Faxi

Árgangur

Faxi - 01.07.1943, Síða 13

Faxi - 01.07.1943, Síða 13
F A X I 13 £f lnisið brennur. Iivnð kostar nð byggja l>«ð upp »a .■ v;>. y CONQUST slökkvitæki, eru nauðsyn- leg og sjálf- sögð öryggis- ráðstöfun í hverju húsi og á hverjum vinnustað. CONQUST slökkvitæki hafa nú þeg- ar bjargað frá yfirvof- andi eldsvoða hér í Kefla- vík. CONQUST slökkvitæki. eru ódýr og auðveld í notk- un og auk þess viðurkennd af Brunabótafélagi íslands, og veitir það afslátt af ið- gjaldi fyrir tækin. C O N Q U S T slökkvitæki kosta kr. 135,00, og auka- hleðslur kr. 12,00. Forðist eldinn, hann getur gert yður öreiga á svip- stundu. Umboð fyrir Suðurnes HA. Vatnsnes SÍMI 69. SKRÍTLUR. Ritstjóri nýs blaðs kom inn í prent- smiðjuna, þar sem verið var að setja blaðið. Honum var þá sagt, að efnið væri of lítið. Það kæmi til með að vanta hálfsíðugrein. Hér var úr vöndu að ráða fyrir hinn lítt reynda, en á- hugasama blaðamann. Öll brögð, bæði leyfileg og óleyfileg, hafði hann notað til þess að viða að sér efni, t. d. var forsíðugrein þessa blaðs hálf vegis hnuplað úr nýútkomnu tímariti, og nú átti blaðið að koma fyrir almennings- sjónir næsta dag! Þarna lá fyrir honum þungskilin gáta, sem hann þó fann, að varð að ráða, til þess að bjarga sæmd sinni og blaðsins, — og eins og himinsend kom lausnin: — Smáletursgreinar blaðsins skyldi prenta með stóru letri, við það minnkaði hið auða rúm. Þetta var nú gert og þó vantaði enn sem svaraði einum dálki. Nú voru góð ráð dýr! En eftir nokkur hellabrot og vangaveltur settist hinn aðþrengdi píslarvottur blaðamennskunnar niður og skrifaði stórletrað greinarkorn þess efnis, að sökum þrengsla í blaðinu, yrði fjöldi greina, sem því hefði borizt, að bíða, og væru höfundar þeirra beðnir að virða það til betri vegar. Greinarkorn þetta nægði til þess að fylla auða dálkinn og nú var gátan ráðin, blaðinu borgið og á morgun mundi fólkið sjá, að hér var á ferðlnni merkilegt blað, sem fleiri vildu skrifa í en hægt væri að sinna. Þessi kænlega lausn á erfiðu vanda- máli er nú fræg orðin og á hvers manns vörum, og má vænta þess, að höfundi hennar verði sýndur sómavott- ur af stallbræðrum hans fyrir þessa snjöllu og frumlegu uppfynding á sviði blaðamennskunnar. ÚR FLÆÐARMÁLINU (Framh.) Sýslunefnd Gullbringusýslu hélt aðalfund sinn dagana 31. maí og 1. júní s. 1. í árslok 1942 voru eignir sýslunnar kr. 53.236,87, en skuldir kr. 14.550,00. Þessar samþykkir voru gerðar helzt- ar. — Styrkveitingar: Til Búnaðar- sambands Kjalamessþings kr. 550,00; til reksturs sundlaugarinnar í Kefla- vík kr. 2000,00, til unglingaskóla í Keflavík kr. 450,00, í Sandgerði kr. 350,00, í Gerðum kr. 350,00, tU Nýja stúdentagarðsins kr. 5000,00 (1942 voru veittar kr. 5000,00), til Varaósvita kr. 100,00, til Þorbjargar Benónýsdóttur ljósmóður kr. 100,00, auk verðlagsupp- bótar, til verkamannaskýlis í Kefla- vík kr. 1000,00. Þá var samþykkt að veita kr. 20,00 í styrk með hverju fullnaðarprófsbarni í sýslunni utan Keflavíkur, til sundnáms, i 10 daga að minnsta kosti á árinu. Verkalýðs- og sjómannafél. Keflavíkur aðalfund sinn 30. maí síðastliðinn. Félagið telur nú um 300 félaga. í árs- lok 1942 voru eignir félagsins kr. 13.557,37. ■— Auk félagsmála, sem rædd voru á fundinum og gerðar samþykktir um, var eftirfarandi tillaga samþykkt: „Fundurinn samþykkir að V. S. F. K. beiti sér fyrir því að starfandi félög hér £ Keflavík haldi sameiginlega skemmt- un og renni ágóði þeirrar skemmtunar til sjúkrahúsbyggingar þeirrar, sem í ráði er að reist verði hér á næstunni. Skemmtunin sé haldin á þeim tíma, sem heppilegastur telzt og kjósi félög- in 2 menn hvert er sjái um skemmt- unina. Nýkomið: Svefnpokar, tjöld og stormblússur Bókabúð Krísfíns Péturssonar Aðalgötu 10 - Keflavík Keflvíkingar! Barnaregnkápur á 5 til 10 ára börn. Ella Ólafs Rottueitur Rottugildrur Flugnaveiðarar Flugnasprautur og vökvi- VATNSNES h.f.

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.