Fréttablaðið - 24.09.2011, Side 49
Actavis Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Fjölbreytt störf í boði
hjá Actavis á Íslandi
Nánari upplýsingar veitir Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is.
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 2. október nk.
Sérfræðingur á fjármálasviði Actavis hf.
Starfið tilheyrir Business Improvement sem er deild á fjármálasviði Actavis hf. Deildin vinnur að umbótaverkefnum í fyrirtækinu auk greininga og
skýrslugerðar. Starfið felur í sér mikil samskipti við aðrar deildir Actavis hf. Um er að ræða tímabundna ráðningu í ár.
Helstu verkefni:
Umsjón með útreikningum á kostnaðarverðum og utanumhald
um verðskrá
Gerð og viðhald skýrslna fyrir hinar ýmsu deildir fyrirtækisins
Þátttaka í árlegri áætlanagerð
Verkefnastjóri breytingaumsókna
Starfið tilheyrir deildinni breytingum og tæknisamningum sem er á skráningarsviði. Hlutverk deildarinnar er tvíþætt, annars vegar sér deildin um hluta
tæknisamningagerðar við alla viðskiptavini Actavis og hins vegar sér deildin um að taka saman breytingapakka og tilkynna viðskiptavinum um fyrirhugaðar
breytingar á lyfjum. Verkefnastjóri er í miklum samskiptum við erlenda viðskiptavini, lyfjayfirvöld og aðrar deildir/dótturfyrirtæki Actavis.
Um er að ræða tímabundna ráðningu í eitt ár.
Helstu verkefni:
Skipulagning breytingaumsókna er varða hinar ýmsu breytingar
sem gerðar eru á lyfjum sem fyrirtækið þróar og framleiðir
Uppfærsla skráningagagna í samræmi við breytingaumsóknir
Upplýsinga- og ráðgjöf er varða breytingaumsóknir
Verkefnastjóri á sviði upplýsingatækni
Starfið tilheyrir Global IT hjá Actavis Group sem sér um upplýsingatæknimál samstæðunnar. Starfið felur í sér að vera til stuðnings hvað varðar
upplýsingatæknimál Medis, eins af dótturfyrirtækjum Actavis Group, sem annast sölu á lyfjum og lyfjahugviti fyrir samstæðuna til annarra lyfjafyrirtækja
sem selja lyfin undir eigin vörumerkjum. Medis tók SAP viðskiptakerfið í notkun á árinu, en fyrirhugað er einnig að innleiða fleiri kerfi og þróa SAP
kerfið áfram.
Helstu verkefni:
Aðstoð við áframhaldandi þróun á SAP lausnum Medis
Aðkoma að innleiðingu á Infor lausn fyrir hönd Medis
Minniháttar aðlaganir á SAP og notendaþjónusta að einhverju marki
Skilgreining og stýring vinnu við áframhaldandi þróun SAP
Aðkoma að vinnu við skilgreiningu á Master Data Management
og tryggja að þarfir Medis séu uppfylltar
Vinna með öðrum aðilum innan upplýsingatæknisviðs Actavis Group,
bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi, að uppbyggingu á
upplýsingakerfum Medis
Starfsmaður í tæknideild
Tæknideild er hluti af starfsemi Actavis hf. og sér um viðhald og eftirlit með tækjabúnaði í verksmiðju og rannsóknarstofu fyrirtækisins, sem staðsett er í
Hafnarfirði. Unnið er eftir skriflegum leiðbeiningum og öll viðhaldsvinna er skráð í þjónustuskýrslur/viðhaldsforrit. Um er að ræða vaktavinnu á tvískiptum
vöktum, auk bakvakta.
Helstu verkefni:
Fyrirbyggjandi viðhald, viðgerðir, eftirlit og breytingar
á tækjabúnaði framleiðslu- og rannsóknarsviðs
Skiptingar á milli vörutegunda og uppstart á pökkunarlínum
Þátttaka í uppsetningu á fyrirbyggjandi viðhaldi og nýjum tækjabúnaði
Þátttaka í gildingarvinnu og kvörðunum á tækjabúnaði Actavis
Við leitum að einstaklingi:
með háskólamenntun í verkfræði eða sambærilega menntun
með góða kunnáttu í Excel og þekking á SQL er æskileg
sem sýnir frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
sem býr yfir góðri samskiptahæfni og er úrlausnargóður
Við leitum að einstaklingi:
með háskólamenntun í lyfjafræði
sem er nákvæmur, agaður og sjálfstæður í vinnubrögðum
með mjög góða enskukunnáttu
með góða almenna tölvukunnáttu
Við leitum að einstaklingi:
með háskólamenntun í tölvunarfræði, upplýsingatæknikerfum
eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi
með 3-5 ára reynslu í að vinna við SAP
með reynslu af innleiðingu og/eða stjórnun á ERP kerfum
sem býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum og er góður í hópi
sem sýnir frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
sem er skipulagður og lausnamiðaður
Við leitum að einstaklingi:
með vélfræðimenntun eða sambærilega menntun
með reynslu af viðgerðum á vélbúnaði, stýringum og rafbúnaði
sem býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum
sem sýnir nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
með góða ensku- og tölvukunnáttu