Faxi - 01.02.1961, Qupperneq 2
18
F A X I
kom sér vel, þar sem enn vantaði mikið
magn í þá sölusamninga, sem gerðir höfðu
verið um Suðurlandssíldina. Þó reyndist
síldin ekki nægjanlega feit fyrir Rússland,
sem var stærsti kaupandinn.
Þar sem svo mikil síld barst að á skömm-
um tíma, var hér mikið að gera, enda var
unnið dag og nótt af konum og körlum
við að koma síldinni í tunnur og frysti-
tæki, en eins og menn vita, er síldin við-
kvæmt hráefni, sem meðhöndla þarf af
stökustu varfærni, ef hún á að verða góð
vara.
Vetrarsíldveiðar þessar mega vissulega
teljast merk nýjung í atvinnu- og fram-
kvæmdalífi okkar á þessum árstíma, sem
kann að verða upphaf að þáttaskilum í
starfssögu útvegsins. I þessu tilefni aflaði
blaðið sér nokkurra svipmynda frá einni
söltunarstöðinni, þar sem allt var í full-
um gangi. Sýna myndirnar betur en orð
fá lýst hið mikla og margbreytilega starf,
sem fram fer við síldarsöltun, en þær eru
Síldarstúlkur hjá h.f. Röst í fullum söltunarskráða.
Pækilgatið borað á tunnuna.
teknar í söltunarstöðinni RÖST h.f. í
Keflavík, af Heimi Stígssyni.
Nú er búið að uppfylla þá samninga, sem
gerðir voru um Suðurlandssíldina, að
undanskildum samningunum við Rúss-
land, en eins og fyrr er sagt, var fitumagn
þessarar síldar of lítið fyrir þá samninga.
Tunnan tekin
frá söltunar-
stúlkunni.
Tunnunum velt
á „lager“ til
geymslu.