskyldu
og vini sem hafa stutt okkur en þeir skilja
kannski ekki alltaf hvað við erum að ganga
í gegnum. Að geta deilt reynslu sinni, veitt
öðrum stuðning og fengið stuðning á þess-
um vettvangi er alveg ómetanlegt,“ segir
Sigríður.
Færri úrræði en í fyrra
Á vettvangi ADHD samtakanna eru baráttu-
málin mörg. Eitt þeirra mikilvægustu er að
börn með ADHD fái viðeigandi úrræði í skól-
anum, svo þau geti blómstrað þar. Mörg hver
eru þau uppfinningasöm, skapandi og frjó og
ef vel ætti að vera myndu þau njóta sín vel
í skóla með þá eiginleika. Raunin er hins
vegar sú að oft líður börnum með ADHD
illa í skóla og eiga erfitt með að mæta þeim
kröfum sem þar eru. „Ég finn fyrir miklu
úrræðaleysi og peningaleysi í kerfinu.
Sonur minn fær til að mynda ekki sérkenn-
■ STAÐREYNDIR UM ADHD
Augngotur frá ókunnugum
Sonur Sigríðar Stephensen Pálsdóttur er opinn, kátur og lífsglaður sjö ára drengur. Samt á hann oft erfitt með að mæta kröf-
um umhverfisins, þar sem hann er ofvirkur með athyglisbrest. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir ræddi við þessa kraftmiklu ein-
stæðu móður um félagslega einangrun fjölskyldna barna með ADHD, úrræðaleysi skólakerfisins og aðrar áskoranir daglegs lífs.
MEÐ LÍFIÐ Í FÖSTUM SKORÐUM Sigríður og sonur hennar fylgja þéttri rútínu á hverjum einasta degi. Þannig
gengur lífið best fyrir sig en öll óvissa reynist honum erfið, eins og algengt er hjá börnum með ADHD.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á morgun, sunnudag, lýkur samevrópskri ADHD vit-
undarviku, sem íslensku ADHD samtökin hafa tekið
þátt í með margvíslegum hætti. Markmiðið var að auka
þekkingu almennings á ADHD, eyða fordómum, auka
skilning og efla stuðning við fólk með ADHD.
Í tilefni vikunnar létu samtökin útbúa fyrir sig endur-
skinsmerki með teikningum Hugleiks Dags-
sonar sem eru til sölu í verslunum Krónunnar
og á heimasíðu samtakanna www.adhd.is. Í
dag, laugardag, verða þau jafnframt til sölu í
Smáralind og Kringlunni.
Allur ágóði af sölu merkjanna rennur
óskiptur til ADHD samtakanna og fer í að
efla starfsemi og þjónustu við einstaklinga
með ADHD.
■ ENDURSKINSMERKI HUGLEIKS DAGSSONAR
ara núna í vetur, sem hann hafði í fyrra. Sú
sérkennsla fólst í því að vinna með félags-
lega færni hans. Hann þarf á því að halda,
því hann á erfitt með hana. Hann vill vera
með í hópnum og taka þátt en hann nær því
ekki sjálfur.“
Það hafi því verið slæmt að missa sérkenn-
arann. Hún áfellist þó ekki stjórnendur skól-
ans. „Ég er mjög ánægð með skólann hans.
Hann er í litlum og góðum skóla og ég á í
góðu samstarfi við bæði kennara og skóla-
stjórnendur. Mér finnst þeir eftir bestu getu
sýna okkur skilning en ég finn fyrir því að
þau myndu vilja gera meira. Þau eru að gera
sitt besta en það er ekki nóg. Börn eins og
hann, sem eiga erfitt með að falla inn í þetta
innrammaða skólasamfélag, þurfa meira.“
Fordómar og fáfræði
Fjöldi rannsókna sýnir að ofvirkni og
athyglis brestur koma til vegna taugaröskun-
ar. Þrátt fyrir það er enn algengt að börn með
ADHD séu dæmd óþæg og foreldrar þeirra
slæmir uppalendur. Það getur eðlilega reynt
mjög á að finna fyrir slíku viðmóti. Markmið-
ið með ADHD vikunni sem nú stendur yfir er
meðal annars að opna umræðuna og fræða
fólk betur um röskunina. „Við viljum að fólk
fái sem besta innsýn í hvað ADHD er, því
við finnum fyrir fordómum sem byggjast ein-
faldlega á fáfræði. Börn með ADHD eru ekki
óþekk. Þau eru að glíma við víðtækan vanda
og þurfa aðstoðar og skilnings við.“
Sigríður segir það geta verið erfitt að
heyra vanhugsaðar athugasemdir um barn-
ið sitt og fá óblíðar augngotur frá ókunnugu
fólki, eins og stundum gerist. „Ég hef alveg
lent í því að sonur minn hafi tekið lítið brjál-
æðiskast í búðinni, af því hann mátti ekki fá
eitthvað sem hann langaði í. Þá gefur fólk
mér auga og mig langar helst að sökkva ofan
í gólfið! Það stendur ekki skrifað utan á syni
mínum að hann sé með ADHD og því er hegð-
un hans og viðbrögð mjög oft misskilin af
þeim sem ekki þekkja til þessarar röskunar.“
➜ Athyglisbrestur og ofvirkni, eða ADHD, er
taugaþroskaröskun sem getur haft víðtæk
áhrif á daglegt líf, nám og félagslega aðlög-
un.
➜ Athyglisbrestur og ofvirkni eru algerlega
óháð greind.
➜ Fimm til tíu af hundrað börnum og ungling-
um glíma við ofvirkni. Það þýðir að tvö til
þrjú börn með ADHD gætu verið í hverjum
meðalstórum skólabekk.
➜ Í hópi barna með ADHD eru þrír drengir á
móti hverri stúlku. Nýjar rannsóknir benda
þó til að fleiri stúlkur séu með ADHD en
þær komi síður til greiningar.
➜ 4,4 prósent fullorðinna eru með ADHD
samkvæmt nýjum bandarískum rann-
sóknum.
➜ Orsakir ADHD eru líffræðilegar og benda
rannsóknir til að orsaka sé að leita í truflun
í boðefnakerfi heila á stöðum sem gegna
mikilvægu hlutverki í stjórn hegðunar.
➜ Talið er að erfðir útskýri 75 til 95 prósent
ADHD-einkenna.
➜ 50 til 70 prósent þeirra sem greinast með
ADHD í bernsku eru enn með einkenni á
fullorðinsárum.
Tekið af vef ADHD samtakanna, www.adhd.is, þar sem er
að finna meiri fróðleik um ofvirkni og athyglisbrest.