Fréttablaðið - 24.09.2011, Blaðsíða 90
24. september 2011 LAUGARDAGUR58
STÚLKUR GREINAST YFIRLEITT
5 ÁRUM SEINNA EN STRÁKAR
SELUR ADHD ENDURSKINSMERKIN
VITUNDARVIKA 18. - 25. SEPTEMBER
ja takkATHYGLI
Sýningin Þá og nú var opnuð í Listasafni Íslands fimmtu-
daginn síðastliðinn en sýningin var sett upp í tilefni af
útgáfu bókarinnar Íslensk listasaga, frá síðari hluta 19.
aldar til upphafs 21. aldar. Fjölmenni sótti sýninguna sem
innihélt mörg frægustu verk íslenskrar listasögu.
Fjölmenni naut
íslenskrar listar
MYNDARLEG FJÖLSKYLDA Svandís Svavarsdóttir, mennta- og menningarmála-
ráðherra, Tumi Torfason og Svavar Gestsson voru á meðal gesta. Svandís opnaði
sýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
VEL KLÆDDIR HERRAMENN Ármann
Reynisson vinjettuhöfundur og Eiríkur
Smith listamaður sóttu sýninguna.
SÆL Ásdís Gissurardóttir og Ragnar Th.
Sigurðsson ljósmyndari voru brosandi
og sæl í Listasafninu.
LISTHNEIGÐ HJÓN Hjónin Ebba Margrét
Magnúsdóttir læknir og Hjörtur Magni
Jóhannsson prestur nutu listarinnar
saman.
ÁHUGASÖM Erla María Gunnarsdóttir
og Þorgeir Baldursson, oftast kenndur
við Odda, voru á meðal þeirra er sóttu
opnunina.
Ein vinsælasta fyrirsætan á tísku-
vikunni í New York var Andrei
Pejic, tvítugur strákur frá Bosníu.
Pejic gefur stallsystrum sínum í
fyrirsætubransanum ekkert eftir
þrátt fyrir að vera af hinu kyninu
og þykir bera dömufatnað með
sóma.
„Ég vil ekki vera stelpa en
mér finnst gaman að klæða mig
í stelpuföt. Auk þess fæ ég kven-
mannslaun, en þær fá miklu betur
borgað en við strákarnir,“ segir
Pejic í viðtali við ítalska tímaritið
Grazia en í sumar sat Pejic í 98.
sæti lista tímaritsins FHM yfir
kynþokkafyllstu konur heims.
Það var franski fatahönnuður-
inn Jean Paul Gaultier sem var
fyrstur til að nota Pejic til að sýna
dömufatnað á sýningu en hönn-
uðurinn er þekktur fyrir að ögra
sífellt hinum hefðbundnu kynja-
hlutverkum.
Tvítugur strákur frá Bosníu
slær í gegn sem kvenfyrirsæta
FÆ BETRI LAUN Andrei Pejic er sáttur við
að sýna kvenfatnað á tískuvikunum því
þá fær hann hærri laun.
NORDICPHOTOS/GETTY
Á TÍSKUPALLINUM
Pejic vekur athygli
á tískupöllunum
en hér er hann
að sýna vetrar-
tísku Jean Paul
Gaultier.