Faxi - 01.02.1961, Síða 1
FAXI
1
2. tbl. - XXI. ár
FEBRÚAR
1 96 1
Utgefandi:
Málfundafélagið Faxi
Keflavík
########################J
Síldarsöltun í janúar
Söltunin í fullum gangi.
Eins og lesendum Faxa er kunnugt, hóf-
ust síldveiðar aftur fyrri hluta janúar, en
þa höfðu þær legið niðri um hríð.
Nokk rir þeirra báta, sem byrjaðir voru
a vetrarvertíð með línu, skiptu þá um
veiðarfæri og hófu aftur síldveiðar með
snurpunót. Sama gerðu aðrir bátar, sem
ekki voru byrjaðir á vertíð og áttu síldar-
nætur. Var afli bátanna yfirleitt góður.
Fyrst framan af veiddist síldin vestur af
Jökli, færðist þá til og veiddist aðallega
tveggja stunda siglingu frá Garðskaga. Nú
hefir síldin enn breytt til og veiðist um
þessar mundir við Vestmannaeyjar.
Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem síld-
veiðar eru stundaðar hér í janúarmánuði,
að undanskildum veiðunum í Hvalfirði
hér um árið.
Þegar síldin fór að veiðast aftur eftir
áramótin, sýndi það sig, að hún var stór
og vel hæf til söltunar og frystingar. Þetta