Faxi - 01.05.1979, Qupperneq 6
Páll Þórðarson
engar stórtekjur hafa heldur
eru annaðhvort ellilífeyrisþegar
eða börn, sem réttindalaus eru
á vinnumarkaðinum. Allt þetta
fólk hefur með framlögum
sínum fetað í fótspor þess guðs
sem gefur. Þeirra vegferð bless-
ist.
í þau rúmu ellefu ár, sem Y,-
Njarðvík hefir verið sérstök
sókn, þá hafa þjónað hér þrír
prestar. Fyrst séra Björn Jóns-
son frá 28. jan 1968 til 1. apríl
1975, þá séra Ólafur Oddur
Jónsson til áramóta 1976.
Síðan séra Páll Þórðarson til
16. okt. er hann féll frá. Síðan
hefir séra Ólafur Oddur
þjónað. Þessir menn hafa
unnið og unað þessari sókn og
fólkinu hér á frumbýlisárun-
um. Björn, okkar fyrsti prestur
var mikill áhugamaður um
byggingu kirkjunnar og allan
viðgang sóknarinnar. Séra
Ólafur Oddur hefir í tvígang
verið okkur hjálparhella, að
vísu undir tvennum kringum-
stœðum. Fyrst meðan hans
ungi og œskuheiti skólabróðir
aflaði sér aukinnar mennt-
unnar, í síðara skiptið hljóp
Ólafur Oddur Jónsson
hann í skarðið fyrir hann lát-
inn.
Séra Páll Þórðarson varð
undrafljótt hvers manns hug-
Ijúfi strax eftir komuna hingað
sakir gáfna, einurðar, dugn-
aðar og ósérhlífni sinnar.
Örugglega hefði hann viljað
vera með okkur hér í dag og
raunar má segja að hann hafi
verið með okkur í starfinu
síðasta misserið. Minningin um
hann hefir hvatt okkur öll og
það sem við höfum á okkur
lagt, hefir helgast af henni.
Andi hans hefir svifið hér yfir
vötnunum.
Kœru áheyrendur. Þegar við
13. september 1969 í úrhellis-
rigningunni vorum viðstödd
upphaf þessarar byggingar-
framkvœmdar, sem nú hefir
náð þeirri reisn, sem raun ber
vitni. A þeirri stund kom til
mín mynd aftan úr forneskju
og hefi ég vitað afhenni síðan í
einhverju hugskoti mínu. Eg sá
fyrir mér þrönga götu í
gegnum Kapelluhraunið fyrir
sunnan til Suðurnesjanna. Á
einum stað, nœrri hraun-
straumnum miðjum, var hús
Björn Jónsson
eða hreysi, fast við götuslóð-
ann. Hvort heldur sem farið
var gangandi eða ríðandi gáfu
aðstœður ekki tilefni til mikils
hraða þarna um hraungötuna.
Þegar komið var að hreysinu
var numið staðar og gerðu menn
þar bœn sín. Kristján Eldjárn,
núverandi forseti vor gerði
athugun á rúst þessari á starfs-
tíma sínum sem þjóðmynja-
vörður og fann hann þar brot
af mynd af heilagri Barböru.
Hún var verndari manna fyrir
óvæntum dauða af völdum
vondra veðra og elds. Það var
fátœkt fólk mestan part, sem
þarna átti leið um og ferðin tók
langan tíma, 10 tíma greiður
gangur á milli Keflavíkur og
Reykjavíkur en samt gaf fólkið
sér tíma til að nema staðar og
gera bœn sína.
Tíminn líður ekki heldur fer
hann í hring, sagði kona, sem
var orðin yfir aldar gömul. Nú
höfum við í Y.-Njarðvík byggt
kirkju við þessa gömlu þjóðleið
um Suðurnes. Það markar fyrir
henni við kórhornið. En kirkj-
an snýr líka dyrunum að nýju
hraðbrautinni. Allt er þetta nú
vissulega með öðru sniði. Sælu
eða sálarhúsið eins og uppruna-
leg merking orðsins mun hafa
verið er stœrra vegurinn beinni
og breiðari, hraðinn meiri. En
þá er spurningin. Hafa vegfar-
endur nú tíma til að nema
staðar og gera bœn sína? Ég
hygg , og raunar veit að flestir
munu svara því svo að þeir
megi ekki vera að því. Þær
kröfur eru nú gerðar til manna
að slíkt slór er ekki liðið. En
hver gerir þœr kröfur? Brauð-
stritið og heimshyggjan gera
þœr kröfur. Hugleiðingar um
sálina og hennar velferð verða
að bíða þangað til betur
stendur á. Þetta litla umkomu-
lausa og viðkvœma sálarkorn,
það eina sem við komum með
okkur í fari okkar í þennan
heim, það eina, sem við höfum
með okkur héðan, og sú eina
eign okkar, sem Guð elskar.
En hvað um það, við höfum
byggt kirkju, sálarhús við nýja
veginn. Það er opið fyrir þér
vegfarandi ef þú getur fórnað
nokkrum mínútum af dýr-
mœtum tíma þínum og villt
eiga stund með guði þínum.
Til þess að renna stoðum
undir kenningu gömlu konunn-
ar um það að tíminn líði ekki
heldur fari í hring, enda ég orð
mín á erindi úr Sólarljóðum,
einu elsta verki kristnu á
íslensku. í því er tileinkunin á
kirkjuklukkunum okkar.
Inn máttugi faðir.
Inn mœsti sonur.
Heilagur andi himins.
Þig bið ég að skilja,
sem skapað hefir,
oss alla eymdum frá.
Oddbergur Eiríksson
form. sóknarnefndar.
Ljósmyndastofa Suðurnesja
Hafnargötu 79 - Simi 2930
FAXI — 6