Fréttablaðið - 24.09.2011, Síða 58
24. september 2011 LAUGARDAGUR14
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Fram félagshús – frágangur innanhúss og utan
að hluta.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr. í
þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14,
1. hæð.
Opnun tilboða: 5. október 2011 kl. 14:00, í Borgar-
túni 12-14. Tilboðum skal skilað í þjónustuver.
12707
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod.
F.h. Framkvæmda- og eignasviðs
Reykjavíkurborgar:
Laugardalslaug: Framkvæmdir við yfirborð
laugarsvæðis og endurnýjun sjávarpotts
Útboðsgögn á geisladisk verða seld á kr. 3.000,
frá kl. 9:00 þriðjudaginn 27. september 2011 í
þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14,
1. hæð.
Opnun tilboða þriðjudaginn 11. október 2011
kl. 10:00, í Borgartúni 12-14.
Tilboðum skal skilað í þjónustuver.
12704
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod.
Útboð á ræstingu
Leikskólar og Bókasafn Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í ræstingu á
fjórum leikskólum og Bókasafni bæjarins.
Helstu magntölur eru:
Bókasafn m² 1063
Vallarsel m² 819,8
Teigasel m² 429,9
Akrasel m² 1055,9
Garðasel m² 478,4
Samtals m² 3847
Bjóðendur geta boðið í eina eða fleiri stofnanir kjósi
þeir það.
Útboðsgögn verða afhent á DC-diski í þjónustuveri
Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18 f.o.m mánu-
deginum 26. september 2011.
Tilboð verða opnuð á skrifstofum Akraneskaupstaðar
3. hæð föstudaginn 14. október 2011 kl: 11:00
Nánari upplýsingar veitir Framkvæmdastofa
Akraneskaupstaðar.
Styrkir úr tónlistarsjóði
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir
umsóknum um styrki úr tónlistarsjóði, samkvæmt
lögum um tónlistarsjóð nr. 76/2004 sbr. og reglum
nr. 125/2005, til verkefna sem efnt verður til á
tímabilinu janúar til ágúst 2012. Næst verður auglýst
eftir umsóknum í apríl 2012 vegna verkefna á síðari
hluta árs 2012.
Hlutverk tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og
stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og
tónsköpun þeirra. Sjóðurinn skiptist í tvær deildir,
tónlistardeild og markaðs- og kynningardeild.
Minnt er á að styrkþegar úr fyrri úthlutunum þurfa
að hafa skilað inn greinargerð vegna þeirra verkefna
áður en nýjar umsóknir verða teknar til umfjöllunar.
Ítarlegri auglýsingu, upplýsingar um umsóknarferli
og umsóknareyðublöð er að finna á vef ráðuneytisins
www.menntamálaráðuneyti.is. Umsóknum skal
skila á þar til gerðum eyðublöðum og senda á
póstfangið: Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
tónlistarsjóður, Sölvhólsgötu 4, 150, Reykjavík.
Umsóknir skulu vera í þríriti og öll eintök undirrituð.
Ekki er tekið við umsóknum rafrænt.
Umsóknarfrestur rennur út þriðjudaginn
1. nóvember 2011.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
23. september 2011.
menntamálaráðuneyti.is
ÚTBOÐ ÚTBOÐ
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Landhelgisgæslu Íslands,
óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við breytingar á rafkerfum
bygginga innan öryggissvæðis Keflavíkurflug vallar. Í þessum
áfanga fellst verkið í að breyta raflögnum í tilgreindum
bygg ingum, bílgeymslu og geymslum og laga þær að gildandi
reglugerð um raforkuvirki og ÍST: 200:2006 – Raflagnir
bygginga. Skipta skal um rafbúnað, innlagnarefni, tengla,
rofa, lampa, setja upp og tengja nýjar töflur og breyta
lömpum. Sérhver bygging er um 900 m² að stærð með alls 16
misstórum íbúðum á tveimur hæðum. Geymslur eru alls um
300 m² að stærð á einni hæð. Byggingar þessar eru skammt
suður af gömlu flugstöðinni við sama veg að nafni Þjóðbraut.
Fara þarf inn um vaktað hlið til þess að komast á verkstað og
skulu starfsmenn verktaka fá aðgangsheimild inn á vinnu-
svæðið og fylgja öryggiskröfum Landhelgisgæslu Íslands og
þeim reglum sem gilda á öryggis- og varnarsvæðum.
Helstu magntölur eru:
Aftengja og fjarlægja:
Aðaltöflu og rafbúnað í greinatöflum 23 stk
Rofa og tengla 1.450 stk
Ljós, lampa, rofa, spenna og reykskynjara 610 stk
Dælur, þakviftur og heimilistæki 124 stk
Nýr búnaður, uppsetning og breytingar :
Aðaltafla og heimtaug 4 stk
Greinatöflur 18 stk
Pípur 460 metrar
Tenglar og rofar 1.400 stk
Strengir 800 metrar
Ídráttavír 2.600 metrar
Dælur og þakviftur 12 stk
Lampar og reykskynjarar 480 stk.
Breyta lömpum 146 stk.
Vettvangsskoðun verður haldin 3. október 2011, kl. 10.00 til
11.00 að viðstöddum fulltrúa verkkaupa.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 10. febrúar 2012.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500
hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með
þriðjudeginum 27. september 2011.
Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum 11. október 2011,
kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
ENDURBÆTUR Á RAFLÖGNUM
Í BYGGINGUM 627, 628, 629 OG 630
OG GEYMSLUM 610, 611 OG 612
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
ÚTBOÐ NR. 15125
• TUNGUMÁL: spænska, enska, ítalska, þýska, hollenska,
danska, norska o.fl.
• ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
Islandzki dla audzoziemców
Icelandic as a second language
• HANDVERK OG LISTIR: Blýantsteikning, olíumálun,
skartgripagerð, glerbræðsla o.fl.
• HANNYRÐIR: Leðurvinna, fatasuamur, hekl o.fl.
• HEILSA – ÚTLIT OG HREYSTI: Bætiefni, förðun, hár og
fegurð o.fl.
• TÖLVUR OG REKSTUR: Almennt tölvunám, facebook, excel
o.fl.
• TÓNLIST: Gítar, bassi, trommur, blokkflauta, hljómborð o.fl.
• ÝMIS NÁMSKEIÐ: Ætisveppir, spádómar, salsa, samskipti,
ljósmyndun, bókhald o.fl.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 585-5860
og á netfanginu nhms@hafnarfjordur.is
Ný námskrá aðgengileg á netinu: www.nhms.is
Spennandi og skemmtileg
námskeið að hefjast